Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 17
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Í ævisögu Ingólfs Jónssonar ráðherra segir frá bónda í Meðallandinu, sem sendi Skömmtunarskrifstofu
ríkisins erindi með beiðni um leyfi til
kaupa á klof háum gúmmístígvélum.
Skömmtunarskrifstofunni þótti rétt
að upplýsa viðskiptaráðherra um
erindið.
Ráðherrann gaf Skömmtunarskrif-
stofunni síðan heimild til þess að víkja
frá settum reglum í þessu tilviki vegna
sérstöðu málsins. Þótt það sé ekki sagt
berum orðum liggur í loftinu að þing-
maður Vestur-Skaftfellinga hafi þrýst á
um farsæla niðurstöðu fyrir bóndann.
Forsjá og frelsi
Þessi löngu liðna saga frá haftaárunum
kom upp í hugann þegar umræður
fóru fram á Alþingi í síðustu viku um
vægi atkvæða. Eru einhver tengsl þar
á milli? Í sjálfu sér ekki. En þeir fáu,
sem töluðu fyrir óbreyttri mismunun
í eðlisþyngd atkvæða, virtust gera það
á þeirri forsendu að þörfin fyrir forsjá
og fyrirgreiðslu þingmanna væri ríkari
á landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu.
Er það svo í raun og veru? Hefði á
sínum tíma átt að bregðast við skorti
á gúmmístígvélum með því að fjölga
þingmönnum sveitanna? Hvaða vanda
hefði það leyst?
Á endanum leysti Viðreisnarstjórnin
vandamálið með því að afnema hafta-
og skömmtunarkerfið og gefa verslun-
ina frjálsa. Eftir það gátu bændur
keypt stígvél án atbeina ráðherra.
Þingmenn misstu verkefni og kannski
fannst sumum þeir missa völd.
Hræðsla við breytingar
En því er ekki að leyna að hræðslan við
að hverfa frá höftum til frjálsrar versl-
unar var rótgróin. Ýmsir staðhæfðu
að frjálsræði af þessu tagi þjónaði
aðeins hagsmunum kaupmanna en
græfi undan stöðu þeirra sem sköpuðu
raunveruleg verðmæti í sveitunum og
sjávarplássunum. Verðgildi þess-
arar kenningar féll mjög fljótt í búð
reynslunnar.
Ef við lítum okkur nær í tíma er það
vissulega enn svo að afstaða margra
til breytinga ræðst af hræðslu við
það óþekkta. Í hófi getur slík hræðsla
verið dyggð, en í óhófi Þrándur í Götu
framfara. En þetta á við fólk í þéttbýli
rétt eins og á landsbyggðinni. Og jafn-
vægið þarna á milli ætti að vera eins
mikilvægt fyrir fólk hvar sem það býr.
Skoðanakannanir sýna að vísu að oft
er munur á afstöðu fólks eftir búsetu.
En þær segja líka að skoðanir fólks eru
skiptar eftir aldri, menntun og tekjum.
Orsakir byggðaþróunar
Byggðin í landinu hefur þróast til
vaxandi þéttbýlis. Það er sams konar
breyting og átt hefur sér stað meðal
annarra þjóða. Aukin þekking, fjöl-
breytni í atvinnuháttum, tæknifram-
farir og framleiðniaukning hafa verið
helstu áhrifavaldarnir um þessa þróun
og um leið lífskjörin.
Áhrif atkvæðamisvægisins á byggða-
þróunina eru svo óveruleg að með
engu móti er unnt að skrifa ábyrgðina
á þann reikning. Þó að flestir sjái eftir
byggðum, sem hafa horfið eða veikst
verulega, vilja fáir fara til baka á sama
lífskjarastig og áður. Landsbyggðarfólk
er ekkert frábrugðið öðrum með það.
Þörf byggðanna fyrir nýsköpun
Eins og sakir standa þarf landsbyggðin
sennilega mest á nýsköpun að halda.
Um það þarf varla að þræta. En það
getur verið ágreiningur um leiðirnar
að því marki. Menn skiptast líka í tvö
eða f leiri horn í þeim efnum í þétt-
býlinu.
Hér má taka dæmi: Sú mismunun,
sem felst í því að sumum er gert kleift
að standa utan krónuhagkerfisins og
öðrum ekki, bitnar eins á landsbyggð-
inni og borgarsamfélaginu. Kannski
hallar þó heldur meir á landsbyggðina
fyrir þá sök að þörfin fyrir nýsköpun
er ríkari þar og þessi mismunun er ein
stærsta hindrunin fyrir slíkri fram-
þróun.
Það ræðst fyrst og fremst af almenn-
um pólitískum viðhorfum hvort tekið
verður á mismunun af þessu tagi. Sér-
tæk fyrirgreiðsla mun litlu eða engu
áorka í því efni nú fremur en fyrr.
Þegar öllu er á botninn hvolft standa
engin gild rök til þess að víkja frá því
almenna mannréttindasjónarmiði
að atkvæðarétturinn eigi að vera ein-
staklingsbundinn og jafn.
Má réttlæta ólíka eðlisþyngd atkvæða?
Eins og sakir standa þarf
landsbyggðin sennilega mest á
nýsköpun að halda.
Lestu Fréttablað dagsins í snjalltækinu þínu, hvar og hvenær sem er!
BYRJAÐU DAGINN MEÐ
FRÉTTABLAÐINU
Sæktu Fréttablaðsappið frítt!
• Þú sækir appið frítt í
Appstore eða Googleplay.
• Opnar blað dagsins.
• Lest þegar þér hentar!
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 2 . M A R S 2 0 2 0