Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 47
ATVINNUAUGLÝSINGAR 13 L AU G A R DAG U R 1 4 . M A R S 2 0 2 0
Vantar þig starfsfólk?
hagvangur.is
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi með
því að senda ósk um það á irh@verkis.is.
Faxagarður, lagnavinna
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Faxaflóahafna
31. mars kl. 11:00.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið:
Verkið felst í lagningu lagna í jörðu á Austurbakka í Reykjavík
auk uppsetningu á lögnum undir bryggjunni á Faxagarði.
Lagnir verða lagðar frá stofnum Veitna í Austurbakka, í gegnum
stálþil milli Austurbakka og Faxgarðs og að nýrri dreifistöð á
Faxagarði.
Þaðan verða lagðar lagnir að afhendingastöðum veitukerfa úti
á Faxagarði. Allar lagnir sem lagðar eru undir bryggjunni á
Faxgarði verða lagðar í lagnastiga sem festir verða í bryggjuna
neðan frá. Leggja á frárennslis-, hitaveitu-, neysluvatns- og
raflagnir auk lagnastokks fyrir háspennustrengi Veitna. Vinna
fer að miklu leyti fram undir Faxagarði þar sem gætir flóðs og
fjöru og mun því vinnan taka mið af því.
Nokkrar helstu magntölur eru:
Vatnslagnir í jörðu
Einangraðar lagnir undir bryggju
Fráveitulagnir í jörðu
Fráveitulagnir undir bryggju
Hitalagnir í jörðu
Hitalagnir undir bryggju
Raflagnir í jörðu
Raflagnir undir bryggju
Lagnastigar
Afgreiðsluskápar vatns og rafmagns
45 m
220 m
45 m
10 m
45 m
200 m
70 m
1000 m
450 m
3 stk.
BYGGINGAFRÆÐINGUR / TÆKNIFRÆÐINGUR
Vörðufell óskar eftir að ráða byggingafræðing eða tæknifræðing
með víðtæka reynslu af stjórnun framkvæmda í stöðu
verkefnastjóra.
Vörðufell hefur verið starfandi í 15 ár og vinna þar að jafnaði um 15
manns. Fyrirtækið hefur starfsstöðvar á Selfossi og í Reykjavík.
Vegna hinna fjölda verkefna sem framundan eru, viljum við fá til
liðs við okkur afkastamikinn og ábyrgan verkefnastjóra til að hafa
umsjón með hinum fjölbreyttu verkefnum sem fyrirtækið er að
sinna. Auk menntunar er gerð krafa um að viðkomandi hafi að
lágmarki 3-5 ára starfsreynslu í byggingariðnaði.
Allar umsóknir skulu berast í netfang vordufell@vordufell.is
Nánari upplýsingar eru að finna í síma 897-8960, Valdimar
Bjarnason.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Húsasmíðameistari
• Byggingafræðingur
• Verkfræðingur
• Tæknifræðingur
• Iðnfræðingur
• Eða öðru sambærilegu
Viðkomandi þarf að:
• Vera skipulagður og vinnusamur
• Hafa gott vald á rituðu máli
• Búa yfir lipurð í samskiptum
• Hafa góða kunnáttu á öllum helstu
tölvuforritum
Í starfinu felst m.a.:
• Verkefnastjórnun
• Byggingastjórn
• Ástandsgreining og eftirlit
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í sínu um-
dæmi, þ.e. Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi
og Kjósarhrepps. Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæm-
inu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Hjá embættinu starfa
rétt um 300 lögreglumenn og tæplega 90 í öðrum störfum.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Góð yfirsýn og þekking á verkefnum lögreglunnar æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Reynsla af alþjóðlegu samstarfi kostur
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið
frá og með 1. maí 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun
kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri
í síma 545 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur
ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila
ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, upplýsingar
um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið.
Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við
þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni.
Í umsókn skulu enn fremur koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu
af stjórnun, 3) reynslu af lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af
stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upp-
lýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli
skipta fyrir störf lögreglustjóra.
Embætti lögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar