Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 58

Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 58
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Að meðaltali fæðir hver kona á Íslandi, í Noregi og Finnlandi færri börn nú en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um rannsókn- ina, sem fjallað var um á norska vefnum Science Norway. Anna Karlsdóttir er einn höfunda rannsóknarinnar, en hún starfar við rannsóknir hjá NordRegio, sem rannsakar byggðaþróun og skipulagsmál fyrir Norrænu ráðherranefnd- ina. Í fréttatilkynningu vegna rannsóknarinnar segir hún að við séum að stefna í álíka ástand og í Kína, án þess að takmarka barn- eignir fjölskyldna eins og lengi var gert þar. Norðurlönd hafa lengi haft háa fæðingatíðni, sem er að hluta rakið til öflugs velferðarkerfis og stuðnings við barnafjölskyldur. En þetta virðist ekki hafa jafn mikil áhrif og áður og Anna segir að þessi lönd séu að verða meira eins og restin af heiminum. Frjósemi hefur minnkað á næstum öllum Norðurlöndunum, meira að segja á Grænlandi, þar sem hún hefur yfirleitt verið mikil. Nú fæðir hver kona þar að meðaltali tvö börn. Minnst frjósemi í Finnlandi Í Finnlandi hefur fæðingatíðnin lækkað meira en nokkurs staðar. Þar fæðir hver kona nú að meðal- tali 1,4 barn, en árið 2010 var talan 1,9. Noregur er í öðru sæti, með 1,56 barn á hverja konu, en talan var 1,96 árið 2010. Fæðinga- tíðnin er því orðin lægri í þessum löndum en hún er að meðaltali í Evrópusambandsríkjum, þar sem talan er 1,59. Fæðingatíðni í Svíþjóð og Dan- mörku er enn tiltölulega há. Í Sví- þjóð fæðir hver kona að meðaltali 1,76 barn og í Danmörku er talan 1,72. Þessi lönd toga meðaltal Norðurlanda yfir meðaltalið í ESB-ríkjum. Rannsakendur komust að því að fæðingatíðni væri stundum ólík á mismunandi svæðum innan landa. Þannig er fæðingatíðni til dæmis hærri meðal Sama í Norður-Svíþjóð en annars staðar í landinu. Það sama gildir um sveitarfélagið Granvin í Vest- Fæðingatíðni lækkar á Norðurlöndum Aldrei hafa konur fætt jafnfá börn á Íslandi, í Noregi og Finnlandi. Þetta er niðurstaða nýrrar rann- sóknar á fólksfjöldaþróun á Norðurlöndunum sem var unnin fyrir Norrænu ráðherranefndina. Á Norður- löndum hefur lengi verið há fæðingatíðni, sem er að hluta rakið til öflugs velferðarkerfis og stuðnings við barnafjöl- skyldur. En þetta virðist ekki hafa sömu áhrif og áður. MYND/GETTY Fæðingatíðni hefur dregist meira saman í mörgum lönd- um en sérfræðingar gerðu ráð fyrir, fyrir nokkrum árum. Fæðingatíðni hefur dregist meira saman í mörgum löndum en sérfræðingar gerðu ráð fyrir, fyrir nokkrum árum. Nú eru rannsakendur að reyna að finna betri leiðir til að spá fyrir um fólksfjölda. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY landet-sýslu í Noregi og sveitar- félögin Snillfjord, Tydal, Åfjord og Roan í Trøndelag-sýslu. Einnig er mikill munur á milli svæða innan Finnlands. Eignast fyrsta barn síðar Rannsakendur segja að megin- skýringin á þessari þróun sé að konur séu að eignast sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður. Í dag er meðalaldur mæðra þegar þær eignast sitt fyrsta barn 30 ár á Norðurlöndunum, en að meðaltali voru þær 21 árs árið 1971. Fjöldi kvenna sem verða mæður í fyrsta sinn fyrir 25 ára aldur hefur minnkað á öllum Norður- löndunum, en fjöldi þeirra sem verða mæður í fyrsta sinn eldri en 35 ára, hefur aukist. Aldur kvenna þegar þær verða mæður í fyrsta sinn hefur hækkað á Íslandi og í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Fæðingatíðni hefur dregist meira saman í mörgum löndum en sérfræðingar gerðu ráð fyrir, fyrir nokkrum árum. Nú eru rann- sakendur að reyna að finna betri leiðir til að spá fyrir um fólks- fjölda. Ungt fólk fer úr sveitinni Fólki hefur fækkað í minni byggðarlögum vegna þess að ungt fólk f lytur burt í svo miklum mæli. Hlutfall fólks á aldrinum 20-29 ára í norrænum borgum hefur aukist um 47 prósent á síðustu 19 árum, á meðan hlutfall sama hóps hefur minnkað um 54 prósent í smærri bæjarfélögum, samkvæmt skýrslunni. Ástandið er sérlega slæmt í Finn- landi, þar sem er algengt að 40-60 prósent ungs fólks f lytji burt úr smábæjum. Lestu Fréttablað dagsins í snjalltækinu þínu, hvar og hvenær sem er! BYRJAÐU DAGINN MEÐ FRÉTTABLAÐINU Sæktu Fréttablaðsappið frítt! 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.