Fréttablaðið - 14.03.2020, Síða 4
Guðni mætti í sýnatöku Veður
Norðlæg átt 8-15 í nótt og él, en
hægari og léttskýjað að mestu
sunnantil. Dregur úr vindi og ofan-
komu í dag og kólnar. Léttskýjað
víðast hvar í kvöld og talsvert frost
SJÁ SÍÐU 40
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
COVID -19 Sigurbjörn Árni Arn
grímsson, skólameistari Framhalds
skólans á Laugum, þarf að senda alla
rúmlega hundrað nemendur skólans
á braut. Af þeim eru 66 í heimavist.
„Það hefði verið snilld að fá tölvu
póst kvöldið áður um að ég þyrfti að
loka skólanum og senda nemendur
heim,“ segir Sigurbjörn Árni. Vegna
slæmrar færðar víða um land sé óvíst
að takist að koma öllum nemendum
til síns heima áður en samkomu
bannið tekur gildi. Tæpur helmingur
nemenda skólans sé frá svæðinu milli
Vopnafjarðar og Eyjafjarðar. Flestir
hinna séu af höfuðborgarsvæðinu.
Sigurbjörn Árni segir nemendur
skólans verða áfram í námi að heim
an þótt ekki verði unnt að fjarkenna
allar greinar. „Kennsla í bandí fellur
til dæmis niður,“ segir hann.
Sigurbjörn kveðst þó mjög ánægð
ur með framgöngu stjórnvalda.
„Þótt það hefði verið gott að fá smá
fyrirvara er ég bara smápeð að stýra
litlum skóla úti á landi og ætlast ekki
til þess að ég sé efstur í forgangi.“
Margar spurningar vakna, segir
Sigurbjörn Árni. Til dæmis reki
skólinn stórt mötuneyti fyrir heima
vistarnemendur. Launakostnaður
þar hverfi ekki þótt allar greiðslur
fyrir fæði falli niður í heilan mánuð.
„Við munum halda úti f jar
kennslu og stuðningi við nemendur
á fjölbreytilegan máta. Þannig að við
höldum sambandi við nemendur og
nemendur við okkur,“ segir Jón Már
Héðinsson, skólameistari Mennta
skólans á Akureyri.
Stúdentsefni í MA eiga að geta
lokið námi á tilsettum tíma í vor.
„Við reynum að halda uppi starfinu
svo nemendur séu virkir í sínu námi
þó svo það sé í fjarnámi,“ segir Jón
Már. Nemendur og starfsfólk taki
stöðunni af miklu æðruleysi.
„Það gerir sér grein fyrir því að
þetta eru óvenjulegar aðstæður og
að það skiptir öllu máli að allir legg
ist á eitt og leysi þetta í sameiningu.
Ef eitthvað er þá held ég að þetta
þjappi fólki saman að sýna sam
kennd og samstöðu,“ undirstrikar
skólameistarinn.
Að sögn Jóns Más verður heima
vist MA og Verkmenntaskólans
vísast lokað. Þar eru í vist um þrjú
hundruð nemendur sem þurfa þá
að snúa til síns heima. „Sumir eiga
um langan veg að fara og jafnvel til
útlanda. Það er óvíst með það en við
reynum að leysa það með stjórn
endum heimavistarinnar.“
Árni Ólason, skólameistari
Menntaskólans á Egilsstöðum, segir
alla áfanga skólans á kennsluvef.
Skólinn og nemendur hans séu því
vel undir þessi umskipti búin.
„Síðan munu kennarar skólans
gera sitt besta að halda áður dag
skólanemum í góðri virkni gegnum
hinar ýmsu tæknilausnir,“ segir
hann. Námið verði allt á áætlun.
„Það eru um 185 dagskólanemar í
ME á vorönn og tæplega 500 nemar
í fjarnámi en þeir halda auðvitað
sínu striki.“
Heimavist og mötuneyti verður
lokað. „Ég veit ekki annað en að
þessir rúmlega 50 heimavistarbúar
geti snúi vandræðalaust til síns
heima innan þess tímaramma sem
settur er.“
adalheidur@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Nemendum gert að
yfirgefa heimavistir
Samkomubann sem tekur gildi á mánudaginn leiðir til þess að háskólar og
framhaldsskólar loka á nemendur en halda áfram kennslu í fjarnámi. Fjöl-
margir sem dvelja á heimavistum þurfa að rýma þær og halda til síns heima.
Framhaldsskólinn á Laugum sendir um eitt hundrað nemendur sína heim.
Jón Már Héðins-
son, skólameist-
ari Menntaskól-
ans á Akureyri.
Sigurbjörn Árni
Arngrímsson,
skólameistari
Framhaldsskól-
ans á Laugum.
Skimun Íslenskrar erfðagreiningar fyrir kórónaveirunni hófst í Turninum í Kópavogi í gær. Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid,
voru meðal þeirra 500 sem komu í sýnatöku fyrsta daginn. Haldið verður áfram alla helgina og er gert ráð fyrir að næstu daga verði hægt að taka
sýni hjá um þúsund manns á dag. Alls hafa nú um 16 þúsund manns skráð sig í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FERÐAÞJÓNUSTA Eva María Þór
arinsdóttir Lange, einn eigenda
íslensku ferðaskrifstofunnar Pink
Iceland, segir að tekjur upp á um
60 milljónir króna séu í uppnámi
vegna ákvörðunar Donalds Trump
Bandaríkjaforseta um ferðabann til
Íslands og annarra Evrópulanda.
Pink Iceland sérhæfir sig í ferðum
fyrir hinsegin túrista og þá sérstak
lega brúðkaupsferðum. Oft á tíðum
er um stóra hópa að ræða en um 80
prósent viðskiptavina fyrirtækisins
koma frá Bandaríkjunum.
„Þessi tíðindi voru gríðarlegt
högg og líklega á þessi dagur eftir
að verða mjög minnisstæður þegar
fram í sækir,“ segir Eva María. Það
er ekki bara fyrirtæki hennar sem
verður mögulega af tekjum heldur
fjölmargir aðrir aðilar sem bjóða
upp á fjölbreytta þjónustu fyrir
gesti Pink Iceland. „Þetta eru gisti
staðir, veitingastaðir, tónlistarfólk
og aðilar í ferðaþjónustu,“ segir Eva
María.
Hún segir að fyrirtækið hafi strax
ráðist í fyrirbyggjandi aðgerðir til að
reyna að lágmarka tjónið. „Þegar tíð
indin lágu fyrir sendum við strax út
póst á alla okkar viðskiptavini með
hugmyndir að lausnum. Við bentum
á þann mögulega að fresta viðburð
um frekar en aflýsa þeim og bentum
á það hversu lítið og þar með sveigj
anlegt íslenskt samfélag er til þess að
bregðast við svona aðstæðum. Það
hefur rignt inn skilaboðum og við
verðum ekki vör við annað en þessu
erindi okkar hafi verið vel tekið. Við
verðum því að vera bjartsýn um að
við náum að takmarka tjónið,“ segir
Eva María. – bþ
Um 60 milljóna
tekjur í uppnámi
Eva María
Þórarinsdóttir
Lange.
REYK JAVÍK Óundirbúnar fyrir
spurnir verða á dagskrá borgar
stjórnarfunda í tilraunaskyni frá því
að sumarleyfi lýkur og til ársloka.
Þetta var samþykkt á fundi forsæt
isnefndar í gær. Verða fimm fyrir
spurnir á hverjum fundi og skal að
jafnaði beina þeim til borgarstjóra.
Þó verður heimilt að spyrja borgar
fulltrúa, fallist hann á það.
„Þessi nýbreytni mun verða liður í
að gera borgarstjórnarfundina skil
virkari og sveigjanlegri, auka upplýs
ingaflæði, gagnsæi og glæða áhuga
almennings og fjölmiðla á borgar
málefnum,“ segir í bókun Mörtu
Guðjónsdóttur, fulltrúa Sjálfstæðis
flokksins, sem flutti tillöguna. – sar
Gera tilraun
með fyrirspurnir
Marta
Guðjónsdóttir.
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð