Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 34
við sig eða festipunkta án þess að
festibúnaðurinn þvælist fyrir við
vinnu. Við teljum víst og vonum
að notkun á þannig öryggisbúnaði
muni aukast mikið á næstu miss-
erum.
Í vetur hófum við samstarf við
Euroscaffold sem er hollenskur
framleiðandi álvinnupalla og
franska fyrirtækið Centaure, sem
framleiðir stiga og tröppur fyrir
iðnað. Stundum hefur borið á því
að verið er að nota heimiliströppur
á vinnusvæðum en þær eru ekki
hannaðar fyrir þær aðstæður.
Við viljum bjóða tröppur og stiga
sem hönnuð eru fyrir vinnusvæði
á þannig verði að fyrirtæki velji
þann kost frekar en að bjóða starfs-
fólki sínu upp á tröppur og stiga
sem geta hreinlega verið hættuleg
í þeim aðstæðum sem verið er að
nota þá í. Álpallarnir frá Euroscaf-
fold eru mjög vandaðir, aðalkerfi
þeirra er þannig úr garði gert að við
uppsetningu á pöllunum kemur
handrið upp með stífum þannig að
þegar farið er upp á dekkið er fall-
vörn komin,“ greinir Örvar frá.
Aukið vöruframboð
„Vinnupallar ehf., bjóða enn
fremur upp á breitt vöruúrval af
iðnaðarryksugum, háþrýstidælum
og hitablásurum frá Biemmedue
á Ítalíu. Við tókum til dæmis inn
hitablásara frá Biemmedue sem
er í stærri kantinum: 810,861 BTU
og blæs 17.000 rúmmetrum af
heitu lofti á klukkustund. Hann
er 351 kíló og hefur mjög góða
orkunýtingu: 92%. Þetta tæki er
hugsað til að hita stærri rými á
skömmum tíma. Tækið er haft fyrir
utan rýmið sem það á að hita og
heita loftinu blásið inn með þar til
gerðum barka. Við bjóðum upp á
að leigja þennan öfluga blásara til
lengri eða skemmri tíma.“
Öruggar sérlausnir
„Við leggjum mjög mikla áherslu á
persónulega lausnamiðaða þjón-
ustu,“ segir Örvar. „Við kennum
viðskiptavinum á vörurnar okkar
og viljum styðja við og auka þekk-
ingu þeirra á öryggismenningu
í byggingariðnaði. Vöruúrval
Vinnupalla ehf. endurspeglar það
markmið með því að bjóða öruggar
hágæðavörur fyrir byggingasvæði
á hagstæðu verði. Á undanförnum
árum hafa öryggismál á byggingar-
svæðum tekið miklum framförum
öllum til heilla. Við viljum styðja
við áframhaldandi þróun í þá
átt með auknu vöruframboði á
vinnuverndar- og öryggisbúnaði á
Íslandi. Vinnupallar ehf. telja hag
í því að vera með ákveðna sam-
keppnishæfa verðstefnu og munu
alltaf bjóða gott sanngjarnt verð
með langtíma viðskiptasamband í
huga,“ segir Örvar.
Vinnupallar ehf. fluttu nýlega í
glæsilegt húsnæði að Smiðsbúð 10
í Garðabæ. Þar er verslun, sýning-
araðstaða, lager og allt sem þarf
til að fyrirtækið geti þjónustað
viðskiptavini sem allra best. Sett
var í loftið ný heimasíða, vpallar.is,
rétt eftir áramót sem aðstoðar við
markaðssetningu og miðlun á efni
til viðskiptavina.
Vöruúrval Vinnu-
palla ehf. endur-
speglar það markmið
með því að bjóða örugg-
ar hágæða vörur fyrir
byggingarsvæði á hag-
stæðu verði.
Segja má að starfsemi Vinnu-palla sé tvíþætt þar sem flestar vörur eru bæði til leigu
og sölu. „Þannig teljum við okkur
veita hagkvæmustu sérlausnirnar
og koma sem best til móts við
þarfir okkar viðskiptavina,“ segir
Örvar Geir Örvarsson rekstrar-
stjóri.
Um langt skeið hefur ákveðið
ítalskt rörapallakerfi verið ráðandi
á íslenskum markaði og fátt annað
hefur verið í boði þegar kemur
að rörapöllum. „Við hjá Vinnu-
pöllum sáum ákveðið tækifæri í
þessari einsleitni sem felst í því
að bjóða annars konar vöru og
fyrirtækið lagði upp með það í
huga að koma með nýja, örugga
og samkeppnishæfa vöru. Plettac
pallakerfið er upprunalega þýskt
rörapallakerfi hannað með mikinn
fjölbreytileika í boði hvað varðar
uppsetningu á pöllunum og í dag
er kerfið eitt vinsælasta rörapalla-
kerfi í Evrópu. Hugsunin á bak
við Plettac pallakerfið er að bjóða
sérhæfðar lausnir til að mæta
fjölbreyttum verkefnum. Sérhæfð
útfærsla bætir öryggi pallanna og
gerir það að verkum að þægilegra
er að vinna á pöllunum. Við tókum
strax þá stefnu að flytja inn sem
mest af fylgihlutum kerfisins til að
geta boðið viðskiptavinum okkar
að fullnýta möguleika þess,“ segir
Örvar.
Öryggið fremst
„Öryggi pallanna er í algerum for-
gangi, bæði hvað varðar hönnun,
notkunarmöguleika og hvernig
við viljum kynna nýtingu þeirra.
Fall úr hæð er eitt af algengustu
vinnuslysunum og því miður má
stundum rekja slík slys til óvand-
aðs frágangs og uppsetningar á
vinnupöllum. Þetta er þó að breyt-
ast og vitundarvakning hefur átt
sér stað hvað varðar öryggismenn-
ingu almennt í byggingariðnaði
undanfarin ár. Bæði bygginga- og
eftirlitsaðilar eru farnir að gera
meiri kröfur varðandi öryggismál,
þar með talið vandaða uppsetn-
ingu og frágang við vinnupalla. Við
setjum öryggið fremst og teljum
okkur hafa bæði fram að færa
lausnir og útfærslu til að styðja við
þá jákvæðu þróun.
Við höfum strax frá upp-
hafi boðið upp á uppsetningu
á vinnupöllum. Sú vinna felur í
sér ákveðna fallhættu og þar af
leiðandi eiga aðilar sem vinna
við slíka framkvæmd alltaf að
nota fallvarnarbúnað. Það lá því
beint við að næsta skref hjá okkur
væri að bjóða fallvarnarbúnað
til sölu. Í dag eigum við mikið
úrval af fallvarnarbúnaði, svo sem
beltum, blökkum og línum í fjöl-
breyttri útfærslu. Rekstraraðilar
og starfsfólk fyrirtækisins hefur
farið á ýmis námskeið varðandi
fallvarnir hérlendis og erlendis
hjá okkar birgjum og við höfum
réttindi til að þjónusta allan okkar
búnað. Þegar unnið er í hæð er
alltaf ákveðin hætta á ferð sem
meðal annars felst í því að verkfæri
geta fallið niður og valdið tjóni og
slysum. Vinnupallar ehf. hafa tekið
til sölu vörulínu frá Ergodyne sem
tekur á þess konar hættu. Ergo-
dyne hefur þróað ýmsar vörur sem
gera fólki kleift að festa verkfæri
Vinnupallar ehf. bjóða upp á
fjölbreyttar öruggar lausnir
Vinnupallar ehf., hefur starfað á byggingavörumarkaði í þrjú ár en fyrirtækið sérhæfir sig í sölu
og leigu á hágæða vinnupöllum frá Plettac. Fyrirtækið hefur undanfarin misseri verið að breikka
vöruval sitt fyrir byggingariðnaðinn og býður nú enn fleiri hágæðavörur bæði til sölu og leigu.
„Sérhæfð út-
færsla bætir
öryggi pall-
anna og gerir
það að verkum
að þægilegra
er að vinna á
pöllunum,“
segir Örvar Geir
Örvarsson hjá
Vinnupöllum.
Hjá Vinnupöllum er fjölbreytt úrval alls kyns öryggisbúnaðar og tækja. Fyrirtækið Vinnupallar býður vörur jafnt til leigu og sölu.
Hitablásari frá Biemmedue sem er í stærri kantinum fyrir stærri rými:
810,861 BTU. Hann blæs 17.000 rúmmetrum af heitu lofti á klukkustund.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT