Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 76
AÐALFUNDUR
Klappa grænna lausna hf.
Aðalfundur Klappa grænna lausna hf. verður haldinn á Café Atlanta, Hlíðarsmára 3
(gengið inn frá Hæðasmára), fimmtudaginn 2. apríl 2020, og hefst hann kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um breytingu á grein 2.01.5 samþykkta félagsins um endurnýjun á
heimild stjórnar um að auka hlutafé félagsins um allt að 50. m.kr. með útgáfu nýrra hluta í B-flokki hlutabréfa.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu verða hluthö-
fum til sýnis á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17, 5. hæð, tveimur vikum fyrir aðalfund.
Öll gögn verða lögð fram fyrir hluthafa á síðunni www.klappir.com/fjarfestar
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 15.45. Á hluthafafundum fylgir eitt
atkvæði með hverri einni krónu í A-flokki hlutabréfa. Atkvæðaréttur fylgir ekki með B-hlutabréfum.
Vegna COVID-19 og þeirrar óvissu sem um það ríkir þá er verið að skoða möguleikann á að fundurinn færi fram
í gegnum fjarskiptabúnað eða á annann sambærilegann hátt. Verði það niðurstaðan verður hluthöfum tilkynnt
um það með tölvupósti.
Vinsamlega athugið að aðalfundurinn var áður auglýstur 9. apríl 2020 og hefur sú dagsetning tekið breyting-
um eins og fram kemur hér að ofan.
Stjórn Klappa grænna lausna hf.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
14. MARS 2019
Tónlist
Hvað? Vorið og
vonin í jazz-
perlum
Hvenær?
13.15-14.00
Hvar?
Borgar-
bókasafnið
Spönginni
María
Magnús-
dóttir syng-
ur vorlög
eftir mörg af
þekktustu jazz-
og söngleikja-
skáldum samtímans.
Gunnar Hilmarsson
leikur á gítar og Leifur Gunn-
arsson á kontrabassa.
Hvað? Söngvar á sextugu dýpi
Hvenær? 21.00
Hvar? Deiglan Akureyri
Tónleikar þar sem eyfirskir
trúbadorar hefja upp raust sína.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Myndlist
Hvað? Erling Klingenberg
Hvenær? 12.00-18.00
Hvar? Marshallhúsinu, bæði í Ný-
listasafninu og Kling & Bang.
Einkasýning Erlings T.V. Klingen-
berg er opin samkvæmt hefð-
bundnum opnunartímum, 12.00-
18.00.
Hvað? Fegurð og fögnuður/beauty
and serenity
Hvenær? 15.00
Hvar? Hannesarholt
Vignir Jóhannsson listmálari
opnar sýningu sína í veitinga-
stofum staðarins. Þar eru lands-
lagsmálverk og fíguratíf, „sjáðu
mig“ verk, sem Vignir hefur unnið
að undanförnu í Danmörku, þar
sem hann býr og starfar.
Hvað? Rostung-
urinn
Hvenær?
Hvar?
Perlan
Náttúru-
minja-
safn
Íslands
opnar
sérsýn-
inguna
Rostung-
urinn í
dag. Vegna
COVID-19
faraldursins
verður ekki
boðið til opnunar
sýningarinnar sem er
opin alla daga milli klukkan 9 og
22 og stendur til 8. nóvember.
Aðrir viðburðir
Hvað? Skáknámskeið
Hvenær? 13.30-15.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Menn-
ingarhús Kringlunni
Smiðja fyrir 6-12 ára, jafnt byrj-
endur sem lengra komna. Tef lum
saman með vinum eða fjölskyldu
undir góðri leiðsögn skákkennara
frá Taf lfélagi Reykjavíkur. Þátt-
taka er ókeypis en skráning nauð-
synleg.
Hvað? Trúfræðsla á íslensku og
aftansöngur
Hvenær? 17
Hvar? Öldugata 44 R.
Rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi,
söfnuður Moskvu-Patríarkatsins
heldur stundina.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
15. MARS 2019
Hvað? Heilög litúrgía
Hvenær? 10.00
Hvar? Öldugata 44, 101 R
Kaffi og umræður á eftir, allir
velkomnir. Prestur Timofi Zolotu-
skyj. Rétttrúnaðarkirkjan á
Íslandi, söfnuður Moskvu-Patrí-
arkatsins sér um stundina.
Hvað? Syngjum saman
Hvenær? 14.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Ómar Ragnarsson leiðir söng á
fjölbreyttum lögum með mynd-
um og tónum í blandaðri dagskrá.
Textar birtast á tjaldi og allir taka
undir. Frítt fyrir börn í fylgd með
fullorðnum, sem greiða 1.000
króna aðgangseyri.
Hvað? Sýningarleiðsögn
Hvenær? 14.00
Hvar? Kjarvalsstaðir
Aldís Arnardóttir sýningarstjóri
verður með leiðsögn um yfir-
litssýningu á verkum Ásgerðar
Búadóttur, Lífsf letir, í Vestursal
Kjarvalsstaða.
Hvað? Skáldað í tré / snúningur í
rennibekk
Hvenær? 12.00-16.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Gerðu-
bergi
Renndir gripir af ýmsu tagi eru á
sýningu félagsmanna í Félagi tré-
rennismiða á Íslandi.
Aldís Arnardóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn um yfirlitssýningu á
verkum Ásgerðar Búadóttur, Lífsfletir, í Vestursal Kjarvalsstaða.
BÆKUR
Dularfulla símahvarfið
Brynhildur Þórarinsdóttir
Útgefandi: Bókabeitan
Blaðsíður: 40
Lestur ungra barna er mörgum hug-
leikinn og afskaplega ánægjulegt
hvernig margir bókaútgefendur
hafa reynt að auka áhuga
og möguleika krakka til
lestrar, til dæmis með
því að hafa leturgerðir
og stærðir aðgengi-
legri fyrir börn en ekki
síður með því að leggja
áherslu á að gefa út
grípandi og skemmti-
legar sögur sem gabba
krakka, sem halda að
þeim finnist leiðin-
legt að lesa, til að
f letta áf ram. Að
öðrum ólöstuðum
hefur Bókabeitan
verið þar fremst í
f lokki enda til for-
lagsins stofnað árið 2011
af tveimur kennurum í kringum
hinn bráðskemmtilega bókaflokk
Rökkurhæðir sem var upphugsaður
til þess að glæða lestraráhuga. Síðan
hafa Bókabeiturnar gefið út fjöl-
margar skemmtilegar bækur fyrir
börn á öllum aldri í sama tilgangi.
Eitt hugarfóstur þeirra er bóka-
klúbburinn Ljósaserían, mynd-
skreyttar barnabækur með fjöl-
breyttum efnistökum eftir íslenska
höfunda og túlkaðar af ólíkum
myndskreytum.
Nýjasta peran í Ljósaseríunni
er bókin Dularfulla símahvarfið
eftir Brynhildi Þórarinsdóttur sem
skrifaði bókina með aðstoð níu ára
dóttur sinnar, svo efniviðurinn ætti
að falla þeim aldurshópi vel í geð.
Brynhildi þarf ekki að kynna fyrir
ungum og eldri lesendum en hún
á að baki fjölmargar barnabækur
auk þess að vera þekkt fyrir endur-
sagnir sínar á Íslendingasögunum
fyrir börn.
Sagan hefst á því að Katla, sem
ekki á síma vegna þess að hún er of
ung til þess, veitir því eftirtekt að
símar í fjölskyldunni og víðar taka
að hverfa einn af öðrum. Hún fær
eldri systur sína og vin hennar til að
hjálpa sér að komast til
botns í málinu og úr
verður bráðspenn-
andi saga sem bæði
snertir á sambandi
systkina með öllum
þeim samskiptaörð-
ugleikum sem upp
geta komið, en líka á
hinu flókna sambandi
sem við eigum f lest
við símana okkar, sem
bæði geta verið tíma-
þjófar og gleðigjafar
og bráðnauðsynlegir á
köflum.
Dularfullir mávar,
rólyndislegt elliheimili
og sitthvað fleira kemur
við sögu, sem og áhugaverðar pæl-
ingar um aldur og og aldurstakmörk
sem kemur í ljós að eru ekki bara
fyrir börn og þannig eru dregnar
upp áhugaverðar hliðstæður.
Elín Elísabet Einarsdóttir gerir
kápu og myndskreytir bókina á
skemmtilegan og líflegan hátt. Dul-
arfulla símahvarfið, eins og raunar
allar Ljósaseríubækurnar, er kjörin
fyrir krakka sem hafa ekki alveg náð
að fóta sig á lestrarbrautinni.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og auð-
læsileg saga um krakka og síma og
sitthvað fleira.
Um síma og sitthvað fleira
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð