Fréttablaðið - 02.05.2020, Side 46
Fréttamaðurinn Will Reeve sýndi
aðeins meira en hann ætlaði í út-
sendingu ABC News í vikunni.
Fréttamaður ABC News lenti í frekar vandræðalegri uppá-komu í vikunni þegar hann
sýndi alheiminum óvart nakin
lærin á meðan hann var að flytja
fréttir að heiman.
Fréttamaðurinn, Will Reeve,
var klæddur í skyrtu og jakka en
var buxnalaus og bjóst ekki við að
myndavélin sýndi neitt fyrir neðan
mitti. En því miður heppnaðist
uppsetning hans á myndavélinni
ekki sérlega vel, þannig að ber
lærin voru í mynd. Sem betur fer
var Reeve samt í boxer-nærbuxum.
Það er algengt að fréttamenn
sem sitja við borð þegar þeir eru
í sjónvarpinu séu bara fínir fyrir
ofan mitti og nú á faraldurstímum
kannast áreiðanlega einhverjir við
að vera í vinnufötum fyrir ofan
mitti fyrir vinnufundi á meðan
þau klæðast náttbuxum eða öðru
þægilegu fyrir neðan mitti. En
mistök Reeve voru að gefa almenn-
ingi aðeins of nána sýn af því sem
leynist bak við tjöldin.
Mistök Reeve voru ekki sjáanleg
fyrr en í lok innskots hans, en þau
sáust vel og margir gerðu grín að
uppákomunni. Reeve hefur sjálfur
haft húmor fyrir óhappinu og gerði
grín að því á Twitter, þar sem hann
sagði að loksins hefði hann slegið í
gegn, á hlægilegasta og vandræða-
legasta hátt sem hægt er.
Var bara á brókinni í beinni
Nýbakað banana- og súkkulaði-
brauð er freisting til að falla fyrir.
Þótt vorsólin vermi okkur nú með geislum sínum er enn svalt í lofti. Því er notalegt
að finna ilm af heitu og nýbökuðu
bananabrauði með morgun-
kaffinu eða þegar komið er inn úr
göngutúr og gæða sér á bakstrin-
um með fjölskyldu og vinum. Það
er einfalt að baka bananabrauð
og það bráðnar í munni. Svona er
uppskriftin:
2 egg
2 dl sykur
3 dl hveiti
½ dl bráðið smjör
½ dl mjólk
2 tsk. vanilludropar
2 tsk. kanill
2 tsk. lyftiduft
2-3 þroskaðir bananar
100 g saxað suðusúkkulaði
Þeytið saman egg og sykur þar
til létt og ljóst. Blandið hinum
hráefnunum vel saman við nema
súkkulaðinu sem er sett síðast út
í hrært deigið. Smyrjið kökuform
og hellið deiginu í formið. Bakið
við 180°C í 40 til 60 mínútur. Látið
svo kólna í 15 mínútur áður en
borðað er. Berið fram með smjöri,
osti, sultu eða hvaða áleggi sem
hugurinn girnist.
Bananabrauð
í helgarfríinu
Hvaðan kom landnámsfólkið?
Erum við öll norsk? MYND/GETTY
Nú á meðan Borgarsögusafn er lokað vegna samkomu-banns er í staðinn boðið
upp á ýmiss konar fjarfræðslu.
Safnið hefur búið til mynd-
band með fræðslu um uppruna
Íslendinga. Samkvæmt rann-
sóknum var Ísland upphaflega
land innflytjenda. En hvaðan kom
landnámsfólkið? Voru þetta allt
heiðnir Norðmenn eða kom fólkið
frá ólíkum menningarheimum?
Þetta eru spurningar sem reynt
er að svara í myndbandinu. Þar
má hlýða á Jón Pál Björnsson,
sagnfræðing og sérfræðing Land-
námssýningarinnar, ræða um
menningu, trú, þrælahald og við-
horf á víkingaöld. Efnið er hugsað
fyrir 7.-10. bekk en að sjálfsögðu
geta allir haft gagn og gaman
af því að horfa. Myndbandið
má finna á þessari vefsflóð:
vimeo. com/407743357.
Hvaðan komu
Íslendingar?
- meiri upplifun!
SUMARNÁMSKEIÐ
SMÁRABÍÓS
HVERT NÁMSKEIÐ ER Í VIKU Í SENN
Mánudaga til föstudaga frá 8. júní til 17. ágúst
kl. 12:30 -16:00 á Skemmtisvæði Smárabíós
TILVALIÐ FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 6 TIL 10 ÁRA
Verð: 20.000 kr.
15% systkinaafsláttur
Frekari upplýsingar á
smarabio.is/namskeid
Leikjasal Lasertag Ratleik Andlitsmálun Virtualmaxx
Blöðrugerð Útilasertag Rush Hópleiki Bíóferð
SKIPULÖGÐ DAGSKRÁ ER ALLA DAGANA
„Kári Jökull sagði að
þetta væri skemmtilegasta
námskeið sem hann hefur
nokkurn tímann farið á :)“
“Snilldarnámskeið!
Minn er svakalega ánægður
og bara takk kærlega
fyrir minn dreng”
“Frábært námskeið!„
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R