Fréttablaðið - 02.05.2020, Qupperneq 54
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur sambýlismaður og vinur,
pabbi, tengdapabbi, afi og langafi,
Sigurður Stefánsson
fv. framkvæmdastjóri
frá Ártúni Hjaltastaðaþinghá,
Steinahlíð 1, Egilsstöðum,
lést aðfaranótt 28. apríl sl. á hjúkrunar-
heimilinu Dyngju á Egilsstöðum. Útför fer fram
frá Egilsstaðakirkju miðvikudaginn 6. maí kl. 14.00.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar við
athöfn í kirkjunni en athöfninni verður streymt á slóðinni:
https://egilsstadaprestakall.com/youtube/.
Aðstandendur þakka starfsfólki á Dyngju fyrir alúð og
umhyggju. Einnig þökkum við auðsýnda samúð og hlýhug.
Guðný Kjartansdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Fjóla Malen Sigurðardóttir Jón Hlíðdal Sigbjörnsson
Sigurþór Sigurðarson Blædís Dögg Guðjónsdóttir
Stefán Sigurðsson Jóhanna Harðardóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Oddur K. Sæmundsson
skipstjóri,
Heiðarhorni 18, Keflavík,
lést á líknardeild HSS, laugardaginn
25. apríl sl. Í ljósi þjóðfélagsaðstæðna fer
útför hans fram að viðstöddum nánustu aðstandendum
þann 7. maí. Minningarathöfn verður auglýst og haldin síðar.
Jónína Guðmundsdóttir
Helga Jóhanna Oddsdóttir Einar Jónsson
Guðmundur J. Oddsson Guðrún Mjöll Ólafsdóttir
Sæmundur J. Oddsson Edda Björk Pétursdóttir
og barnabörnin.
Innilegar þakkir fyrir alla samúð
og hlýjar kveðjur vegna andláts
og útfarar eiginmanns míns,
Steingríms Baldurssonar
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
heimahjúkrunar Háaleitishverfis sem
annaðist hann af alúð í veikindum
síðustu ára.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir,
sonur, bróðir, mágur og afi,
Óskar Hafsteinn Friðriksson
Birkiteigi 7, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum,
mánudaginn 20. apríl. Útförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 6. maí kl. 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt af
Facebook-síðu Þórunnar Kolbrúnar Árnadóttur.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Parkisonsamtökin.
Þórunn Kolbrún Árnadóttir
Árni Grétar Óskarsson Unnur Helga Snorradóttir
Karólína Björg Óskarsdóttir Sigurður Guðjónsson
Friðrik Guðni Óskarsson Aldís Sif Bjarnadóttir
Þórey Jóhanna Óskarsdóttir Haukur Óli Snorrason
Katrín Ósk Óskarsdóttir
Friðrik Grétar Óskarsson Karólína Guðnadóttir
Guðný Svava Friðriksdóttir Valur S. Ingimundarson
Kristinn Geir Friðriksson Björg Hilmarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erla Kristófersdóttir
Álftamýri 59,
lést á Landakoti þann 8. apríl.
Vegna aðstæðna mun útförin fara fram
mánudaginn 4. maí kl. 13.00 í kyrrþey. Hægt
verður að fylgjast með athöfninni á slóðinni www.bui.is.
Hjartans þakkir sendum við starfsmönnum á B4 á
Landspítalanum Fossvogi og K1 á Landakoti fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Hörður Ívarsson
Geir Harðarson Helga Þóra Jónasdóttir
Drífa Harðardóttir Hinrik Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona,
systir og mágkona,
Kristín Ragnarsdóttir
Garðabraut 2a, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 17. apríl
2020. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu
mun útför hennar fara fram í kyrrþey,
þriðjudaginn 5. maí 2020 kl. 13.00 frá Akraneskirkju,
með nánustu ættingjum. Athöfninni verður einnig streymt
frá Akraneskirkju á vefslóðinni: www.akraneskirkja.is
Grettir Ásmundur Hákonarson
Fríða Ragnarsdóttir Ásgeir Rafn Guðmundsson
Ragna Ragnarsdóttir Helgi Þröstur Guðnason
Birna Ragnarsdóttir Kristinn Eiríksson
Leó Ragnarsson Halldóra S. Gylfadóttir
Halldóra og Guðný eru meðal kennara sem halda skáldneistanum á lífi í skólanum.
Tveir vinningshafar af þrem-ur í Vísubotni, vísnasam-keppni grunnskólanema, eru íbúar Fjallabyggðar og af níu vísum úr keppninni sem birtar eru í nýjasta
hefti Stuðlabergs eru fjórir botnar frá
nemendum grunnskólans þar. Hag-
mælska er þó ekki inntökuskilyrði í
skólann að sögn Erlu Gunnlaugsdóttur
skólastjóra og þó hún sé í kvæðamanna-
félaginu í Fjallabyggð þakkar hún sér
ekki þennan árangur heldur bendir á
kennara. Ég byrja á að heyra í Guðnýju
Róbertsdóttur.
„Það hefur alltaf verið mikill áhugi
hér fyrir norðan fyrir kveðskap og
hann hefur smitast inn í grunnskólann.
Því hefur verið vilji til að taka þátt í
vísnasamkeppni grunnskólanema,“
segir Guðný sem hefur kennt börnum á
yngsta stigi við Grunnskólann í Fjalla-
byggð í mörg ár. „Við erum nokkrir
kennarar viðloðandi Þjóðlagasetur
Bjarna Þorsteinssonar og Kvæðamanna-
félagið Rímu í Fjallabyggð sem höfum
áhuga á kvæðamennsku og ást á góðum
ljóðum. Þetta er ekkert í stefnu skólans
en áhuginn smitar út frá sér því okkur
finnst þetta svo skemmtilegt. Fyrir
þorrablótið kennum við börnunum
Yfir kaldan eyðisand, Höldum gleði
hátt á loft, Hér er ekkert hrafnaþing og
Austankaldinn á oss blés, lög sem koma
sjálf krafa upp í hugann. Svona gerist
þetta bara.“
Guðný segir aðallega eldra fólk í
kvæðamannafélaginu en þó séu tvö
börn í 7. bekk byrjuð að kveða með,
Víkingur og Kolfinna. „Fyrir þremur
árum kom upp sú hugmynd að taka
upp kvæðalög og varpa þeim úr kirkju-
turninum út yfir bæinn. Þetta efni var
spilað tvisvar á dag í júlímánuði. Meðal
söngvara voru þrjár ungar stelpur sem
sungu Uppi í háa hamrinum. Það er
ýmislegt brasað hér!“
Skólafólk ið f ylg ist með komu
fuglanna á vorin og nú eru börnin í 1. og
2. bekk að æfa fallegt kvæðalag, Fuglinn
undir bjarginu sem Ólína Þorvarðar-
dóttir syngur á DVD-diski, útgefnum af
Þjóðlagasetrinu, að sögn Guðnýjar. „Þó
Þjóðlagasetrið sé lokað að vetrinum
eru nemendur skólans alltaf velkomnir
þangað þegar þess er óskað og þeir fara
líka reglulega í Ljóðasetrið þar sem Þór-
arinn Hannesson, stofnandi þess, tekur
vel á móti þeim. Þetta hefur allt áhrif.“
Þar sem Guðný hafði fengið aðvörun
frá Erlu skólastjóra um blaðaviðtalið
bað hún börnin að nota síðasta korter
skóladagsins til að setja saman vísu.
„Ég hjálpaði þeim aðeins en mest er frá
þeim,“ segir hún. Svona er vísan:
Veiran hún er ekki góð
Allt að fara í klessu.
Við erum nú að verða óð
yfir öllu þessu.
Tvær línur voru komnar í næsta erindi
en ekki vannst tími til að ljúka því.
Bráðum batnar ástandið
Börnin koma saman.
„Við bjóðum lesendum að botna en
börnin ætluðu að láta þriðju línu enda
á frið og fjórðu línu á gaman!“ segir
Guðný að lokum.
Nýbúar góð skáld
Halldóra Elíasdóttir er kennari á ungl-
ingastigi í Grunnskóla Fjallabyggðar.
Hún segist hafa alist upp við kveðskap,
bæði heima og í sveitinni hjá afa og
ömmu í Langhúsum í Fljótum. „Ljóða-
gerð liggur vel fyrir mörgum krökkum
hér,“ segir Halldóra og minnist á ljóða-
keppni sem Þórarinn í Ljóðasetrinu
efni árlega til.
Þar sé einkum um órímuð ljóð að
ræða, ort út frá málverkum og mynd-
um, stelpur í 8. til 10. bekk hafi verið í
meirihluta vinningshafa í ár. Nýbúar
fái að skrifa ljóðin á sínu tungumáli
sem svo séu þýdd. „Mörg góð ljóð hafa
komið frá þeim hópi,“ lýsir hún.
Halldóra kveðst líka leggja vísnasam-
keppni grunnskólanna fyrir í öllum
bekkjum, þar eigi að botna fyrriparta
og sumir nemendur hafi áhuga á að
gera það vel. „Ég hef hvatt þá nemendur
áfram. Við fengum sérstakar þakkir
frá Menntamálastofnun núna. Það var
ánægjulegt.“
gun@frettabladid.is
Ung skáld í Fjallabyggð
Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar eru öðrum jafnöldrum hagmæltari, samkvæmt
úrslitum í vísnasamkeppni grunnskólanema sem lýst er í nýju hefti Stuðlabergs.
Vinningsbotnar
úr Fjallabyggð
Heim ég fer með létta lund,
leik mér eftir skóla.
Fæ mér drykk og fer í sund,
fer svo út að hjóla.
Aron Óli Ödduson,
nemandí í 4. bekk
Manna verk er mengun öll,
margt sem þarf að laga.
Stöndum upp og stöðvum spjöll,
stefnum á betri daga.
Helena Reykjalín Jónsdóttir,
nemandi í 9. bekk.
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT