Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Svokallaður llgresiseyðir
(Herbicides eða weedkillers)
er notaður í gríðarlegu magni
um allan heim. Er því m.a. úðað
yfir akra úr flugvélum eða dælt
yfir korn-, ávaxta-, bómullar- og
olíujurtaakra með risastórum
vinnuvélum. Grænmetisakrar
og garðar fá líka sömu meðferð.
Efnin sem um ræðir heita
ýmsum nöfnum eins og glýfósat,
atrazine, acetrochlor, 2,4-D,
paraquat, bio-herbicide og fleiri
nöfnum.
Árið 2014 var seldur illgresis-
eyðir fyrir 22,3 milljarða Banda-
ríkjadollara á heimsvísu. Það
samsvarar um 2.758 milljörðum
íslenskra króna, eða um fjórföldum
heildartekjum íslenska ríkissjóðs-
ins á þessu ári. Áætlað er að á árinu
2023 muni sala illgresiseyðis nema
38,3 milljörðum dollara.
Asíulönd sem liggja að
Kyrrahafi eru með um 25% af
heildarnotkuninni. Þar á eftir koma
lönd í Norður- og Suður-Ameríku.
Í Bandaríkjunum fer hátt í 90% af
illgresiseyðinum til landbúnaðar.
Tíu risar í framleiðslu
illgresiseyðis
Helstu framleiðendurnir á alþjóða-
markaði eru, auk Monsanto, efna-
iðnaðarfyrirtækin BASF, Bayer AG,
DOW Agriscience LLC, Syngenta
AG, Cheminova A/S, FMC
Corporation, Adama Agricultural
Solutions Ltd, Nufarm Ltd og E.I Du
Pont de Numerous and Company.
Mest er notað af virka efninu
glýfósat, m.a. um nær alla Evrópu.
Efnið 2,4-D er ýmist selt undir
ströngum skilyrðum eða bannað í
Kanada, Danmörku, Noregi og fleiri
löndum. Er það vegna viðurkenndrar
áhættu fyrir heilbrigði manna.
Fyrirtæki eins og Monsanto
hafa framleitt margvísleg afbrigði
sterkra eiturefna sem nota má á
akra þar sem sáð hefur verið eitur-
þolnum tegundum sem fyrirtækið
hefur einkarétt á. Sömu sögu er
að segja af öðrum stórum fyrir-
tækjum á þessu sviði. Þar má t.d.
nefna Syngeta AG sem þróað hefur
Roundup-þolið kornafbrigði sem
heitir Acuron. Þá hefur DuPont
markaðssett Abundit Extra sem er
illgresiseyðir fyrir kornafbrigði sem
eiga að þola glýfósat.
Þótt margir telji sannað að ill-
gresiseyðir sé hættulegur bæði
mönum og dýrum, þá standa
ýmsar tegundir hans aðeins fyrir
hluta þeirra eiturefna sem dælt
er yfir fóður og matjurtir árlega.
Skordýraeitur (Pesticide), sem líka
er stórhættulegt dýralífi og mönnum
er engu minna notað.
Illgresiseyðir og skordýraeitur
eru hliðarafurðir
eiturefnahernaðar
Skordýraeitur er eins og illgresis-
eyðirinn, hliðarafurð eiturefna-
hernaðar og er afleiða af taugagasi.
Taugagas er hannað til að lama
taugaboðsendingar (acetylcholine-
sterase). Það veldur m.a. krampa
hjá mönnum, þrengingar sjón-
sviðs, munnvatnsmyndun þannig
að menn froðufella, ósjálfráðri
hægðarlosun og dauða. Tvær
megingerðir eru skilgreindar á
taugagasi til hernaðar. Önnur
þeirra er af G-seríu og undir það
falla taugagastegundir eins og GA
(Tabun) GB (Sarin) GD (Soman)
og GF (Cyclosarin). Þá kemur gas
undir svokallaðri V-seríu. Þar eru
VR, VG (Tetram), VM (Edomo),
VR sem eru rússnesku afbrigði af
VX taugagasi, V-gas og afleiðan
33 eða R-33.
Talið er að taugagas hafi víða
verið notað í átökum á undanförn-
um árum. Þar eru nefnd löndin
Írak, Afganistan, Íran, Sómalía
og Súdan sem hefur verið ört vax-
andi markaður fyrir taugagas og
skordýraeitur. Þá mun taugagasi
hafa verið beitt í uppreisn í Suður-
Súdan 2013 og í Mósambík sama
ár og í Úkraínu 2014. Er þessi
notkun talin hafa kynt undir þróun
margvíslegra mótefna. Vandinn er
að öll þessi eiturefni hafa þrávirk
áhrif í umhverfinu, m.a. á þann
mikilvæga skordýrastofn, býflugur.
Skordýraeitur er mildara
afbrigði af taugagasi sem ætlað er
að drepa „óæskileg“ skordýr sem
herja gjarnan á uppskeru í landbún-
aði. Er skordýraeitri m.a. óspart
beitt við ávaxta- og grænmetis-
ræktun víða um lönd.
Lyf og efni sem ætluð eru til
að milda afleiðingar af snertingu
við taugagas og skordýraeitur eru
þau sömu fyrir báða efnaflokka,
samkvæmt upplýsingum Market
Recearch Reports. Meðal þeirra
eru: Anticholinergic agents,
Atropine IV/IM, Glycopyrrolate,
Pralidoxime chloride, Benzo-
diazepines, Diazepam og
Butyrylcholinesterase.
Kína orðið öflugasta
skordýraeiturslandið
Öflugasta skordýraeiturslandið af
topp 10-listanum í dag er Kína.
Þar er bæði framleitt mest af skor-
dýraeitri og notkunin er þar einnig
mest í heiminum í dag samkvæmt
samtökum uppskeruverndariðnað-
arins í Kína (China Crop Protection
Industry Association – CCPIA) í
frétt Market Research Reports.biz.
Þar voru framleiddar 3,74 milljónir
tonna af skordýraeitri árið 2014
og hafði þá aukist úr 700 þúsund
tonnum árið 2001.
Tíu efstu framleiðendur skor-
dýraeiturs í heiminum standa fyrir
um 30% af skordýraeiturmarkaðn-
um. Hefur framleiðsla og notkun
aukist hröðum skrefum undanfarin
ár.
Ljóst er að samkvæmt nýlegum
rannsóknum þá er almenningur í
Evrópu að innbyrða mikið magn af
eiturefninu glýfósat. Þar sem skor-
dýraeitur sem drepur dýrin með
tilheyrandi taugavirkni er notað í
miklu magni, ekki síst í ávaxta- og
grænmetisrækt, þá er ekki óvarlegt
að álykta að slíkt geti haft alvarleg
áhrif á heilsu manna.
Vaxandi tíðni ýmissa sjúk-
dóma sem tengjast virkni heilans
í mannfólkinu hlýtur að vekja
spurningar um hvort upprunann
sé að finna í matnum sem fólkið
borðar. Geðrænir sjúkdómar, af
ýmsum toga, eru þar vart undan-
skildir. Líklega sannast þar enn og
aftur máltækið; „Þú ert það sem þú
borðar.“ /HKr.
Varahlutir fyrir ámoksturstæki
Varahlutir í Trima og Alö Quicke ámoksturstæki. Einnig stjórnbarkar, suðufestingar ofl.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Illgresiseyðir seldur fyrir margfaldar
tekjur íslenska ríkisins á hverju ári
– Salan eykst og eykst og við það bætist sala á milljónum tonna af skordýraeitri sem mengar líka jarðveg og allt umhverfi manna