Fréttablaðið - 12.03.2020, Side 2
Veður
Víða norðaustan 5-13, dálítil él
norðaustanlands, annars úrkomu-
lítið. Gengur í suðaustan 10-18
með snjókomu eða slyddu suð-
vestan og vestan til síðdegis. Frost
1 til 12 stig, kaldast í innsveitum
norðanlands. SJÁ SÍÐU 28
Algjör steypa
Steypubíl sem maður um þrítugt stal á Vitastíg í gær var stefnt í mikla háskaför niður Laugaveg og um Lækjargötu að Sæbraut þar sem ökumaður-
inn ók á öfugum vegarhelmingi og utan vegar með lögreglubíla á eftir sér. Gangandi vegfarendur hrökkluðust undan ferlíkinu sem nálgaðist á
ógnarhraða. Loks ók þjófurinn út af á Kleppsvegi og freistaði þess árangurslaust að hrista af sér laganna verði á fæti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
AFMÆLISTILBOÐ Í MARS
kr
.kg1790
FISKRÉTTUR
DAGSINS
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarinaSogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
TÖLVULEIKIR Gulli útskrifaðist sem
hljóðhönnuður frá Ravensbourne
University í London árið 2012. Hann
er Hólmari í húð og hár og segir að
ferill í tölvuleikjaheiminum hafi
ekkert endilega legið beint við. „Ég
spilaði ekki mikið af tölvuleikjum
sem krakki, var aðallega í körfu-
bolta og tónlist,“ segir hann.
Eftir að hafa starfað að margs
konar verkefnum í hljóðhönnun,
bæði heima og erlendis, réð tilviljun
því að hann réð sig til Remedy-fyrir-
tækisins sem staðsett er í Helsinki.
„Það er gamla klisjan, ég var
réttur maður á réttum stað. Ég tók
að mér verkefni fyrir þá í forföllum
árið 2017 og sex mánuðum síðar var
ég fluttur til Finnlands,“ segir Gulli.
Hjá fyrirtækinu starfa 250 manns
frá öllum heimshornum.
Control var þrjú ár í framleiðslu
og hóf Gulli vinnu við leikinn um
leið og hann hóf störf hjá Remedy.
„Hugsunin á bak við leikinn er mjög
frumleg og það hefur fallið vel í
kramið hjá tölvuleikjaspilurum
sem þyrstir í eitthvað nýtt,“ segir
Gulli.
Hlutverk hans og samstarfsfólks
hans er að skapa hljóðheim leiksins.
„Hljóðsetning er í raun bara að búa
til tilfinningar. Við fáum grafík og
teikningar af tilteknum rýmum,
hlutum og persónum í leiknum og
þurfum að hanna hljóð sem hæfa
því. Þegar það er klárt þarf að setja
þetta allt inn í leikinn og láta það
virka,“ segir Gulli. Hann segir að
mikil vinna liggi oft á bak við hin
ýmsu hljóð í leiknum.
„Í Control erum við oftast að
reyna að búa til óþægilega og jafn-
vel hrollvekjandi stemmingu.
Það gerist reglulega í þessu starfi
að maður er að leita að einhverju
hljóði, kannski bara hálfri sek-
úndu, sem þú ert með í huganum en
finnur ekki fyrr en eftir langa leit.
Það getur verið mjög gefandi þegar
maður telur sig finna þetta hljóð og
allt smellur saman,“ segir Gulli.
Að hans sögn er mikið listrænt
frelsi hjá Remedy og það er eitthvað
sem hann kann vel að meta. „Við
vinnum hljóðin á margs konar hátt,
úr hljóðgervlum, hljóðbönkum
eða tökum þau upp sjálf. Til dæmis
vann ég hljóð í holræsaskrímsli úr
upptöku þar sem að ég dundaði mér
við að smjatta á banana,“ segir Gulli
kíminn.
Hann nýtir líka hvert tækifæri
sem hann fær til þess að taka upp
hljóð sem síðan geta nýst honum í
vinnunni.
„Ég fór í heimsókn í Hólminn um
daginn og fékk þá að eyða degi í
skipasmíðastöðinni Skipavík. Þar
var ég að berja saman málmum
allan daginn og taka upp. Held að
flestir sem sáu aðfarirnar hafi hald-
ið að ég væri stórskrýtinn. Þetta var
svo á endanum allt notað í leikinn.“
bjornth@frettabladid.is
Hljóðsetning gerð til
að búa til tilfinningar
Finnski tölvuleikurinn Control fékk á dögunum metfjölda tilnefninga til
BAFTA-verðlauna, þar á meðal fyrir hljóðsetningu. Á bak við hljóðheim leiks-
ins, sem er ævintýralegur í meira lagi, er Gulli Gunnarsson og samstarfsfólk.
Gulli er vægast sagt frumlegur við hljoðsetninguna. MYND/NIALL MCCONNELL
Til dæmis vann ég
hljóð í holræsa-
skrímsli úr upptöku þar sem
að ég dundaði mér við að
smjatta á banana.
Gulli Gunnarsson
ME NNING Ólíkt mörgum sam-
komum sem slegnar hafa verið af,
fóru Íslensku tónlistarverðlaunin
fram að venju og voru 39 verðlaun
veitt. Var hátíðin haldin í gærkvöldi
með pompi og prakt í Hörpu en þjóf-
startað var á þriðjudag þegar hljóm-
sveitin Grísalappalísa hlaut verðlaun
í flokknum textahöfundur ársins.
In the Dark með Vök var valin
poppplata ársins, Týnda rásin með
Grísalappalísu rokkplata ársins og
Is anybody listening? með Cell7
rappplata ársins. Popplag ársins var
Enginn eins og þú með Auði, rokk-
lagið Fyrsta ástin með Hipsumhaps
og rapplagið Falskar ástir með Flóna.
Þá var flutningur Hatara í Eurovisi-
on valinn tónlistarviðburður ársins.
Söngkona ársins var Margrét Rán úr
Vök og söngvari Auður sem jafn-
framt var valinn flytjandi ársins.
Sigurganga Hildar Guðnadóttur
heldur áfram en hún hlaut verðlaun
fyrir útgáfu kvikmyndatónlistar og
upptökustjórn fyrir tónlistina úr
þáttunum Chernobyl. Heiðursverð-
launin hlaut Sigrún Hjálmtýsdóttir,
betur þekkt sem Diddú.
Bergur Ebbi var kynnir á hátíðinni
og fjölmargir tónlistarmenn komu
fram. Ragga Bjarna, sem féll frá fyrir
skemmstu, var minnst með flutningi
á lögunum Barn og Vertu ekki að
horfa svona alltaf á mig. – khg
Sigurganga
Hildar Guðna
heldur áfram
GDRN tók lagið á Íslensku tónlistar-
verðlaununum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DANMÖRK Danir hafa tekið ákvörð-
un um harðar aðgerðir vegna
COVID-19 faraldursins. Kynnti
Mette Frederiksen forsætisráð-
herra þetta á blaðamannafundi í
gærkvöldi. „Betra að bregðast við í
dag en að sjá eftir á morgun,“ sagði
hún. Yfir 500 manns hafa smitast
af veirunni og ástand tveggja ein-
staklinga er alvarlegt. Þá eru 1.300 í
sóttkví. Skólum verður lokað, opin-
berir starfsmenn sendir heim nema
í undantekningartilvikum og mælst
er til að samkomum þar sem fleiri en
100 manns koma saman verði aflýst.
Gildir þetta í tvær vikur. – khg
Danir grípa til
harðra aðgerða
Mette Frederik-
sen forsætisráð-
herra.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð