Fréttablaðið - 12.03.2020, Síða 56
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Hornsófi Chicago
2 horn 3, hægt að panta sem tungusófa,
U sófa eða bara eins og hentar.
Ársfundur 2020
fimmtudaginn 26. mars
- Heildareignir: 269 milljarðar
- Skráðir sjóðfélagar: 49 þúsund
- Hæsta nafnávöxtun 2019: 17,6%
- Hæsta raunávöxtun á ári sl. 10 ár: 5,7%
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 26. mars 2020 kl. 17:15
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur 2019 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
3. Kynning á fjárfestingarstefnu.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um laun stjórnar.
8. Önnur mál.
Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðs-
frestur rennur út þann 19. mars 2020. Hægt er að senda inn framboð á netfangið
almenni@almenni.is.
Ársreikningur, tillögur um breytingar á samþykktum og nánari upplýsingar um árs-
fundinn eru á heimasíðu sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Nánar á:
www.almenni.is
- A.m.k. 1/3 skyldusparnaðar í séreign
- Hagstæð lífeyrisréttindi
- Daglegt gengi ávöxtunarleiða á heimasíðu
- Sjö ávöxtunarleiðir í boði
Almenni í hnotskurn
KVIKMYNDIR
Pain and Glory
Leikstjórn: Pedro Almodovar
Aðalhlutverk: Antonio Banderas,
Penélope Cruz, Asier Etxeandia,
Nora Navas
Spænsku félagarnir Pedro Almo
dovar og Antonio Banderas hafa
gert átta kvikmyndir saman á
síðustu 40 árum og ferlar beggja
eru svo samofnir að hvor á hinum
margt að þakka. Líklega rísa þeir
þó einna hæst í Pain and Glory sem
var frumsýnd í fyrra en ratar nú
loksins í kvikmyndahús á Íslandi.
Banderas leikur hér þunglynda
kvikmyndaleikstjórann Salvador
Mallo sem má muna sinn fífil feg
urri en Almodovar byggir myndina
lauslega á eigin lífi og engum blöð
um er um það að f letta að Pain and
Glory er persónulegasta verk hans
til þessa.
Klæðaburður og hárgreiðsla
Salvadors taka af öll tvímæli um
að persónan er byggð á Almodovar
sjálfum auk þess sem sum atriði
myndarinnar voru tekin á heimili
leikstjórans.
Líkami Salvadors virðist, eins
og hugur hans, hafa gefist upp á
honum. Hann þjáist af mígreni og
verkjum í hné og baki svo eitthvað
sé nefnt. Auk þess fær hann einn
ig dularfull köfnunarköst þannig
að það eitt að drekka vatn getur
reynst honum lífshættulegt.
Líf í filmuflækju
Salvador virðist hafa misst lífs
viljann og sjónar á tilgangi tilveru
sinnar þar sem hann lítur á kvik
myndagerðina sem upphaf og
endi lífsins. Þar sem hann getur
ekki einu sinni
r e i m að á s ig
skóna ák veður
hann að hann
hafi ekki heilsu
til þess að leik
stýra og f lækir
sig í þeirri þver
sögn að sársauki
sé oftar en ekki
góður innblást
ur til listsköp
unar.
Sagan sækir
d r i f k r a f t i n n
þv í í f o r n a
frægð og áform
um að endur
sýna myndina
Sabor, eða Bragð, sem
Salvador gerði þegar
hann var á hát indi
ferilsins. Þessi upphefð
verður til þess að hann
endurnýjar kynni sín
við aðalleikara myndar
innar sem hann hefur
ek k i talað v ið síðan
myndin var frumsýnd
fyrir þrjátíu árum.
Allt fram streymir
Þegar Salvador horfir til
fortíðar minnist hann
fábrotinnar barnæsku,
fjölskyldu og ástvina sem
allir eru horfnir á braut. Myndin
líður áfram þegar eitt leiðir snilld
arlega af öðru og við stökkvum
fram og aftur í tíma á meðan sögu
þráðurinn f læðir áreynslulaust
eins og vatnið sem ávallt er til
staðar í myndinni.
Antonio Banderas var mjög svo
verðskuldað tilnefndur til Óskars
verðlaunanna fyrir leik sinn í
myndinni enda var hann víða val
inn besti leikari síðasta árs fyrir
þann stórleik sem hann sýnir sem
hinn þjakaði Salvador.
Lífið og listin…
Banderas tjáir tilf inningar per
sónunnar, andlegan og líkamlegan
sársauka, best með því að sýna
þær ekki. Salvador er alveg tómur
nema þegar hann hugsar um for
tíðina eða hittir gamlan elskhuga.
Enda segir hann sjálfur í myndinni
að bestu leikararnir þurfi ekki að
gráta til þess að sýna tilfinningar.
Almodovar ræðst hér síður en
svo á garðinn þar sem hann er
lægstur enda eru efnistök myndar
innar ansi umfangsmikil þar sem
Pain and Glory fjallar um listina,
minningar, ástina, lífið og dauðann
um leið og hún er óður til kvik
myndagerðarinnar.
… og allt þar á milli
Eina raunverulega athugasemdin
sem hægt er að gera við myndina
liggur einmitt í þessum breiðu
efnistökum þar sem finna má að
því að það vanti einhvers konar ris
í söguna.
Áhorfandinn bíður skólaður í
línulaga uppeldi eftir einhverjum
mikilfenglegum eða tilfinninga
þrungnum atburði sem aldrei
kemur. En kannski er það einmitt
ætlunarverk Almodovars og kjarn
inn í sögu hans og lífinu. Maður
lætur sig dreyma um ýmislegt sem
aldrei gerist eða rætist því lífið er
ekki bíómynd.
Edda Karítas Baldursdóttir
NIÐURSTAÐA: Leikstjórinn Pedro
Almodovar á sinn De Niro og Leon-
ardo Di Caprio í Antonio Banderas.
Þeir hafa stillt saman strengi sína með
átta kvikmyndum á 40 árum og hafa
líklega aldrei risið hærra en í þessari
persónulegustu mynd Almodovars
þar sem Banderas sýnir stórleik sem
leikstjóri sem gerir upp líf sitt.
Táralaust
tilfinningastríð
Pedro Almodovar, Penelope Cruz og Antonio Banderas á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í fyrra. Þar vann Banderas verðlaun fyrir leik sinn í myndinni.
Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í sjötta sinn
dagana 12. til 22. mars í Bíó Paradís.
Dagskrá Stockfish er eins og venju
lega fjölbreytt og metnaðarfull en
Fréttablaðið hefur hér valið fjórar
áhugaverðar myndir sem óhætt er
að mæla með. Á ýmsum og ólíkum
forsendum.
Frekari upplýsingar um mynd
irnar og dagskrána má finna á
heimasíðu hátíðarinnar, stockfish
festival. is
n Arracht Fyrsta leikstjórnarverk-
efni leikarans Toms O’Sullivan
gerist á Írlandi 1845 og fjallar
um heiðarlegan sjómann og
leiguliða, Colman. Fundur hans
og landeigandans um hærri
skatta, þrátt fyrir uppskerubrest
og hungursneyð, endar með
skelfingu þannig að Colman
leggur á flótta fyrir glæp sem
hann framdi ekki.
n Are You Leaving Already?
Norsk mynd tekin í dogma-stíl
sem fjallar um unga konu sem er
laus úr fangelsi. Hún ákveður að
mála yfir horgræna veggi íbúðar
sem faðir hennar lánar henni,
en málurunum sem taka að sér
verkið verður fljótt ljóst að hún
þarfnast hjálpar við ýmislegt
fleira.
n Color Out of Space Mynd gerð
eftir sögu H.P. Lovecraft með
Nicholas Cage í aðalhlutverki.
Útrætt mál. Gardner-fjölskyldan
flyst úr borg í sveit á flótta
undan nútímanum en þegar loft-
steinn lendir í garðinum breytist
lífið í litríka martröð.
n First Love Mynd eftir hinn marg-
rómaða Takashi Miike sem gefur
ekkert eftir í ofbeldi og blóðsút-
hellingum og er hér í fimmta
gír í mynd um sjálfumglaðan
boxara sem verður ástfanginn
af vændiskonu. Saman flækjast
þau inn í stórfellt fíkniefnasmygl
á vegum skipulagðra glæpasam-
taka. 97% á Rotten Tomatoes.
Fjórar áhugaverðar á Stockfish
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ