Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 32
Íþróttahús Há-
skóla Íslands.
MYNDIR/HÁSKÓLI
ÍSLANDS
Fyrstu 29 árin var Háskóli Íslands til húsa í Alþingishús-inu við Austurvöll í Reykjavík
en skólinn var stofnaður 17. júní
árið 1911, á aldarafmæli Jóns
Sigurðssonar forseta. Starfsemi
háskólans var flutt í Aðalbygg-
inguna við Suðurgötu árið 1940 og
á þeim 80 árum sem eru liðin hefur
byggingum hans fjölgað mikið,
bæði á svæðinu kringum Aðal-
bygginguna og utan þess.
Hér segjum við frá sögu nokk-
urra bygginga Háskóla Íslands
og styðjumst við Úr húsnæðis- og
byggingarsögu Háskóla Íslands
II, Draumsýnir, framkvæmdir og
svipmyndir af háskólasamfélagi
1940-1990, sem Páll Sigurðsson tók
saman og Háskólaútgáfan gaf út
árið 1991.
Lögberg
Árið 1960 ákvað háskólaráð að
reist yrði bygging milli Aðalbygg-
ingar og Nýja-Garðs. Við hönnun
hennar skyldi miða við að hún yrði
fyrst og fremst nýtt undir Laga-
deild skólans, þótt hún yrði einnig
nýtt fyrir aðrar deildir eins og hægt
var. Gert var ráð fyrir að bygg-
ingin myndi kosta um 40 milljónir
og búnaður um þrjár milljónir.
Byggingin var teiknuð af Garðari
Halldórssyni arkitekt, undir stjórn
Fjölbreyttar byggingar HÍ
Frá stofnun Háskóla Íslands árið 1911 hefur byggingum skólans fjölgað jafnt og þétt. Margar eiga
þær sér langa og fróðlega sögu enda byggðar á miklum umrótatímum í sögu þjóðarinnar.
Lögberg er nýtt undir lagadeildina en Garðar Halldórsson teiknaði húsið.
Oddi er hús hugvísinda hjá HÍ.
Harðar Bjarnasonar sem þá var
húsameistari ríkisins. Ári síðar,
1970, hófust framkvæmdir og allt
húsið var tekið í notkun 1972 þótt
frágangi væri ekki að fullu lokið.
Íþróttahús Háskóla Íslands
Upphaflega höfðu stjórnendur
Háskóla Íslands mjög stórtækar
hugmyndir um byggingu íþrótta-
húss, en horfið var frá þeim hug-
myndum og mun minna hús var
reist. Gísla Halldórssyni og Sigvalda
Thordarsyni var falið að teikna
húsið og var grunnur grafinn fyrir
bygginguna sumarið 1945. Á næstu
tveimur árum var húsið byggt og í
apríl 1948 fór þar fram fyrsta fim-
leikaæfingin. Íþróttahús Háskólans
er enn í fullri notkun og hýsir í dag
meðal annars íþróttasal, tækjasal
og gufubað.
Oddi
Árið 1980 var hafist handa við
byggingu hugvísindahúss sem
síðar hlaut nafnið Oddi. Fram-
kvæmdir gengu hægt fyrir sig, af
ýmsum ástæðum, auk þess sem
einhverjum háskólakennurum
og fræðimönnum sem störfuðu
í Árnagarði skammt frá, þótti
nýja byggingin skyggja á fegurð
Vatnsmýrar og fjallahringsins.
Upphaflega átti húsið að þjóna
Félagsvísindadeild, Viðskiptadeild
og Heimspekideild.
Háskólabíó
Um miðja síðustu öld kviknuðu
hugmyndir um byggingu fram-
tíðarhúsnæðis undir kvikmynda-
hús Háskólans. Upphaflegar
hugmyndir gerðu ráð fyrir að bíóið
myndi rísa á lóð við Hringbraut,
milli Þjóðminjasafns og Garðs,
en bæjaryfirvöld féllust ekki á
þær hugmyndir. Árið 1955 gaf
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
háskólayfirvöldum kost á lóð við
Hagatorg og Dunhaga og hófust
framkvæmdir þremur árum síðar.
Háskólabíó var vígt í október 1961,
á 50 ára afmæli Háskóla Íslands.
Askja
Askja, náttúrufræðahús Háskóla
Íslands í Vatnsmýrinni, var vígt
við hátíðlega athöfn í apríl 2004.
Hönnun þess hófst tíu árum áður
og teiknaði dr. Maggi Jónsson
húsið, sem margir í háskólasamfé-
laginu höfðu beðið eftir jafnvel
áratugum saman. Byggingin er
8.657 fermetrar að stærð en nafn
hússins var valið úr 2.534 hug-
myndum sem bárust í samkeppni
HÍ um tillögur að nafni.
Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
Hafðu
samband
568 0100www.stolpigamar.is
Stólpi Gámar bjóða gámalausnir fyrir atvinnulífið – til leigu eða sölu
Einnig gámahús og salernishús frá Containex, færanlega tarfsmannaðstöðu
frá EuroWagon.dk, gámar og vöruskemmur frá BOS, vörulyftur frá Maber
og skemmur frá Hallgruppen.
Rakaskiljur og blásara frá Heylo, rykvarnarkerfi frá ZIPWALL,
og parket-og vinilklippur frá BULLET TOOLS.
þurrgáma
hitastýrða gáma
geymslugáma
einangraða gáma
fleti og tankgáma
gáma með hliðaropnun
Stólpi Gámar fyrir atvinnulífið
6 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT