Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 45
Næringardrykkir
innihalda mikið
magn af orku og pró-
teinum ásamt því að
innihalda lífsnauðsynleg
næringarefni eins og
vítamín og steinefni.
Gott næringarástand hjálpar til við að viðhalda líkams-styrk og orku en þættir
eins og ógleði, þreyta, verkir og
kvíði geta haft þær afleiðingar að
matarlyst og löngun til að borða
minnkar. Við þessar aðstæður
geta næringardrykkir verið góður
kostur.
Næringardrykkir innihalda
mikið magn af orku og próteinum
ásamt því að innihalda lífsnauð-
synleg næringarefni eins og víta-
mín og steinefni.
Út frá þörfum hvers og eins
er hægt að velja á milli tveggja
megingerða af næringardrykkjum:
Annars vegar eru það næringar-
drykkir sem teljast fullgild næring
því þeir innihalda öll þau næring-
arefni sem líkaminn þarfnast. Þá
er hægt að nota sem einu næring-
una eða sem viðbót við almennt
fæði. Dæmi um fullgilda næringar-
drykki eru Nutridrink Compact
og Nutridrink 2.0 kcal. Hins vegar
eru svo drykkir sem ætlaðir eru
sem viðbót við almennt mataræði.
Dæmi um næringardrykk sem er
hugsaður sem viðbót er Nutri-
drink Prótein.
Bragð og magn eru þeir þættir
sem hafa hvað mesta þýðingu fyrir
löngun einstaklinga til þess að
nærast. Þess vegna hefur Nutricia
lagt sérstaka áherslu á að nær-
ingardrykkir innihaldi sem mesta
orku og prótein í hverjum sopa, að
drykkirnir séu bragðgóðir og að
fjölbreytt úrval bragðtegunda sé
í boði.
Góður kostur
Nutridrink Compact næringar-
drykkirnir eru afar orkuþéttir
næringardrykkir. Þeir innihalda
minna magn (125 ml) en um leið
jafnmikla orku og hefðbundinn
næringardrykkur. Þess vegna
hentar hann vel ef matarlyst er lítil
og eykur líkur á að einstaklingur
geti klárað allan drykkinn sem
er mikilvægur hluti af næringar-
meðferð. Hann er einnig hægt að fá
próteinbættan.
Nutridrink Compact Prótein er
góður kostur fyrir þá sem glíma
við erfið veikindi þar sem pró-
teinþörf eykst umtalsvert við þær
aðstæður. Það sama á við þegar sár
eru að gróa eða ef orkuinntaka er
lítil. Nutridrink Compact nær-
ingardrykkirnir eru nú fáanlegir
með mismunandi bragðtegundum
í einum pakka sem eykur fjöl-
breytni og einfaldar valið á þínum
uppáhalds drykkjum.
Nýr næringardrykkur
Nutridrink 2.0 kcal er nýr nær-
ingardrykkur á markaði. Hann
er 200 ml næringardrykkur sem
inniheldur fleiri hitaeiningar en
hefðbundinn drykkur af sömu
stærð. Drykkurinn inniheldur
aukið magn af D-vítamíni, eða
10µg. Ráðlagður dagskammtur
af D-vítamíni fyrir eldra fólk er
20µg og er þörfinni því mætt með
aðeins tveimur drykkjum. Þessir
næringardrykkir henta vel fyrir
einstaklinga sem eru með aukna
orkuþörf.
Aðrar vörur sem einnig geta
verið góður kostur þegar ein-
staklingar þurfa á einhvers konar
orku og próteinbætingu að halda
eru Nutrison næringarduft og
Calogen.
Nutrison næringarduft, er
bragðlaust næringarduft sem má
blanda út í matvæli eins og
súpur, sósur, grauta og drykki
til orku- og próteinbætingar.
Nutrison næringarduft telst
vera fullgild næring og getur
því verið góð viðbót við
almennt fæði eða notuð
ein og sér.
Orkurík jurtaolía
Calogen er orkurík jurtaolía
sem gefur mikla orku í litlu
magni. Calogen er notað sem
viðbótarorka þegar erfitt
reynist að uppfylla orkuþörf
einungis frá mat. Calogen
má blanda við mat
og drykk og er því
hægt að orkubæta
máltíðir á ein-
faldan en áhrifa-
ríkan hátt. Einnig
er hægt að taka það
sem staup og þá er
magnið mjög lítið sem
Orka og prótein í hverjum sopa
Mikilvægi góðrar næringar hefur líklega aldrei átt jafn vel við og nú. Gott næringarástand er
einn af grundvallarþáttum líkamlegrar heilsu. Í veikindum skiptir næring miklu máli.
Vöruúrval Nutricia er breitt og er hægt að sérsníða næringarmeðferð fyrir hvern og einn.
þarf að innbyrða hverju sinni.
Nutridrink næringardrykkir
ásamt öðrum næringarvörum frá
Nutricia fást í f lestum apótekum.
Að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum geta einstaklingar sótt um
niðurgreiðslu á næringardrykkj-
um frá Sjúkratrygg-
ingum Íslands sem
gert er í samráði við
lækni eða næringar-
fræðing.
Vöruúrval Nutricia er breitt og
er hægt að sérsníða næringarmeð-
ferð fyrir hvern og einn. Gott er
að leita eftir ráðgjöf ef þess þarf
en einnig er hægt að finna frekari
upplýsingar á heimasíðunni
www. naeringogheilsa.is.
Hugum að fólkinu í kringum
okkur sem er lystarlaust og/eða
á erfitt með að borða og veitum
þeim aðstoð við að velja nær-
ingu sem uppfyllir næringarþörf
líkamans.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 . M A Í 2 0 2 0