Fréttablaðið - 12.03.2020, Page 10
Ástand heimsins
Síðustu 49 sjúklingarnir voru fluttir úr Hongshan-íþróttahúsinu í Wuhan-borg í kína þar sem einn af tólf bráðabirgðaspítölum borgarinnar var settur upp til að bregðast við kórónafaraldrinum.
Unnið hefur verið að lokun hluta þeirra en faraldurinn hefur verið í rénun í borginni, þar sem COVID-19 greindist fyrst. Á sama tíma er hann að brjótast út víða annars staðar um heim. MYNDIR/GETTY
Þúsundir aðdáenda tóku á móti Valencia fyrir utan heimavöll liðsins sem tók
á móti Atalanta í öðrum leik liðanna í Meistaradeildinni á þriðjudag. Lengra
komust þeir ekki því leikurinn var lokaður áhorfendum í varúðarskyni.
Pólskir landa-
mæraverðir
og heilbrigðis-
starfsmenn
klæddir hlífðar-
fatnaði taka
sýni og mæla
hita rútufar-
þega við landa-
mæri Póllands
og Þýskalands.
Íbúar í borginni Manila á Filippseyjum eru farnir að hamstra vegna
COVID-19. Stjórnvöld lýstu yfir neyðarástandi á þriðjudaginn eftir að fyrstu
innanlandssmitin voru staðfest. Viðskiptavinir stórmarkaða geta gripið
forpakkaðar nauðsynjar við innganga til að takmarka samneyti við aðra.
Stephen Linch, þingmaður Demókrata í fulltrúadeild bandaríska þingsins, og dr. Anthony Fauci, forstöðumaður
Heilbrigðisvísindastofnunar Bandaríkjanna, heilsuðust með olnbogaskoti við upphaf fundar eftirlitsnefndar
þingsins um viðbrögð bandarískra stjórnvalda við faraldrinum þar sem Fauci svaraði spurningum þingmanna.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð