Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 24
Ný kvikmynd á leiðinni
Um þessar mundir standa yfir tökur
á nýrri kvikmynd Tinnu, Skjálfta.
Handritið er byggt á skáldsögu
Auðar Jónsdóttur, Stóra skjálfta,
og er leikstjórn í höndum Tinnu.
Þá skrifaði hún einnig handritið, sá
um leikaraval og tekur þátt í fram-
leiðslu myndarinnar.
„Þegar ég las bókina tengdi ég
strax við aðalpersónuna, Sögu, og
skildi vel hvað hún var að ganga
í gegnum. Það er alltaf gott þegar
maður þekkir á eigin skinni það
sem maður er að skrifa um og ég er
einstaklega þakklát fyrir það traust
sem Auður sýndi mér,“ segir Tinna.
Við gerð handritsins hefur Tinna
aðlagað söguna að hvíta tjaldinu en
kjarninn er sá sami. Skjálfti fjallar
um konu á fertugsaldri sem vaknar
upp eftir að hafa fengið heiftarlegt
f logakast í fyrsta sinn í áraraðir
og finnur ekki son sinn. Við kastið
tapar Saga minni og þarf að kafa
djúpt í fortíðina til að ná tökum á
lífi sínu að nýju.
„Þetta er saga um það þegar þú
kemst á þann tímapunkt í lífinu
þar sem þú verður að staldra við og
horfast í augu við það hver þú ert og
af hverju þú ert eins og þú ert,“ segir
Tinna. „Flogaveikin í þessari sögu
er í raun og veru bara myndlíking
fyrir það ástand sem getur skapast
þegar fólk missir tökin,“ heldur hún
áfram.
Stefnt er að frumsýningu mynd-
arinnar á næsta ári en þrátt fyrir að
tökur standi enn yfir hefur sagan og
þróun myndarinnar hlotið mikið
lof um víða veröld. Tinna var meðal
annars einn af tíu leikstjórum sem
voru valdir til þátttöku á kvik-
myndaleikstjórasmiðju á Kvik-
myndahátíðinni í Toronto (TIFF)
sem er ein stærsta kvikmyndahá-
tíð heims.
„Við Hlín Jóhannesdóttir, fram-
leiðandinn minn, fengum ótrúlega
jákvæðar viðtökur í þróunarferlinu
því þetta er saga sem talar til svo
margra,“ segir Tinna.
Ásamt því að vinna að Skjálfta
hefur Tinna tekið að sér hin ýmsu
verkefni að undanförnu og var hún
meðal annars vikulegur gestur í
sjónvörpum landsmanna á sunnu-
dögum í vetur þar sem hún fór með
hlutverk lögreglukonunnar Helgu í
sjónvarpsþáttaröðinni Brot. Þá fer
hún einnig með hlutverk í þáttaröð-
inni Ráðherrann sem sýnd verður á
RÚV næsta haust.
Hlutverk í danskri stórmynd
Nýlega hlotnaðist Tinnu einnig
hlutverk í danskri stórmynd um
ævi Margrétar fyrstu drottningar.
Tökur á myndinni standa nú yfir
í Prag og fer Tinna með hlutverk
aðstoðarkonu drottningar.
„Flest Norðurlöndin kom að
framleiðslunni. Þarna er ég í hópi
reyndra leikara og fæ að leika á móti
Trine Dyrholm sem er ein af mínum
uppáhaldsleikkonum,“ segir Tinna
og brosir út að eyrum. „Síðan verður
gerð þriggja þátta sería upp úr efn-
inu svo saga Margrétar mun fara
víða.“
Landsmenn þekkja margir Dyr-
holm úr þáttaröðinni Erfingjarnir
Tinna segist afar spennt fyrir þeim verkefnum sem eru fram undan og sérstaklega því að prufa í fyrsta sinn að starfa erlendis. Það segir hún geta opnað sér ýmsar dyr. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á ÁKVEÐNU TÍMABILI FÓR
ÉG Í MIKLA SJÁLFSSKOÐUN
OG KOMST AÐ ÞVÍ HVERSU
MIKILVÆGT ÞAÐ ER AÐ
SETJA MÖRK.
Í framtíðinni sér Tinna fyrir sér að bæði leika og leikstýra. Hún leikstýrir nú
kvikmyndinni Skjálfta, sinni fyrstu mynd í fullri lengd. MYND/LILJA JÓNSD.
Þegar Tinna varð ólétt að tvíburunum Starkaði Mána og Jökli Þór eftir að
hafa reynt að eignast barn í fimm ár, rættist draumur hennar. MYND/AÐSEND
sem sýnd var hér á landi fyrir
nokkrum árum, en þar fór hún með
hlutverk Gro Grønnegaard . Þá fara
meðal annars Simon J. Berger úr
norsku þáttunum Exit og danski
leikarinn Søren Malling einnig með
stór hlutverk.
Hlutverk Tinnu í myndinni felur
í sér mikil ferðalög og mikla vinnu.
Hún segir það hafa verið erfiða
ákvörðun að taka hlutverkinu en að
hún sé afar spennt fyrir verkefninu.
„Þetta kemur auðvitað á sama tíma
og ég er að vinna að Skjálfta svo
fram að páskum verð ég vonandi
til skiptist í tökum í Prag og hér á
Íslandi, ef kórónaveiran setur ekki
strik í reikninginn,“ segir hún.
Langar bæði að leika
og leikstýra meira
„Mér hefur þó hlotnast óvenju
mikið af hlutverkum upp á síð-
kastið en ég hélt að þegar ég byrjaði
að leikstýra myndi fólk endan-
lega afskrifa mig sem leikkonu
en hið gagnstæða gerðist,“ segir
hún. „Ég er líka sérstaklega spennt
fyrir því að fá núna tækifæri til að
vinna erlendis. Þar mun ég kynn-
ast aðilum sem eflaust geta kennt
mér mikið og mögulega opnað ein-
hverjar dyr sem gætu hjálpað mér
í framtíðinni. Þetta verður álag en
ég er tilbúin í þetta og hef mikla trú
á báðum verkefnum því það er svo
gott fólk með mér,“ segir Tinna.
Aðspurð að því hvað sé á dagskrá
þegar törninni lýkur segir Tinna
að sig langi til að leika og leikstýra
meira. „Kannski mun mér einhvern
tímann bjóðast að vinna í öðru
hvoru stofnanaleikhúsinu, ég á enn
eftir að tékka í það box,“ segir hún
og hlær. „En með fram þessu er ég að
þróa sjónvarpsseríu með Ottó Geir
Borg vini mínum sem ber vinnutit-
ilinn Heima er best og er þegar farin
að leggja drög að næstu kvikmynd.
En fæðing barnanna minna var
minn stærsti draumur svo ég dey
sátt ef verkefnin verða ekki f leiri.“
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð