Fréttablaðið - 14.03.2020, Síða 41
ASKO hefur fært Norðmönnum matvörur fra árinu 1866 og telur í dag 3300 starfs-
menn. ASKO starfrækir 13 útibú víða um Noreg, Frá Lillesand i suðri til Tromsø í
norðri.
ASKO Rogland AS er leiðandi heildsölu- og dreifingarfyrirtæki með yfir
5 milljarða veltu árlega.
Markaðurinn eru matvöruverslanir, birgjar, mötuneyti og veitingahús innan
svæðissins frá Bømlo í norðri og allt til Moi i suðri. Fyrirtækið sjálft er staðsett í
Skurve i Gjesdal (ca 30 mínútur fra Stavanger).
Blundar ævintýraþráin í þér?
Við óskum eftir íslenskum
atvinnubílstjórum í sumar!
Við bjóðum:
• Örugga vinnu frá 1.júní og út ágúst og jafnvel fasta vinnu
eftir sumarið
• Flug til Noregs (svo fremi sem unnið er út samningstíma)
• Húsnæði til leigu, í göngufæri við fyrirtækið
• Aðgang að æfingasal, squashsal og sauna
• Íslenskan tengilið
Hæfniskröfur:
• Ökuréttindaflokkur C og CE (meiraprófið)
• Vandvirkni, þjónustulipurð og snyrtimennska
• Reynsla
• Góð norsku/sænsku/dönsku -kunnátta eða mjög góð enska
Helstu verkefni:
• Lestun og losun
• Dreifing á vörum til viðskiptavina
• Að vera góður fulltrúi ASKO fyrir viðskiptavini
Nánari upplýsingar veitir Sigrid Thors í síma 0047 95 55 17 17
Áhugasamir sendi stutta ferilskrá ásamt nöfnum og síma-
númerum til meðmælenda til: sigrid.thors@asko.no
Verkefnisstjóri á Ströndum
Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar,
auglýsir eftir verkefnisstjóra á Ströndum. Verkefnisstjóri
gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða
í Strandabyggð ásamt verkefnastjórn og starfar hann
í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og
mannlífs í Strandabyggð. Önnur verkefni verkefnisstjóra
miða að því að laða fjárfestingar til Vestfjarða og fjölga
þar störfum.
Um er að ræða 100% starf sem skiptist í 50% stöðu
verkefnisstjóra Brothættra byggða og 50% önnur verkefni
Vestfjarðastofu.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
• Reynsla af ráðgjöf, fjárfestingum eða atvinnuþróun æskileg
• Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
• Reynsla af rekstri kostur
• Frumkvæði, jákvæðni, sköpunargleði, samstarfsfærni og
sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar
Helstu verkefni:
• Fylgja eftir ákvörðunum verkefnastjórnar
• Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum í byggðunum
• Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfsaðila
• Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
• Gerð viðskiptaáætlana og markaðsgreininga
• Móta tækifæri til atvinnuskapandi fjárfestinga á Vestfjörðum
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfsstöð
verkefnisstjóra verður á Hólmavík. Nánari upplýsingar má finna á
www.vestfirdir.is Upplýsingar um verkefnið Brothættar byggðir er að
finna á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is).
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2020.
Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is)
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið: sirry@vestfirdir.is merkt:
Verkefnisstjóri á Ströndum.
VESTFJARÐASTOFA | ÁRNAGÖTU 2-4, 400 ÍSAFJÖRÐUR | VESTFIRDIR.IS
Félagsbústaðir eru stærsta þjónustufyrirtæki á leigumarkaði hérlendis með yfir
2.800 íbúðir til útleigu í Reykjavík. Á skrifstofunni starfa um 25 manns í anda gilda
um samvinnu, virðingu og góða þjónustu. Félagsbústaðir eru í eigu Reykjavíkur-
borgar og eru í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi 2019.
Ferilsskrá og kynningarbréf skal senda Þóru Þorgeirsdóttur, sviðsstjóra þjónustu og samskipta í thora@felagsbustadir.is
Umsóknarfrestur er til og með 25.mars 2020. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.
Félagsbústaðir leita að kraftmiklu og lausnamiðuðu þjónusturáðgjöfum í fjölbreytt þjónustuverkefni. Í boði eru spenn-
andi tækifæri fyrir rétta aðila í að taka þátt í að byggja upp og móta þjónustu og samskipti við leigjendur og samstarfsaðila.
Félagsbústaðir leita að
þjónusturáðgjöfum og sérfræðingi
Félagsbústaðir leita að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði þjónustu við
leigjendur félagsins og samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Móttaka, úrvinnsla og eftirfylgni margskonar fyrirspurna og
erinda í síma og á miðlum fyrirtækisins
• Utanumhald og umsýsla leigusamninga: undirbúningur,
samningagerð og eftirfylgni
• Samskipti og upplýsingagjöf til leigjenda og tengdra aðila
(þjónustumiðstöðva, Reykjavíkurborgar o.fl.)
• Ábyrgð og þátttaka í ýmsum þróunar- og úrbótaverkefnum á
sviði þjónustu og samskipta við leigjendur og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Rík þjónustulund, áhugi á fólki, hlýlegt viðmót og
framúrskarandi samskiptafærni
• Skipulagshæfileikar og lausnamiðuð hugsun
• Færni til að vinna í teymi og vilji til að læra
• Stúdentspróf skilyrði, háskólagráða sem nýtist í starfi er kostur
• Reynsla og þekking af velferðarþjónustu er kostur
• Góð tölvufærni
• Góð íslensku og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Samskipti og samvinna við leigjendur, þjónustumiðstöðvar
Reykjavíkurborgar og tengda aðila
• Afgreiðsla, úrvinnsla og úrlausn erinda s.s. vegna húsreglna-
brota, vanskila, samskiptavanda í fjölbýlishúsum o.fl.
• Ábyrgð og þátttaka í ýmsum þróunar og úrbótaverkefnum á
sviði þjónustu og samskipta við leigjendur og tengda aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í félagsráðgjöf, sálfræði,
félagsfræði eða tengdum greinum
• Reynsla af sambærilegu starfi af sviði velferðarþjónustu
er kostur
• Framúrskarandi samskiptafærni, áhugi á fólki, hlýlegt viðmót
og rík þjónustulund
• Skipulagshæfileikar, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Færni til að vinna í teymi og vilji til að læra
• Góð tölvufærni
• Góð íslensku og enskukunnátta
ERT ÞÚ HJÚKRUNARFRÆÐINGUR SEM HEFUR
ÁHUGA Á AÐ VINNA Í RANNSÓKN Á HEIMSVÍSU?
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi (e. study nurse/study coordinator) í fullt starf við vísindarannsóknina
Blóðskimun til bjargar, skimunarrannsókn og lyfjarannsókn við Læknadeild Háskóla Íslands. Markmið
hennar er að rannsaka árangur skimunar fyrir forstigi mergæxlis. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla
Íslands, Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Binding Site í Bretlandi, Memorial Sloan Kettering krabba-
meinsmiðstöðina í New York og International Myeloma Foundation. Skimað er fyrir forstigi mergæxlis með
blóðprufu og þeim einstaklingum sem greinast með forstig mergæxlis fylgt eftir í klínískri rannsókn.
Þátttakendur eru kallaðir inn í frekari rannsóknir og fá eftirfylgd með reglubundnum hætti. Þeim sem
greinast með mergæxli er hinsvegar boðið að taka þátt í lyfjarannsókn.
Hjúkrunarfræðingar rannsóknarinnar koma bæði að uppvinnslu og eftirfylgd í skimunarrannsókn og uppvinnslu
og meðferð í lyfjarannsókn. Starfið býður upp á einstaka innsýn og reynslu af rannsóknarvinnu og klínísku starfi.
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
• BS-gráða í hjúkrunarfræði, auk íslensks hjúkrunarleyfis
• Reynsla af vinnu við vísindaverkefni er kostur
• Þekking á good clinical practice (GCP) er kostur
• Reynsla af hjúkrun krabbameinsveikra og krabbameins-
lyfjagjöf er kostur
• Reynsla af því að vinna í teymi
• Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
• Framúrskarandi samskiptahæfni, nákvæmni, útsjónarsemi
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka
sér nýjungar á því sviði
Hægt er að sækja um og fá allar
nánari upplýsingar á heimasíðu HÍ:
http://www.hi.is/laus_storf
Umsóknarfrestur er
til og með 23. mars 2020