Fréttablaðið - 02.05.2020, Side 4
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
FIAT HÚSBÍLAEIGENDUR
ER HÚSBÍLLINN ÞINN KLÁR FYRIR SUMARIÐ?
BJÓÐUM UPP Á SMURÞJÓNUSTU OG LÉTTA ÁSTANDSSKOÐUN FYRIR SUMARIÐ:
• SJÓNSKOÐUN Á BREMSUKERFI OG UNDIRVAGNI
• LJÓS YFIRFARIN
• ÁSTAND HJÓLBARÐA METIÐ OG LOFTÞRÝSTINGUR MÆLDUR
• ÞURRKUR OG RÚÐUSPRAUTUR YFIRFARNAR
• ÁSTAND KÆLIKERFIS METIÐ
• HLEÐSLA RAFKERFIS MÆLD.
ALLIR VINNA – ENDURGREIÐSLA Á VSK Á VINNULIÐ AÐ LÁGMARKSUPPHÆÐ 25.000 KR. ÁN VSK.
TÖLUR VIKUNNAR 26.04.2020 TIL 02.05.2020
12
milljarða króna áætlar
Vinnumálastofnun að greiða
í atvinnuleysisbætur
í aprílmánuði.
200
milljóna Bandaríkjadala
ætlar Icelandair að afla sér
með hlutafjárútboði.
55
prósent færri greiddar gisti-
nætur voru í mars í ár en í sama
mánuði í fyrra.
30
milljónir Bandaríkjamanna
eru á atvinnuleysisbótum.
53
prósent þeirra
hjúkrunarfræðinga sem
greiddu atkvæði felldu
nýjan kjarasamning.
Davíð Þór Björgvinsson
landsréttardómari
sem sat í gerðar-
dómi í þremur
málum um sölu
eignaumsýslu-
félagsins ALMC
á fyrirtækinu
LS Retail, viðraði
hugmyndir við deilendur í
málunum um að hann fengi
greiddar allt að sextíu milljónir
króna í þóknun fyrir störf sín í
dómnum. Þeim hugmyndum,
sem voru kynntar um tveimur
vikum áður en niðurstaða í
málunum lá fyrir, var hins vegar
hafnað af málsaðilum.
Tom Hagen
norskur auðkýfingur
var handtekinn í
aðgerð lögreglu
rétt fyrir utan
Ósló á þriðju-
dagsmorgun.
Hann er talinn
hafa myrt eða
átt aðild að morði eiginkonu
sinnar. Hann var í framhaldinu
úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald.
Guðjón Valur Sigurðsson
hamboltakempa
lýkur handbolta-
ferli sínum sem
markahæsti
landsliðsmaður
sögunnar í
íslenska lands-
liðinu, markahæsti
leikmaður frá upphafi í sögu
Evrópumótanna og er í þriðja
sæti meðal markaskorara í
lokakeppnum heimsmeistara-
móta. Guðjón lék sinn fyrsta
A-landsleik gegn Ítalíu árið 1999,
tvítugur að aldri. Hann tók þátt
í sínu 22. stórmóti á ferlinum
þegar hann spilaði á Evrópu-
mótinu í janúar síðastliðnum.
Þrjú í fréttum
Dómari,
auðkýfingur og
íþróttagoðsögn
MENNTUN Á fimmtudaginn, síðasti
degi aprílmánaðar, var tveimur
starfsmönnum Keilis, miðstöðvar
vísinda, fræða og atvinnulífs, sagt
upp störfum. Um var að ræða starfs-
mann í afgreiðslu og annan í bók-
haldi og að auki var öðrum starfs-
manni í afgreiðslu gert að fara í
50 prósent starfshlutfall. Þá nýtti
skólinn sér hlutabótaúrræði stjórn-
valda með því að láta fimm starfs-
menn fara í skert starfshlutfall þar
til í haust. Fjórir yfirmenn, þar á
meðal Jóhann Friðrik Friðriksson
framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
lækkuðu laun sín um 10 prósent.
„Þetta voru sársaukafullar en
nauðsynlegar ráðstafanir sem miða
að því að skerða ekki þjónustu við
okkar nemendur. Við höfum orðið
f y r ir tek juskerðing um veg na
COVID-19 faraldursins meðal
annars því fella þurfti niður margs
konar námskeið sem ráðgerð voru,“
segir Jóhann Friðrik.
Í bréfi sem framkvæmdastjórinn
sendi á starfsfólk skólans kemur
fram að um nauðsynlega hagræð-
ingu séu að ræða því reksturinn hafi
verið erfiður og félagið verið rekið
með tapi undanfarin ár. „Skólinn
hefur verið rekinn með tapi undan-
farin þrjú ár og við höfum því verið
að vinna að fjárhagslegri endur-
skipulagningu,“ segir Jóhann Frið-
rik, sem tók við framkvæmdastjóra-
starfi skólans í apríl í fyrra.
Keilir er einkaskóli sem þó er að
langstærstum hluta í eigu opinberra
aðila. Jóhann Friðrik segir enga
hættu á því að skólinn fari hrein-
lega í þrot en fjárhagsvandræðin
geti leitt til þess að skera þurfi niður
framboð náms. Jóhann Friðrik segir
að sú niðurstaða væri grátleg því
að skólinn hafi sannað gildi sitt
undanfarin ár.
„Keilir er ekkert venjulegur skóli
enda má segja að við séum nýsköp-
unarfyrirtæki. Við höfum lagt
mikið upp úr sveigjanleika til þess
að geta brugðist hratt við og veitt
sérhæfðari og markvissari þjón-
ustu. Það hefur sýnt sig í COVID-
19 faraldrinum þar sem starfsfólk
okkar hefur unnið þrekvirki og
nýtt reynslu sína við að bjóða upp
á fjarnám til þess að þjónusta nem-
endur,“ segir Jóhann Friðrik.
Hann segir tímasetningu niður-
skurðarins óheppilega í ljósi þess að
menntastofnanir búast við aukinni
eftirspurn á næstu mánuðum. „Það
er ætlast til þess að við bjóðum upp
á aukið framboð af námi í sumar
og sérstaklega í haust til þess að
koma til móts við allan þann fjölda
atvinnulausra sem vilja nýta tæki-
færið og mennta sig. Það að þurfa
að grípa til niðurskurðar dregur úr
þrótti starfsfólks til þess að ráðast í
aukna þjónustu.“
Að mati Jóhanns Friðriks hefur
starfsemi Keilis aldrei verið mikil-
vægari en nú. Háskólabrú skólans
er aðfaranám inn Háskóla Íslands
og þjónustar nemendur sem hafi
ekki fetað beinu brautina í mennta-
kerfinu heldur flosnað upp úr námi
vegna fjölbreyttra ástæðna. „Þetta
er oft fólk sem hefur farið beint út í
atvinnulífið eftir skyldunámið og í
sumum tilvikum einstaklingar sem
hafa ekki góða reynslu af hinu hefð-
bundna menntakerfi.“
Hann segir sorglegt að fjárhags-
leg staðan valdi því að skólinn geti
þurft að taka upp fjöldatakmark-
anir. „Við höfum unnið markvisst
að fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu skólans með það að markmiði
að gera reksturinn sjálf bæran. Við
höfum sent skýrslu um stöðu skól-
ans til menntamálayfirvalda og
væntum viðbragða. Stjórnsýslan
getur stundum verið svifasein að
bregðast við en það er brýnt að
þessi vinna klárist sem fyrst til þess
að við getum gert áætlanir til fram-
tíðar,“ segir Jóhann Friðrik.
bjornth@frettbladid.is
Tapreksturinn gæti leitt til
fjöldatakmarkana hjá Keili
Tveimur starfsmönnum var sagt upp störfum í vikunni hjá Keili á Ásbrú auk þess sem skólinn nýtti sér
hlutabótaleiðina vegna fimm starfsmanna. Fjórir yfirmenn tóku á sig 10 prósenta launalækkun, þar á
meðal framkvæmdastjórinn. Að óbreyttu þarf skólinn að takmarka fjölda nemenda á næstunni.
Mikill fjöldi nemenda hefur stundað nám hjá Keili undanfarin ár. Á sama
tíma hefur skólinn verið rekinn með tapi, sem getur haft slæmar afleiðingar.
Það er ætlast til þess
að við bjóðum upp
á aukið framboð af námi í
sumar og sérstaklega í haust
til þess að koma til móts við
allan þann fjölda atvinnu-
lausra sem vilja nýta tæki-
færið og mennta sig.
Jóhann Frið-
rik Friðsson,
framkvæmda-
stjóri Keilis
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð