Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 67

Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 67
Fólk er farið að hamstra hér eins og annars staðar. Þó er búið að segja í fréttum að fólk þurfi ekki að hamstra, það sé nóg af vörum í landinu en það tekur enginn mark á því. Við þökkum innilega fyrir auðsýnda hlýju, samúð og góðar kveðjur við fráfall okkar elsku móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Helgu Guðjónsdóttur frá Ökrum, Höfðagrund 14b, Akranesi. Ingiríður B. Kristjánsdóttir Ólafur Ólafsson Smári H. Kristjánsson Nikolína Th. Snorradóttir Guðjón Kristjánsson Ingibjörg Sigurðardóttir Guðrún H. Kristjánsdóttir Vicente Carrasco barnabörn og barnabarnabörn. Áður auglýstri útför Svanhildar Ingvarsdóttur hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Sveinn Þorkell Guðbjartsson Katrín Sveinsdóttir Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, Einars Sverrissonar viðskiptafræðings, Hlíðarhúsum 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir. Þorgeir Einarsson Halla Kristín Þorsteinsdóttir Sverrir Einarsson Vilborg Rósa Einarsdóttir Tryggvi M. Baldvinsson Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir Sigrún Unnur Einarsdóttir Sigurjón Bragason og afabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Sigríður Björnsdóttir Sléttuvegi 11, Reykjavík, lést á öldrunardeild LSH að Vífilsstöðum þann 3. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnheiður Jónsdóttir Elías G. Magnússon Garðar Jónsson Hulda Óskarsdóttir Mary A. Campbell barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þuríður Erla Erlingsdóttir sundkennari, lést 10. mars á Hrafnistu í Reykjavík. Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 20. mars kl. 13.00. Guðfinna Helgadóttir Guðni Einarsson Sigríður Helgadóttir Birgir H. Sigurðsson Helgi Helgason Brynja Tómasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Grétar Þór Sigurðsson Austurgötu 11, Keflavík, lést á Landspítalanum v/Hringbraut, miðvikudaginn 26. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Signý Hrönn Sigurhansdóttir Gunnar Þór Grétarsson Sólveig Gísladóttir Bryndís Grétarsdóttir Hafsteinn Guðmundsson Magnea Grétarsdóttir Sigurður R. Magnússon og barnabörn. Gjafir okkar til Heilsu-gæslu Hornafjarðar hafa alltaf verið þegnar með þökkum og svo var einn-ig nú,“ segir Ásdís Olsen, húsfreyja á Höfn. Hún var í hópi Lionsfólks sem afhenti heilsu- gæslunni á staðnum eyrnaþrýstimæli og augnþrýstimæli nú í vikunni. Eystra- horn greinir frá því. Innt eftir öðrum viðfangsefnum Lionsklúbbsins Kolgrímu, sem Ásdís tilheyrir, upplýsir hún að krafturinn mætti vera meiri í starfinu. „Við erum orðnar svo fáar í klúbbnum. Hann sofn- aði nú alveg á tímabili en svo tókst að vekja hann aftur, konum í honum þyrfti samt að fjölga. Ég held að við séum þret- tán eða fjórtán. Við erum ekki fleiri – en við gerum ýmislegt til að safna fé,“ segir hún og nefnir sem dæmi að fyrir bónda- daginn selji Lionskonurnar hákarl í krukkum og ýmislegt sem þær hafi bakað. Þær setji upp basar á ganginum í Nettó, það sé mjög góður staður. „Við í Lionsklúbbunum ætluðum að skemmta okkur á morgun, karlarnir ætl- uðu að vera með kútmagakvöld og við konurnar með krúttmagakvöld en því hefur öllu verið frestað út af COVID-19 faraldrinum. Ein af leiðum okkar Lions- kvenna til að af la fjár fyrir klúbbinn hefur verið sú að laga mat fyrir Lions- karlana sem þeir hafa greitt okkur fyrir.“ Ekki segir hún þær þó hreinsa kútmag- ana og fylla. „Það verða þeir að gera sjálfir,“ segir hún hlæjandi. „Við búum bara til fiskrétti ofan í þá. Fáum hráefni hjá bátunum. Á Sigurði Ólafssyni hafa menn til dæmis alltaf verið viljugir að láta okkur hafa fisk. Við vorum með marga rétti í fyrra en ætluðum aðeins að fækka þeim núna. Sáum hverjir borðuð- ust best og ætluðum að einbeita okkur að þeim.“ Voruð þið ekki farnar að undirbúa þessa máltíð? „Jú, en hráefnið er í frosti. Við ætluðum að nota daginn í dag og morgundaginn til að útbúa hana. Það eru allar samkomur að leggjast af í bili. Reyndar verður blúshátíð hér í kvöld (föstudag) en annars er verið að aflýsa öllum mannfögnuðum. Það var búið að auglýsa aðalfund hjá eldri borgurum en það er búið að fresta honum.“ Eru einhverjar aðrar aðgerðir í gangi til að forðast COVID-19 þarna fyrir austan? „Ja, fólk er farið að hamstra hér eins og annars staðar. Þó er búið að segja í fréttum að fólk þurfi ekki að hamstra, það sé nóg af vörum í landinu en það tekur enginn mark á því. Við höfum ágæta Nettóverslun og það koma alltaf vörur í hana að sunnan með bílum, svo það er engin bráð hætta á matarskorti.“ Spurð að lokum hvort veturinn hafi verið sæmilega hagstæður á Höfn svarar Ásdís: „Hann hefur verið voða rysjóttur en það er allt í lagi ef sumarið verður gott.“ gun@frettabladid.is Gjafir þegnar með þökk Lionsklúbburinn Kolgríma og Lionsklúbbur Hornafjarðar færðu Heilbrigðisstofnun Suðausturlands góðar gjafir nýlega. Um var að ræða eyrnaþrýsti- og augnþrýstimæla. Í fremri röð eru: Elín Freyja Hauksdóttir læknir og Lionskonurnar Erla Einarsdóttir, Ásdís Olsen, Eva Ragnarsdóttir og Erla Berg lind Antonsdóttir. Í aftari röð eru Guðrún Dadda Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri heilsugæslu, og Lionsmennirnir Unnsteinn Guðmundsson, Hannes Ingi Egilsson, Jón Bragason og Steinþór Hafsteinsson. MYND/EYSTRAHORN Brot úr þakkarávarpi heilsugæslunnar: Eyrnaþrýstimælirinn mælir hvort hljóðhimnan hreyfist. Hjá börnum er algengt að þau heyri illa vegna vökva í eyrum í kjölfar eyrnabólgu. Hægt er að mæla nýfædda og fólk á öllum aldri. Augnþrýstimælir er ekki staðalbúnaður á heilsugæslum almennt. Þar sem heilsugæslan er einnig bráðamóttaka fyrir Suð- austurland teljum við mikilvægt að við getum metið, greint og með- höndlað bráð augnvandamál eins og önnur vandamál. Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði allri áhöfn Barðans GK 475, samtals níu mönnum, þegar skipið strandaði í Dritvík á Snæfellsnesi þennan mánaðardag árið 1987. Aðstæður voru afar erfiðar. Björgunarsveitir voru kallaðar út á átt- unda tímanum að morgni. Þær voru komnar á strandstað hálftíma síðar. Ógerningur var að ná skipverjum í land með línu vegna aðstæðna á strandstað svo þyrlan sannaði gildi sitt svo um munaði. Fram kom í sjóprófum að enginn hefði verið í brú skips- ins og siglingatækin biluð þegar Barðann rak á land. Skip- stjórinn hafði brugðið sér niður í matsal og taldi skipið vera á öðrum stað en raunin var. Aðrir skipverjar sendu frá sér yfirlýsingu eftir strandið, þeir lýstu fullum stuðningi við skipstjórann og sögðust treysta sér til að sigla undir hans stjórn um ókomna tíð.   Þ E T TA G E R Ð I S T: 14 . M A R S 19 8 7 Frækilegt björgunarafrek unnið í Dritvík T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 4 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.