Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 29

Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 29
Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu eldvarnareftirlitsfulltrúa. ELDVARNAREFTIRLITSFULLTRÚI Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Umsjón með framkvæmd eldvarnareftirlits á starfssvæðinu • Úttektir og leyfisveitingar Hæfniskröfur: • Löggiltur slökkviliðsmaður með að lágmarki 1 árs starfsreynslu í slökkviliði • Menntun skv. ákvæðum reglugerðar um eldvarnir og eldvarnareftirlit nr. 723/2017 • Þekking og þjálfun í brunamálum og á sviði brunavarna • Þekking og reynsla af eldvarnareftirliti æskileg • Góð almenn tölvukunnátta og ritfærni • Skipulagshæfni, þjónustulund og félagsfærni Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem fram koma ástæður umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins. Starfið hentar öllum kynjum. Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Nánari upplýsingar um starfið veita Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, jens.heidar.ragnarsson@akranes.is og Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framúrskarandi sérfræðingi til að sinna spennandi verkefnum á sviði eignamála og verkefnaþróunar á skrifstofu stjórnunar og umbóta. Markmið starfsins er að innleiða virka stýringu á efnahagsreikningi ríkisins í kjölfar nýrra reikningsskila með markvissri umsýslu óefnislegra eigna og varanlegra rekstrarfjármuna í eigu ríkisins þ.e.a.s. fasteignir, jarðir, auðlindir og félög. SÉRFRÆÐINGUR Í EIGNAÞRÓUN Starfssvið: • Eignastýring og verkefnaþróun • Virk þátttaka í áætlanagerð og hagkvæmnimati á sviði fjárfestinga-, þróunar- og eignaumsýslu • Markviss hagnýting fasteigna, lands og auðlinda í eigu ríkisins • Fjármögnun verkefna, þ.m.t. samvinna við einkaaðila • Samningagerð m.a. á sviði fasteigna-, lóðamála og auðlinda • Samskipti við ráðuneyti, stofnanir og ýmsa samstarfsaðila Menntunar- og hæfniskröfur: • Meistaragráða sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af fjárfestingum, verkefnaþróun og eignastýringu er skilyrði • Þekking á sérleyfissamningum og auðlindamálum er æskileg • Þekking og reynsla af fjármálastjórnun, rekstri og reikningsskilum er æskileg • Geta til að greina og miðla tölulegum upplýsingum með greinargóðum og skýrum hætti með notkun viðeigandi greiningatóla • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði • Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Skrifstofa stjórnunar og umbóta fer meðal annars með eigna- og framkvæmdamál ríkisins, þ.m.t. eignarráð ríkisins í félögum, fast- og jarðeignum og samninga vegna nýtingar auðlinda. Nánari upplýsingar um fjármála og efnahagsráðuneytið er að finna á vef Stjórnarráðs Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út samkvæmt gildandi reglum um auglýsingar á lausum störfum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.