Bændablaðið - 23.06.2016, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Umhverfisráðuneytið:
Skoða grundvöll fyrir
miðhálendisþjóðgarði
Umhverfis- og auðlindaráðherra
ætlar að setja á á fót nefnd sem
ætlað verður að kanna forsendur
fyrir stofnun þjóðgarðs innan svo-
kallaðrar miðhálendislínu.
Í frétt á vef umhverfisráðuneyt-
isins segir að nefndin eigi að draga
saman helstu sjónarmið og fyrirliggj-
andi þekkingu er varðar nýtingu og
vernd miðhálendisins, með lang-
tímahagsmuni að leiðarljósi.
Fyrirsjáanlegt er að álag aukist á
svæðinu með aukinni ásókn ferða-
manna og því er mikilvægt að kanna
hvaða stjórntæki séu ákjósanlegust
til að stýra álagi til lengri tíma.
Í nefndinni munu sitja fulltrúar
frá forsætisráðuneyti, Samtökum
ferðaþjónustunnar, Bændasamtökum
Íslands, Samorku, umhverfisverndar-
samtökum, Samtökum útivistarfé-
laga og Sambandi íslenskra sveitar-
félaga auk fulltrúa frá umhverfis- og
auðlindaráðuneyti. Þá munu sér-
fræðingar frá umhverfis- og auð-
lindaráðuneytinu, Umhverfisstofnun
og Vatnajökulsþjóðgarði
starfa með nefndinni auk þess
sem Skipulagsstofnun og
Náttúrufræðistofnun Íslands veita
nefndinni ráðgjöf og upplýsingar.
/VH
Fréttir
Þetta er ærin Höttubotna 04-286
á Ásbjarnarstöðum í Húnaþingi
vestra sem er eins og númerið
gefur til kynna 12 vetra gömul
og hefur borið 36 lömbum á sinni
æfi.
Þóra Kristín Loftsdóttir á
Ásbjarnarstöðum segir að frjósemi
sauðfjár sé kannski löngu hætt
að teljast til tíðinda. Hún segist
þó ekki vita dæmi um aðra eins
endingu hjá svo frjósamri kind eins
og Höttubotnu. Hún var höfð geld
sem gemlingur en hefur borið öll
árin síðan, alls 11 sinnum.
Einu sinni hefur hún verið tví-
lembd, 6 sinnum þrílembd og 4
sinnum fjórlembd. Samtals hefur
hún því eignast 36 lömb á ævinni.
Spurning hvort hún kemst upp í 40
að ári. /HKr.
Afburða frjósöm ær á Ásbjarnarstöðum í Húnaþingi vestra:
Höttubotna hefur borið 11 sinnum
og samtals 36 lömbum
Höttubotna með lömbin sín fjögur í vor, tvær gimbrar og tvo hrúta. Mynd / ÞKL
Nýr samanburður Eurostat á verðlagi innan Evrópu sýnir að matvælaverðlag á Íslandi breytist hlutfallslega gagnvart evru:
Krónan styrktist en verð hélst nær
óbreytt á innfluttum matvælum
− Verð til bænda fyrir framleiðslu á innlendu nauta- og svínakjöti hefur á sama tíma einnig haldist nær óbreytt
Hagstofa ESB, Eurostat, birti
þann 15. júní nýjar tölur um
samanburð á verðlagi milli landa
í Evrópu árið 2015. Þar kemur
fram að hlutfallsleg staða Íslands
versnar nokkuð frá fyrri tölum
Eurostat sem Bændablaðið birti
í byrjun mánaðarins.
Samkvæmt þessum nýju tölum
eru bæði Svíþjóð og Finnland
komið niður fyrir Ísland í verðlagi
á mat og óáfengum drykkjum.
Rétt er að benda á að gengi
krónunnar hefur styrkst verulega
síðustu misseri. Í nýju könnuninni
er miðað við vísitölu meðalgengis
– vöruskiptavog þröng. Samkvæmt
því styrktist gengi krónunnar um
tæp 9% frá maí 2015–maí 2016. Á
sama tíma hélst verð á innfluttum
mat og drykkjarvörum nær óbreytt.
Eins hefur verð til bænda á
svína- og nautgripakjöti sem dæmi
haldist nær óbreytt á sama tímabili.
Skýringa á breyttri stöðu Íslands í
þessum samanburði virðist því í
fljótu bragði vera að leita í geng-
isþróuninni.
Samanburðurinn byggir á rann-
sóknum á verði 440 sambærilegra
vörutegunda í 38 löndum. Matvæli
eru flokkuð í þrjá undirflokka,
brauð og kornvörur, mjólk, ostar
og egg og kjötvörur. Einnig nær
samanburðurinn til áfengis og
tóbaks.
Innan ESB er mikill verðmunur
á matvörum. Þannig er verðlag allt
frá því að vera 65% af meðaltali
ESB í Póllandi upp í að vera 45%
hærra í Danmörku. Næstu lönd
á eftir Danmörku eru Svíþjóð,
Austurríki, Írland, Finnland og
Ísland.
Verðlag matvöru og óáfengra
drykkja á Íslandi var 30% yfir með-
altali Evrópusambandsríkjanna 28
árið 2015. Það var fjórða hæst af 38
Evrópuríkjum sem tóku þátt í sam-
anburðinum (Evrópusambandsríkin
28 auk Íslands, Noregs, Sviss,
Tyrklands, Svartfjallalands,
Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu,
Albaníu, Makedóníu og Kósóvó).
Verðlag á brauði og kornvöru á
Íslandi var 36% yfir meðaltali
Evrópusambandsríkjanna 28, það
var fimmta hæst af ríkjunum 38.
Verðlag á kjötvöru á
Íslandi var 39% yfir meðaltali
Evrópusambandsríkjanna 28, það
var þriðja hæst af ríkjunum 38.
Verðlag á mjólk, osti og eggjum
á Íslandi var 39% yfir meðaltali
Evrópusambandsríkjanna 28, það
var fjórða hæst af ríkjunum 38.
Verðlag á áfengum drykkjum
á Íslandi var 126% yfir meðaltali
Evrópusambandsríkjanna 28, það
var næsthæst af ríkjunum 38.
Verðlag á tóbaki á Íslandi
var 47% yfir meðaltali Evrópu-
sambandsríkjanna 28, það var fjórða
hæst af ríkjunum 38. /EB/HKr.
Hótel Hlíð:
Kristbergur Ó. Pétursson sýnir
Myndlistarmaðurinn Kristbergur
Ó. Pétursson opnaði sýningu í
Hótel Hlíð í Ölfusi 11. júní síð-
astliðinn og stendur hún til 15.
september næstkomandi. Á sýn-
ingunni eru nýjar og nýlegar
myndir, 26 myndir, olíumálverk,
átta vatnslitamyndir og sjö eldri
grafíkmyndir.
Í sýningarskrá vegna sýningar
Kristbergs í Hafnarborg á síðasta
ári sagði Aðalsteinn Ingólfsson um
olíumálverk Kristbergs að sérhver
þessara mynda sé þolinmæðisverk,
þar sem málarinn leggi fram hvert
gagnsætt eða hálfgagnsætt olíulag-
ið ofan á annað, misjafnlega þunn í
samræmi við þá birtu sem hann vill
hafa til staðar á fletinum eða rýmið
sem hann vill skapa. Þessi lög geta
numið mörgum tugum. Áferð er
sömuleiðis hægt að stjórna með því
að ýfa eða skrapa málaðan flötinn
með ýmsum hætti, endurmála hann
síðan eftir hentugleikum. /VH