Fréttablaðið - 12.03.2020, Page 37
Innréttingar og tæki er starfrækt í Ármúla 31 og hefur verið rekið um langt skeið. „Fyrirtækið er
frá 1945. Amma mín stofnaði það
sem heildverslun, en árið 1993 var
því svo breytt í verslun af for-
eldrum mínum,“ segir Íris en hún,
ásamt eiginmanni sínum Grétari
Þór, tók yfir reksturinn árið 2014.
„Við stukkum til. Maðurinn minn
er enn í annarri vinnu, en hann
kemur alltaf þegar hann er búinn í
vinnunni og við stöndum vaktina,“
segir Íris, létt í bragði en fyrirtækið
leggur mikla áherslu á persónulega
og góða þjónustu. „Þetta er algjört
fjölskyldufyrirtæki. Ef foreldrar
mínir eru ekki á staðnum, þá eru
börnin hérna. Svo bíð ég bara eftir
að ömmubörnin mæti á vaktina,“
segir Íris og hlær.
Áhersla á vandaða sérvöru
og persónulega þjónustu
Innréttingar og tæki selur vandaða
sérvöru. Til að mynda baðinnrétt-
ingar, sturtuklefa, hreinlætisvörur
og blöndunartæki. „Við erum í
raun með allt fyrir baðherbergið
nema vegg- og gólfefni. Við viljum
vera sérvöruverslun, en ekki þessi
dæmigerða byggingavöruverslun.
Við leggjum metnað okkar í
vandaðar vörur og persónulega
þjónustu,“ segir Íris. Blöndunar-
tækin koma frá Fima Carlo Frattin,
ítölsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í
umhverfisvænni gæðaframleiðslu.
Hreinlætistækin eru að mestu frá
Gala sem er spænskt fyrirtæki,
stofnað 1965.
Þá selur verslunin vörur frá
Globo, sem er ítalskt fyrirtæki.
„Globo er til að mynda svaka-
lega flott merki. Fyrirtækið var
stofnað 1980. Þeir bjóða upp á mjög
skemmtileg, lituð salerni, sem
viðskiptavinir okkar hafa rosalega
mikinn áhuga á – til dæmis svört,
brún og grá. Þessir litir eru dálítið
öðruvísi,“ segir Íris. „Fólki finnst
þetta rosalega flott. Margir koma
og kaupa svart. Svo eru sumir sem
staldra við, langar í salerni í lit en
enda á að kaupa matt, hvítt salerni
sem er líka mjög vinsælt.“
Óþarfi að skipta öllu út í einu
Blöndunartækin rjúka út hjá Írisi,
enda mikið og gott úrval. „Ef þú vilt
einfalda og ódýra leið til þess að
poppa upp baðherbergið er mjög
sniðugt að skipta út blöndunar-
tækjum og fá þau í einhverjum lit.
Það er það vinsælasta sem við erum
með núna. Það þarf ekki endilega
að skipta út öllu í einu, þú þarft
ekki endilega að skipta út hand-
lauginni og klósettinu þótt þú fáir
þér ný blöndunartæki.“ Íris bendir
fólki þó einnig á að ráðfæra sig við
hönnuði og fagmenn.
Sturtubotnarnir eru líka vinsæl
söluvara. „Þeir eru ótrúlega flottir
og þunnir. Eins og ein, heil flís;
þungir og massífir og eru fram-
leiddir hjá Gala. Það er eiginlega
með ólíkindum hversu dug-
legir Íslendingar eru að skipta út
sturtunni,“ segir Íris. „En það á sér
nú eðlilegar skýringar. Það er gott
að vera með baðkar þegar börn
eru ung, en þegar þau eldast og
fjölskyldur fara að keppast um bað-
herbergið á morgnana þá vilja allir
fara í sturtu. Það er einfalt að henda
út baðkarinu, setja stóran sturtu-
botn og svo gler. Þá ertu kominn
með æðislega „walk-in“ sturtu með
lítilli fyrirhöfn,“ útskýrir Íris og
Auðvelt að lífga upp á baðherbergið
bara með nýjum hreinlætistækjum
Innréttingar & tæki bjóða upp á ríkulegt úrval baðinnréttinga, blöndunar- og hreinlætistækja. Íris
Jensen framkvæmdastjóri segir margar spennandi nýjungar á döfinni, bæði hvað snertir vöruúr-
val og liti. Bleikur kemur sterkur inn um þessar mundir og kemur virkilega vel út í baðherbergjum.
Íris Jensen, framkvæmdastjóri og eigandi.
Blöndunartæki í lit gera heilmikið fyrir baðherbergið.
Sturtubotnarnir eru alltaf vinsæl söluvara.
Guðdómlega fallegur bleikur vaskur.
Vaskarnir og
vaskaborðin í
Innréttingum
og tækjum eru
mörg hver hálf-
gerð listaverk.
Mosaplöturnar eru umhverfsvænar og dempa hljóð.
Bleiki liturinn er ótrúlega fágaður og hlýlegur.
bætir við að sturtubotnarnir fást í
fjórum litum, en í september verði
sérstaklega mikið úrval. „Við ætlum
að bjóða upp á þá í fimmtán litum.
Trendið í litum er að koma til baka,
en núna eru það jarðlitir. Ekki past-
ellitir, eins og voru hér einu sinni.“
Umhverfisvænar lausnir
Íris segir spennandi nýjungar í
takt við aukna umhverfisvitund
streyma í verslunina og nefnir hún
meðal annars hinar fallegu mosa-
plötur.
„Við erum nýlega byrjuð með
umhverfisvænar plötur með mosa,
sem eru frábærar til hljóðeinangr-
unar og henta vel fyrir heimili,
fyrirtæki og stofnanir. Mosa-
plöturnar eru afar fallegar og til
mikillar prýði. Þær eru úr náttúru-
legum mosa, laufum og umhverfis-
vænum efnum sem ekki þarf að
hugsa mikið um. Mosaplöturnar
eru frá ítalska hönnunarfyrirtæk-
inu Benetti Home. Þær má setja upp
sem stóran eða lítinn gróðurvegg
eða klippa til og búa til listaverk
eða lógó fyrirtækja, allt eftir því
sem hver og einn vill,“ segir Íris.
Plöturnar eru búnar til úr léttu áli
og á þær er settur mosi, sem er sér-
staklega ræktaður í þeim tilgangi.
Ef þú vilt einfalda
og ódýra leið til
þess að poppa upp bað-
herbergið er mjög sniðugt
að skipta út blöndunar-
tækjum og fá þau í ein-
hverjum lit. Það er það
vinsælasta sem við erum
með núna.
Íris segir mosaplöturnar hafa
vakið mikla athygli og þær séu
vinsælar víða um heim. „Plöturnar
eru vistvænar og það þarf lítið sem
ekkert að hugsa um þær. Mosinn
heldur sér vel og það þarf aðeins að
úða efni á hann á nokkurra mánaða
fresti ef rakinn er lítill. Einfaldara
getur það ekki verið. Það er hægt að
sjá risastóran vegg úr mosaplötun-
um við upplýsingaborðið í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, en hann kemur
mjög vel út. Mosaplöturnar eru
líka eftirsóttar til að skreyta hótel
og veitingastaði en þær setja mjög
skemmtilegan svip á umhverfið,“
segir Íris. Mosaplöturnar fást í mis-
munandi stærðum og hægt er að
velja um ljósan eða dökkan mosa,
mosa blandaðan laufum eða bara
mosa. „Það er líka hægt að hafa
mosann mjúkan eða harðan, allt
eftir smekk hvers og eins,“ upplýsir
hún og ítrekar að um náttúrulegt
efni sé að ræða. „Plöturnar eru
frábærar til að dempa hljóð, t.d. í
húsum þar sem hátt er til lofts, eða
stór og opin rými. Mosinn skapar
líka notalega stemmningu.“
Þá eru umhverfisvænu salernin
einkar spennandi valkostur. „Hjá
okkur fæst umhverfisvænt salerni
frá spænska fyrirtækinu Gala. Þar
er búið að sameina salernisskálina
og skolskálina í eitt tæki. Þetta sal-
erni er útbúið fjarstýringu og það
er hægt að fá bæði skol og blástur
sem minnkar verulega eða algjör-
lega notkun á salernispappír. Þessi
salerni eru mjög vinsæl í löndum
þar sem ekki má setja salernis-
pappír í klósettið. Þetta er virkilega
falleg hönnun sem kemur vel út á
baðherbergi,“ segir Íris.
Fjöldi litríkra valmöguleika
Eitt af því sem er svo skemmtilegt
við margar af vörunum er lita-
dýrðin. „Það nýjasta í hreinlætis-
tækjum eru salerni og handlaugar
í fallegum litum, sem hafa verið
svakalega vinsæl hjá okkur. Við
bíðum núna spennt eftir að fá
salerni og handlaugar í bleiku,
sem eru að koma í hús, en á þessu
ári verður litaúrvalið sérstaklega
skemmtilegt. Það er búið að vera
mikið um svart og matt, hvítt en er
núna að færast yfir í bleikt,“ segir
Íris og hlær.
„Hreinlætistækin sem fást hjá
Innréttingum & tækjum eru að
mestu frá Globo, sem er ítalskt
fyrirtæki. Fólk á öllum aldri hefur
mikinn áhuga á því að breyta, til að
fá hreinlætistæki í skemmtilegum
lit.“ Hreinlætistækin frá Globo eru
einstaklega smekkleg og stílhrein.
„Ef fólk vill lífga upp á baðherberg-
in hjá sér eru hreinlætistækin frá
Globo algjörlega málið,“ segir Íris.
KYNNINGARBLAÐ 11 F I M MT U DAG U R 1 2 . M A R S 2 0 2 0 VERK OG VIT