Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 37

Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 37
Patreksskóli Bíldudalsskóli Lausar stöður í skólum Vesturbyggðar Patreksskóli er um 100 barna skóli, með 10 bekkjardeildir og efstu deild leikskóla. Skólinn er staðsettur í miðju þorpinu með veglegt íþróttahús og sundlaug í örfárra skrefa fjarlægð. Patreksfjörður er barnvænn staður og hér er gott að búa. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingastefnuna að leiðar­ ljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Verkmenntun er áhersluatriði og tenging við atvinnulíf staðarins. Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám og vinna með styrkleika nemenda er í fyrirrúmi. Umsjónakennarar • Yngsta deild 100% staða. • Miðdeild 100% staða. • Efsta deild tvær 100% stöður. Sérgreinakennarar • 100% staða íþróttakennara. • 70% staða heimilisfræðikennara. • 50–70% staða sjónlistakennara. • 50–70% staða handmenntakennara. Leikskóladeild • Deildarstjóri leikskóladeildar 100% staða. • Leikskólakennari / leikskólaliði 100% staða. Í Bíldudalsskóla eru 29 nemendur og kennt er í samkennslu milli árganga. Í skólanum starfa tíu starfsmenn ásamt tveimur matráðum í mötuneyti skólans sem staðsett er í annarri byggingu. Á leikskólanum Tjarnarbrekku eru 10 börn sem skiptast niður á tvær deildir, yngri og eldri deild. Á leikskólanum starfa þrír starfsmenn ásamt leikskólastjóra og tveimur matráðum í sameiginlegu mötuneyti með grunnskólanum. Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka leggja áherslu á að vera fremstir meðal jafningja varðandi upplýsingatækni í skólastarfi. Í samskiptum er byggt á áherslum úr hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf þar sem sérstakar áherslur eru á fjölbreytta kennsluhætti og nemendamiðað nám, vaxtarhugarfar, leiðsagnarnám og sköpun. Þá er lögð áhersla á að efla samstarf við foreldra og styrkja tengsl þeirra við skólasamfélagið og eru einkunnarorð skólans: samskipti — samvinna — sköpun! Bíldudalsskóli • 100% staða grunnskólakennara á yngsta stigi. • 35% staða íþróttakennara með möguleika á hærra starfshlutfalli. Tjarnarbrekka • 100% staða deildarstjóra. • 100% stöður leikskólakennara. Umsóknir og nánar um störfin á vefnum storf.vesturbyggd.is Vesturbyggð leitar að einstaklingum með tilskilda menntun, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, sam skipta­ hæfileika og hæfni til að sýna ábyrgð og frum kvæði í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2020. Vesturbyggð er á sunnanverðum Vestfjörðum og saman­ stendur af tveim þéttbýliskjörnum Patreksfirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Einstök náttúrufegurð prýðir sunnanverða Vestfirði og hér er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta o.fl. Náttúrufegurð er mikilfengleg, en m.a. Rauðisandur og Látrabjarg eru innan sveitar félagsins.Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargir. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.