Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 26
ÞAÐ ER SVO SKONDIÐ
HVERNIG VIÐ ERUM
ALLTAF Í ÞESSU ÁÞREIFAN-
LEGA EN SVO ER ÞAÐ
KANNSKI BARA SÁLIN
SEM GERIR LÍKAMANN
ÞREYTTAN.
Hjördís hefur unnið í um fimm ár að und-irbúningi borgar-garðsins ALDIN Biodome sem sam-þykkt hefur verið
að rísi í Löngugróf í suðurjaðri Ell-
iðaárdals. Loks virðist sjá fyrir end-
ann á verkefninu sem töluverður
styr hefur staðið um.
En hver er þessi stórhuga kona sem
barist hefur fyrir því að reistur verði
yfirbyggður garður innan borgarinn-
ar með það að markmiði að þar fari
fram matjurtaræktun í gróðursælu
umhverfi og borgarbúar geti þar sótt
sér andlega sem líkamlega næringu?
„Ég er alin upp í sveit, nánar til-
tekið að Kastalabrekku í Ásahreppi,
og hafði uppvöxturinn í sveitinni
mikil áhrif á persónu mína. Ég lærði
síðar matvælafræði og starfaði við
gæðastjórnun í matvælaiðnaðinum
í um áratug. Áhugi minn fór svo að
beinast frekar að samspili manns
og umhverfis og hvernig umhverfið
hefur áhrif á líðan okkar.“ Hjördís
ákvað því að bæta við sig menntun
í umhverfisskipulagi við Háskólann
á Hvanneyri og segir það hafa opnað
sýn sína á margt. „Ég lærði betur á
sjálfa mig en á þessum tíma fór ég
einnig í gegnum erfiðan skilnað.“
Eftir útskriftina hélt Hjördís utan í
MSc-nám í landslagsarkitektúr og
skipulagi við Wageningen-háskóla
í austurhluta Hollands.
Í meistaranám erlendis
ein með fjögur börn
Börn Hjördísar voru þá 5, 7, 13 og 15
ára og viðurkennir hún að það hafi
verið áskorun að rífa sig upp ein með
ung börn en það hafi hjálpað sér
að ofhugsa það ekki á þeim tíma-
punkti. „Það var visst frelsi fólgið í
því að komast í burtu. Þetta var mjög
erfiður skilnaður sem tók á okkur
öll og því var gott að skipta alfarið
um umhverfi. Það gekk mjög vel
úti og námið hjálpaði mér að halda
fókus enda var ég að púsla saman
fjölmörgum hlutum og með margt á
minni könnu. Börnin æfðu fótbolta
og um helgar var ég í því að keyra
þau á leiki í öðrum bæjum. Þess á
milli stóð bíllinn kyrr og maður fór
hjólandi allra sinna ferða,“ rifjar
Hjördís upp og segist hafa kynnst
umhverfi sínu á allt annan hátt en
þegar ekið er á milli staða.
Brotnaði saman
yfir ósóttu rusli
Hjördís segir að börnunum hafi
gengið vel á nýjum stað og þau
þurft að læra tungumálið á stuttum
tíma enda gengið í barnaskóla sem
sérhæfði sig í kennslu tvítyngdra
barna með fjölbreyttan menning-
arlegan bakgrunn. Hollendingar
tóku fjölskyldunni vel en á köflum
var álagið eðlilega mikið. „Ég man
eftir einu augnabliki þegar ég hafði
haft ansi margt á minni könnu, enda
að mörgu að huga við að koma sér
inn í nýtt samfélag. Það var komið
að rusla-afhendingardegi sem var
einu sinni í viku en þá átti maður
að fara með flokkaðar tunnur út á
gangstétt. Ég var búin að passa þetta
vel – hver ruslategund með sinn
afhendingardag. Þegar ég kom svo
heim úr skólanum var mín tunna
ein eftir ótæmd. Ég bara brotnaði
saman og fór að gráta,“ rifjar Hjördís
upp hlæjandi. „Það þurfti ekki meira
til á þessum tímapunkti.“
Hugmyndin spratt
úr kúrs í náminu
Hjördís segir einn kúrsinn í náminu
hafa haft sérlega mótandi áhrif á sig.
„Þá fengum við sem hópur í hend-
urnar eyju sem við áttum að skipu-
leggja út frá hámarksnýtingu orku
og efnis, með því að stilla saman
orkuuppsprettu og orkunýtingu
hlið við hlið og loka þannig öllum
ferlum. Þetta var ótrúlega áhugavert
verkefni í anda hringrásarhagkerf-
isins. Undir lok þess gerði ég rann-
sókn á borgarbúskap, eða „urban
farming“, í Detroit og Rotterdam.
Á þessum tíma voru haldnar ráð-
stefnur um hvort borgir gætu fætt
sig sjálfar, framleitt sjálfar matvæli
fyrir íbúa sína og stuðlað þannig að
meiri sjálfbærni. Þetta vakti mikinn
áhuga hjá mér og ekki síst land-
notkunarsiðfræðin sem lögð var
áhersla á. Þegar ég kortlagði þessa
ferla sýndu niðurstöður að áhrifin á
samfélagið væru gríðarlega jákvæð.
Í framhaldinu gat ég ekki hætt að
hugsa hvernig þetta gæti passað
okkur Íslendingum. Þegar maður
býr erlendis og sér Ísland úr fjarlægð
lærir maður mikið um landið sitt
ekki síður en sjálfan sig, áskoranir
og tækifæri.“
Reynslan sem
aðstandandi hafði áhrif
Hugmyndin að borgargarðinum
þróaðist í huga Hjördísar og hún
sótti um þátttöku í Startup Reykja-
vík viðskiptahraðlinum árið 2015 og
var samþykkt sem þátttakandi. Þá
fór boltinn að rúlla.
Samkvæmt heimasíðu ALDIN
Biodome er ætlunin að bjóða upp
á stað þar sem hægt verður að nýta
tímann til íhugunar, fræðslu, versla
með ferskar matjurtir beint af beði,
njóta á kaffihúsum og fleira. Hug-
myndin er að fólk kaupi sér aðild að
garðinum og lofar Hjördís hófstilltu
verði. „Aðild ætti að kosta um það
bil tíu sinnum minna en aðgangur
í líkamsræktarstöð. Ég sé fyrir mér
að þetta geti verið staður þar sem til
dæmis eldra fólk getur farið í göngu
innandyra eftir fallegum leiðum
þegar það kannski treystir sér ekki
út í veturinn.“
Hjördís bendir einnig á að kvíði sé
sífellt að verða algengari meðal ungs
fólks og það sé hennar markmið að
garðurinn verði uppbyggjandi og
róandi staður. „Þessi fimm ár frá því
að hugmyndin að verkefninu kvikn-
aði hef ég jafnframt verið aðstand-
andi einstaklings með fíkni- og geð-
röskun og það hefur haft mikil áhrif
á þróun ALDIN Biodome og löngun
mína til að vinna að vellíðan fólks.“
Strangir staðlar um sjálfbærni
Ég var svo heppin að vorið 2017 var
skrifuð grein um verkefnið, eftir að
ég fékk verðlaun frá Alþjóðlegum
samtökum uppfinningakvenna og
frumkvöðla. Þar fékk ALDIN Bio-
dome viðurkenningu sem framúr-
skarandi samfélagsverkefni og
nýsköpun og þá opnuðust dyrnar
að alþjóðlegu hönnunarteymi. Þetta
fólk hefur gert svipaða hluti áður,
þau hafa ástríðu fyrir verkefninu
og það er svo sannarlega gefandi að
vinna með svoleiðis fólki.“ Hjördís
segir verkefnið falla einkar vel að
sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna. „Hönnunarteymi okkar
hefur reynslu af svipuðum verkefn-
um og munum við vinna það út frá
ströngum stöðlum um sjálf bærni
og heilsusamleg mannvirki. Það
Hefur lagt
allt undir
Hjördís Sigurðardóttir reif sig upp eftir erf-
iðan skilnað og flutti ásamt börnum sínum
fjórum til Hollands þar sem hún tók MSc
í skipulagsfræði. Þar fékk hún hugmynd
að borgargarðinum ALDIN Biodome sem
stefnt er á að verði að veruleika árið 2023.
Hjördís Sigurðardóttir hefur unnið að því að koma upp borgargarði í fimm ár en persónuleg reynsla hennar hefur haft áhrif á verkefnið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð