Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 46
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
SKÓLASTJÓRI FLATASKÓLA
Í GARÐABÆ
gardabaer.is
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf skólastjóra Flataskóla. Skólinn er heilsueflandi grænfánaskóli
með um 485 nemendur á aldrinum 4 - 12 ára.
Lögð er áhersla á öflugt og framsækið skólastarf með áherslu á samfellu í námi barna og samstarfi
milli skólastiga. Flataskóli er einn af fyrstu réttindaskólum UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst með
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gildi skólans eru menntun, árangur og ánægja.
Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars í því
að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Leik- og grunnskólar Garðabæjar skapa sér
sérstöðu í áherslum sínum til að koma sem best á móts við fjölbreyttar þarfir nemenda.
Skólastjóri tekur þátt í að móta metnaðarfullt skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og
framsýnum hætti.
Helstu verkefni:
• Að vera faglegur leiðtogi
• Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórna daglegri starfsemi og hafa forgöngu
um mótun og framgang stefnu skólans
• Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa nútímalegt og frjótt námsumhverfi fyrir alla nemendur
• Að leiða og hvetja starfsfólk með það að markmiði að tryggja sem best vellíðan og árangur nemenda
og starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af kennslu
• Reynsla af starfsmannastjórnun og rekstri
• Framsækni og metnaður til að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Góðir skipulagshæfileikar
• Lipurð og færni í samskiptum
• Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf
• Sveigjanleiki og víðsýni
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá um störf umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og verkefni
sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja
umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér Flataskóla þróast
undir sinni stjórn.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2020. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs,
s. 525 8500, eirikurbjorn@gardabaer.is og Katrín Friðriksdóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi,
s. 525 8500, katrinf@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á
ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið
26. ágúst 2020 til 24. ágúst 2021.
Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð
er að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk
(Fræðimannsíbúð).
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu
Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 14. apríl nk.
Umsóknir um dvöl í
íbúð fræðimanns
í Kaupmannahöfn
2020-2021.
Auglýsing frá Sænsk-íslenska
Samstarfssjóðnum
Árið 2020 verða veittir ferðastyrkir úr Sænsk-íslenska
samstarfssjóðnum til að styðja íslenska þátttakendur
í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að
stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði
vísinda, menntunar og menningar.
Vegna tæknilegra örðugleika hefur umsóknarfrestur
Sænsk-íslenska sjóðsins verið framlengdur til
22. mars 2020.
Er óskað eftir því allar umsóknir verði endursendar skv.
upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
https://svenskislandskafonden.se/
Frekari upplýsingar má einnig finna á tenglinum
https://norden.se/sok-bidrag-fran-
svensk-islandska-samarbetsfonden/
Aðalfundur Skipulagsfræðingafélags Íslands
verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2020 kl: 16:30
að Hallveigarstöðum Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Veitingar
Nánari dagskrá á skipulagsfraedi.is
Félagsmenn eru hvattir til að mæta !
Fundarboð
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is