Fréttablaðið - 14.03.2020, Síða 46

Fréttablaðið - 14.03.2020, Síða 46
 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R SKÓLASTJÓRI FLATASKÓLA Í GARÐABÆ gardabaer.is Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf skólastjóra Flataskóla. Skólinn er heilsueflandi grænfánaskóli með um 485 nemendur á aldrinum 4 - 12 ára. Lögð er áhersla á öflugt og framsækið skólastarf með áherslu á samfellu í námi barna og samstarfi milli skólastiga. Flataskóli er einn af fyrstu réttindaskólum UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gildi skólans eru menntun, árangur og ánægja. Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars í því að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Leik- og grunnskólar Garðabæjar skapa sér sérstöðu í áherslum sínum til að koma sem best á móts við fjölbreyttar þarfir nemenda. Skólastjóri tekur þátt í að móta metnaðarfullt skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og framsýnum hætti. Helstu verkefni: • Að vera faglegur leiðtogi • Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórna daglegri starfsemi og hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu skólans • Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa nútímalegt og frjótt námsumhverfi fyrir alla nemendur • Að leiða og hvetja starfsfólk með það að markmiði að tryggja sem best vellíðan og árangur nemenda og starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af kennslu • Reynsla af starfsmannastjórnun og rekstri • Framsækni og metnaður til að leita nýrra leiða í skólastarfi • Góðir skipulagshæfileikar • Lipurð og færni í samskiptum • Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf • Sveigjanleiki og víðsýni Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá um störf umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og verkefni sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér Flataskóla þróast undir sinni stjórn. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2020. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, s. 525 8500, eirikurbjorn@gardabaer.is og Katrín Friðriksdóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, s. 525 8500, katrinf@gardabaer.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 26. ágúst 2020 til 24. ágúst 2021. Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk (Fræðimannsíbúð). Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 14. apríl nk. Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2020-2021. Auglýsing frá Sænsk-íslenska Samstarfssjóðnum Árið 2020 verða veittir ferðastyrkir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. Vegna tæknilegra örðugleika hefur umsóknarfrestur Sænsk-íslenska sjóðsins verið framlengdur til 22. mars 2020. Er óskað eftir því allar umsóknir verði endursendar skv. upplýsingum á heimasíðu sjóðsins. https://svenskislandskafonden.se/ Frekari upplýsingar má einnig finna á tenglinum https://norden.se/sok-bidrag-fran- svensk-islandska-samarbetsfonden/ Aðalfundur Skipulagsfræðingafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2020 kl: 16:30 að Hallveigarstöðum Túngötu 14, 101 Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Veitingar Nánari dagskrá á skipulagsfraedi.is Félagsmenn eru hvattir til að mæta ! Fundarboð Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.