Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 32
Taco er í
uppáhaldi hjá
mörgum, eins
og aðrir mexí-
kóskir réttir.
Maður var búinn
að frétta í hádegis-
hléinu að einhver væri
sýktur. Stuttu seinna
fengum við póst um að
sá aðili væri í tíma með
okkur og svo í tímanum
kemur rektorinn. Maður
átti smá von á þessu en
samt ekki. Þetta var
skrítið.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi
LIÐVERKIR, STIRÐLEIKI
EÐA BRAK Í LIÐUM?
2-3ja
mánaða skammtur í hverju glasi
Hringur er bæði í námi og vinnu og hefur sóttkvíin því umtalsverð áhrif á
hans daglega líf. „Ég er 17 ára, bý
í Vesturbænum og er á fyrsta ári í
MH. Er líka í hlutastarfi í Hagkaup
á Eiðistorgi.“
Fékk símtal frá landlækni
Samnemandi Hrings reyndist
sýktur. „Ég var í tíma með öðrum
nemanda sem mætti í skólann án
þess að vita að hann væri smitaður
af Covid-19. Á þriðjudeginum
fer ég í tíma og rektorinn kemur
inn og segir okkur frá þessu. Svo
sendir hann okkur bara beint
heim í sóttkví.“
Hann segir upplifunina hafa
verið óþægilega. „Þetta var frekar
óþægilegt, það var mjög mikill
óróleiki í herberginu og smá sjokk
fyrir alla að meðtaka þetta. Maður
var búinn að frétta í hádegishléinu
að einhver væri sýktur. Stuttu
seinna fengum við póst um að sá
aðili væri í tíma með okkur og svo í
tímanum kemur rektorinn. Maður
átti smá von á þessu en samt ekki.
Þetta var skrítið.“
Sem betur fer hefur Hringur ekki
fundið fyrir einkennum og daginn
eftir að sóttkvíin hófst fékk hann
símtal frá yfirvöldum. „Landlækn-
ir hringdi í mig á miðvikudag og
gaf mér leiðbeiningar, ef ég byrjaði
að finna fyrir einkennum þá ætti
ég að koma beinustu leið í prufu og
sýnistöku og eitthvað svona.“
Sóttkví og sambýlisfólk
Eins og flestir 17 ára nemendur
býr Hringur heima hjá foreldrum
sínum sem eru þó ekki í sóttkví.
Ástandið hefur því haft töluverð
áhrif á heimilislífið. „Þetta hefur
töluverð áhrif á mitt daglega líf því
ég er kominn í sóttkví til 24. mars.
Mamma og pabbi eru ekki í sóttkví
því einungis er um varúðarráð-
stöfun að ræða.“
Þetta hefur þó gengið að óskum.
„Það hefur gengið vel, við erum
að reyna að halda þessari tveggja
metra fjarlægð sem okkur var ráð-
lagt að hafa. Við reynum að passa
okkur, að nota ekki sömu glösin og
svona. Þetta hefur alveg smá áhrif
en ekkert það mikil. Ég borða alveg
Fúlt að hitta ekki vinina
Hringur Einarsson er einn þeirra nemenda í MH sem voru settir í sóttkví á dögunum. Sóttkvíin
hefur gengið áfallalaust fyrir sig, hann stundar nú fjarnám en fjarveran frá vinunum er þó erfið.
Hringur Einarsson, nemandi í MH, tekur ástandinu með æðruleysi og fer samviskusamlega eftir fyrirmælum frá landlækni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
inni í eldhúsi, það er bara búið
að setja á diskinn og ég er ekki að
fikta í neinu.“
Þá reynir hann að viðra sig en
fer þó samviskusamlega eftir
fyrirmælunum sem honum voru
gefin. „Ég má fara út í göngutúr
en ef ég mæti einhverjum þá fer
ég bara yfir á hina gangstéttina.
Ég má ekki fara í búð og svona, fer
einstaka sinnum út með hundinn
og passa mig þá bara að halda mig í
hæfilegri fjarlægð frá öllum.“
Námið heldur áfram
Hann segir fjarnámið hafa gengið
vel. „Ég er búin að fá fullt af leið-
beiningum frá kennurum og fæ
að sofa meira út því ég get lært
hvenær sem ég vil, þetta er mjög
þægilegt fjarnám. Ég reyni bara
að standa mig. Það er aðallega fúlt
að hitta ekki vinina, er farinn að
sakna þeirra frekar mikið.“
Aðspurður að því hvort þetta sé
eins og hálfgert stofufangelsi segir
Hringur svo vera. „Já, smá. Það má
eiginlega bara túlka það þannig.“
Hann saknar líka litlu hlutanna,
eins og skjótast út í búð. „Ég sakna
þess að fara út í búð. Stundum
langar mann í nammi.“
Hann er brattur og heldur ró
sinni. „Mér líður bara vel og reyni
bara að taka þessu öllu með mikilli
ró, en til að byrja með var þetta
alveg smá sjokk og það tók smá
tíma að meðtaka þessar fréttir.
Ég reyni helst að einbeita mér að
skólaverkefnum því námið heldur
áfram þótt ég sé í sóttkví. Þetta
ástand gefur manni samt tækifæri
til að sofa út, spila tölvuleiki og
svoleiðis. Netflix hjálpar líka við
þessar aðstæður.“
Hvað tekur við að lokinni
sóttkví? „Bara reyna hitta sem
flesta vini mína.“
Ef maður á kjúkling í frysti er einfalt að útbúa gómsæta rétti á margvíslegan hátt. Ágætt
er að eiga líka tortilla-kökur, jafnt
minni sem stærri. Hér er skemmti-
legur mexíkóskur réttur með
heimagerðu guacamole, ananas og
chilli. Uppskriftin miðast við sex
manns.
Kjúklingur með sesam
4 kjúklingabringur
2 msk. maizena-mjöl
1 ½ msk. sojasósa
8 msk. sesamfræ
2 msk. olía
Skerið kjúklinginn í strimla og
veltið upp úr maizena-mjölinu.
Vætið hann með sojasósu og
látið standa í 30 mínútur. Rúllið
kjúklingnum síðan upp úr sesam-
fræjunum og steikið í olíu í 3-4
mínútur.
Kjúklingur í mjúku taco
Guacamole
2 lárperur
1 hvítlauksrif
½ grænn chilli-pipar,
fræhreinsaður
Safi úr ½ límónu
½ dl olía
Ferskt kóríander
Salt og pipar
Maukið allt með töfrasprota.
Salsa
½ ferskur ananas, skorinn smátt
1 rauður chilli-pipar, fræhreins-
aður og skorinn smátt
1 msk. olía
Salt og pipar
Blandið öllu vel saman.
Hitið tortillakökur á pönnu og
fyllið þær með salati, kjúklingi,
guacamole og salsa.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R