Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 66
Ég starfa við að hanna bókar-
kápur og brjóta um bækur. Það
er mitt svið í lífinu þessi árin. Ég
vinn sjálfstætt og er með skrif-
stofu heima, sem er æðislegt.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Auðunn Karlsson
Kríulandi 8, Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
mánudaginn 9. mars.
Anna Þór Auðunsdóttir Hanna Rún Þór
Guðfinna Auðunsdóttir Sveinbjörn Hauksson
Auður Auðunsdóttir Sigurvin Heiðar Sigurvinsson
Bjarni Auðunsson Sigurrós Jónasdóttir
Sigurjón Haraldsson Guðný Anna Annasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elsa Friðdís Kristjánsdóttir
Lækjargötu 30,
Hafnarfirði,
lést 11. mars.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 19. mars kl. 13.00.
Guðmundur Torfason
Halldóra Kristín
Guðmundsdóttir Sveinn Rafn Ingason
Torfi Guðmundsson Lilja Birkisdóttir
Brynja Guðmundsdóttir
Lárus Skúli Guðmundsson
Anton Guðmundsson Guðbjörg Jakobsdóttir
María Hrund Guðmundsdóttir Þórir Valdimar Indriðason
ömmu- og langömmubörn.
Elsku mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Svanhildur Traustadóttir
frá Patreksfirði,
lést á líknardeild LSH 10. mars.
Trausti
Magga
Árni
Silja
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæru
Sigríðar Kristjönu
Kristjánsdóttur
sem lést 15. febrúar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Einihlíðar á
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, fyrir alúð og umhyggju.
Kristín Þ. Matthíasdóttir Stefán Friðrik Ingólfsson
Ragnheiður Gísladóttir
Ólöf Matthíasdóttir Kristján Elís Jónasson
Aðalheiður Matthíasdóttir Ingimar Ólafsson Waage
ömmu- og langömmubörn.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda
hlýju, samúð og góðar kveðjur við
fráfall og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðrúnar Önnu
Ingimundardóttur
Alúðarþakkir færum við starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði
fyrir góða umönnun.
Elín Jóhannsdóttir
Bára Friðriksdóttir Guðmundur Steinþór Ásmundsson
Jón Leví Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Aðalsteinn Svanur Sig-f ú s s on , tón l i st a r- og bókamaður, lætur ekki alheimsfaraldur stöðva sig í að halda úr borginni til Akureyrar og hefja þar
upp raust sína með öðrum eyfirskum
trúbadorum. Söngvar á sextugu dýpi
nefnist viðburðurinn sem fyrirhugaður
er í Deiglunni í kvöld og til hans er efnt
vegna sextugsafmælis Aðalsteins Svans
sem var í vikunni.
„Ég átti nú hátt í fimmtíu ár fyrir
norðan. Mitt fólk er þar og allir mínir
músíkantar,“ segir Aðalsteinn Svanur til
skýringar – og heldur áfram. „Þá sjaldan
ég kem fram sem tónlistarmaður geri ég
það fyrir norðan. Einu sinni á Rósenberg
reyndar. En það litla sem ég hef verið að
koma fram sjálfur sem trúbador hefur
verið á Akureyri og þá með kassagítar-
inn.“
Aðalsteinn Svanur kveðst titla sig
bókahönnuð. „Ég starfa við að hanna
bókarkápur og brjóta um bækur. Það er
mitt svið í lífinu þessi árin. Ég vinn sjálf-
stætt og er með skrifstofu heima, sem er
æðislegt.“
Hann hefur þó ekki alltaf verið bóka-
hönnuður, því kemst ég að þegar ég
inni hann eftir starfsferlinum. „Lengi
framan af var ég skógræktarmaður að
atvinnu fyrir norðan og svo auglýsinga-
hönnuður eftir það. Eftir að ég f lutti
suður árið 2007 rak ég og starfaði við
bókaútgáfu, ásamt félaga mínum, í ein
sjö ár, bókaútgáfuna Uppheimar. Svo
fórum við á hausinn með glæsibrag.
En þar kynntist ég vel bókabransanum
og öllum sem í honum starfa svo ég bjó
mér til framhaldslíf eftir það með því að
harka frílans sem bókahönnuður. Það
hefur alveg gengið.“
Þá víkur talinu aftur að tónleikunum í
kvöld. Aðalsteinn Svanur gerir ráð fyrir
að flestir f lytjendurnir þar séu með sitt
eigið frumsamda efni en að svo verði
líka teknir góðir og þekktir slagarar. „Ég
á von á að heyra eitthvað frá Tom Waits,
Nick Cave og fleirum,“ segir hann.
Fram hefur komið að í Deiglunni í
kvöld ætli hinir eyfirsku trúbadorar að
reyna að endurvekja andann sem ríkti í
menningarsmiðjunni Populus tremula
sem var í kjallara handan götunnar í
Listagilinu um tíu ára skeið. „Þar var
svona undirheimastemning,“ upplýsir
Aðalsteinn. Hann kveðst hafa verið í
Populus tremula allan tímann og reynd-
ar formaður allt til loka. „Þetta var alveg
sérstakur tími í lífi mínu.“
Aðalsteinn Svanur segir að á tíu ára
ferli sínum hafi Populus tremula staðið
fyrir um þrjú hundruð menningarvið-
burðum af öllum toga, í músík, bók-
menntum, myndlist, hverju sem var.
„Við sem vorum í þessum hópi lifðum
alveg fyrir þetta starf og allir sem koma
fram á tónleikunum núna gerðu það
margoft í Populus tremula. Ef einhver
þorir að mæta á samkomu á þessum
síðustu tímum þá býst ég við að þarna
verði fastagestirnir þaðan. Eða ég vonast
til þess.“ gun@frettabladid.is
Undirheimastemning
í uppsiglingu á Akureyri
Söngvar á sextugu dýpi nefnast tónleikar sem haldnir verða í Deiglunni á Akureyri í
kvöld. Tilefnið er sextugsafmæli trúbadorsins og bókahönnuðarins Aðalsteins Svans
Sigfússonar. Stefnt er að því að ná upp stemningu sem einatt ríkti í Populus tremula.
Það litla sem ég hef verið að koma fram sjálfur sem trúbador hefur verið á Akureyri og þá með kassagítarinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Trúbadorarnir
Á tónleikunum í Deiglunni koma
fram, ásamt afmælisbarninu Aðal-
steini Svani, þau Arnar Tryggvason,
Arna Valsdóttir, Guðmundur Egill Er-
lendsson, Kristján Pétur Sigurðsson,
Helgi Þórsson, Sigurður Ormur Aðal-
steinsson og Þórarinn Hjartarson.
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT