Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Um mánaðamótin rennur út frestur fyrir Evrópu- sambandið til að fram- lengja heimild til notkun- ar á eiturefninu glýfósat í landbúnaði. Glýfósat er virka efnið í efnasamsetn- ingum eins og Roundup sem ætlaðar eru til eyðingar á „illgresi“. Málið snýst þó ekki bara um glýfósat, því samkvæmt frétt Farmers Weekly í Bretlandi þá er beðið svara ESB um heimild til áframhaldandi notk- unar yfir 100 annarra hjálparefna í landbúnaði. Hafa leiðtogar bænda þar í landi varað við afleiðingum seinkunar á að heimila notkun efn- anna. Fjöldi vísindamanna, nátt- úruverndarsinna og áhugafólks um heilsufarslegt öryggi matvæla vill algjört bann á notkun glýfósat. Endurnýja þarf heimildir fyrir notkun á 27 efnum þetta sumarið, 50 efnum fyrir sumarið 2017 og fyrir notkun 59 annarra efna fyrir sumarið 2018. Þá þarf að endur- nýja eða synja leyfi fyrir 60 efni fyrir sumarið 2019 og fleiri efna allt fram til 2031. Fresturinn til að taka ákvörðun um að leyfa, eða hrein- lega banna notkun á glýfósati rennur út 30 júní n.k. Vandinn er að bæði meðal þýsku og frönsku þingfull- trúanna á Evrópuþinginu hefur ekki reynst unnt að ná saman meirihluta til að samþykkja notkunina. Þá eru Svíar taldir á móti notkun, sem og Hollendingar. Cameron vill heimila áframhaldandi notkun á glýfósati Gert er ráð fyrir að fjallað verði um málið innan ESB í dag, fimmtudag, og mun ákvörðunar þá að vænta í kjölfarið. Allt er þetta svo hengt við komandi kosningar í Frakklandi og Þýskalandi sem og Brexit- kosningarnar í Bretlandi sem fram fara í dag, 23. júní. Breska ríkisstjórnin er hlynnt fram- lengingu heimildar til notkun- ar á glýfósati. Þannig er David Cameron forsætisráðherra sann- færður um að heimild verði veitt í Brussel fyrir mánaðamót. Lét hann þá skoðun sína í ljós á fundi sem haldinn var í Yorkshire 9. júní þar sem hann leitaði stuðnings við áframhaldandi veru Breta í ESB. Hélt hann í leiðinni eins konar hringborðsumræður í eldhúsi með nokkrum bændum á svæðinu. Kaldhæðni Kaldhæðnislegt er að meirihluti breskra bænda vill samkvæmt skoðanakönnnunum að Bretar segi sig úr Evrópusambandinu. Breskir bændur hafa reyndar bent á að andstaða meðal frönsku og þýsku fulltrúanna við notkun á glýfósati sýni glöggt hvernig ESB vinni gegn hagsmunum breskra bænda. Cameron var hins vegar ekkert að skafa utan af hlutunum í samræð- um við bresku bændurna og sagði: „Ég nota sjálfur Roundup“ „Ég er sannfærður um að leyfi til notkunar verður framlengt. Ég styð slíka ákvörðun og tel hana nauðsyn- lega. Ég nota sjálfur Roundup í mínum eigin garði. Ég veit hversu mikilvægt þetta er og við eigum að byggja ákvörðunina á vísindalegum rökum. Það er sú rökræða sem við eigum að taka og ég er sannfærður um að við mun um fá þá framlengingu sem við þurfum.“ Athyglisvert er að Cameron skuli nefna að fara eigi eftir vís- indalegum rökum við ákvörðunartökuna. Þar hafa vísindamenn nefni- lega verið með full- yrðingar á báða bóga. Ekki þarf að koma á óvart að vísindamenn tengdir efnarisanum Mosanto hafa haft sig mikið í frammi með full- yrðingum um að glýfósat sé hættu- laust. Neyðarbeiðni um að fá að nota önnur hjálparefni Nýjast í málinu varðandi notkun breskra bænda á hjálparefnum við ræktun á repju er að yfirvöld muni taka afstöðu til neyðarum- sóknar þeirra síðar í mánuðinum. Hún hljóðar upp á að bændum verði heimilt að nota „neon- icotinoid“ meðhöndlað repjufræ á 22% af sínum ökrum í 15 sýslum í Englandi. Það er fræ sem úðað hefur verið með taugavirku skordýraeitri sem hefur ekki ósvipaða virkni og nikótín. Neonicotinoid, eða neonics eins og það er líka kallað, er efni sem var hannað af olíurisanum Shell á níunda áratug síðustu aldar. Efni sem falla undir þennan efnaflokk eru m.a.; acetamiprid, clothianidin, imidacloprid, nitenpyram, nithi- azine, thiacloprid og thiamethoxam. Mest notaða efnið í þessum flokki mun þó vera „Imidacloprid“. Fólk sem barist hefur gegn notk- un hvers konar eiturefna í náttúr- unni, segir að þessi efni séu líka sérlega hættuleg. Einkum fyrir býfl- ugur og önnur skordýr sem leggja náttúrunni lið við frjóvgun plantna. Samtök bænda (NFU) segja aftur á móti að ef bændur megi ekki nota umrædd efni, þá séu þeir neyddir til að nota 240.000 lítra af pyrethoid, sem sé enn hættulegra. Málið er nú til skoðunar hjá EFRA (Department for Environment, Food & Rural Affairs). Ekki er búist við niðurstöðu fyrr en undir lok júní, eða eftir BREXIT-kosningarnar. /HKr. Cameron í hringborðsumræðum með nokkrum breskum bændum. Mynd / Johann Tasker Kaldhæðnislegur stuðningur David Cameron við breska bændur sem að meirihluta vilja yfirgefa ESB: Breski forsætisráðherrann vill framlengja leyfi til notkunar á eiturefninu glýfósat – Telur slíka ákvörðun nauðsynlega og segist sjálfur nota Roundup í eigin garði Key actives and expiration of approval dates Substance Expiration date Amitrole (aminotriazole) 30 June 2016 Glyphosate (incl trimesium aka sulfosate) 30 June 2016 Isoproturon 30 June 2016 Carfentrazone-ethyl 31 July 2016 Cyazofamid 31 July 2016 Ethofumesate 31 July 2016 Fenamidone 31 July 2016 Foramsulfuron 31 July 2016 Imazamox 31 July 2016 Isoxaflutole 31 July 2016 Linuron 31 July 2016 Mesotrione 31 July 2016 Pendimethalin 31 July 2016 Trifloxystrobin 31 July 2016 2,4-DB 31 October 2016 Beta-Cyfluthrin 31 October 2016 Coniothyrium minitans 31 October 2016 Deltamethrin 31 October 2016 Dimethenamid-P 31 October 2016 Flufenacet (formerly fluthiamide) 31 October 2016 Flurtamone 31 October 2016 Fosthiazate 31 October 2016 Iodosulfuron 31 October 2016 Iprodione 31 October 2016 Maleic hydrazide 31 October 2016 Picoxystrobin 31 October 2016 Silthiofam 31 October 2016 Benzoic acid 31 January 2017 Flazasulfuron 31 January 2017 Mecoprop-P 31 January 2017 Mesosulfuron 31 January 2017 Propiconazole 31 January 2017 Propoxycarbazone 31 January 2017 Propyzamide 31 January 2017 Pyraclostrobin 31 January 2017 Zoxamide 31 January 2017 Acetamiprid 30 April 2017 Mepanipyrim 30 April 2017 Pseudomonas chlororaphis strain MA342 30 April 2017 Quinoxyfen 30 April 2017 Thiacloprid 30 April 2017 Thiram 30 April 2017 Bentazone 30 June 2017 Diquat (dibromide) 30 June 2017 Famoxadone 30 June 2017 Flumioxazine 30 June 2017 Flupyrsulfuron-methyl (DPX KE 459) 30 June 2017 Metalaxyl-M 30 June 2017 Picolinafen 30 June 2017 Prosulfuron 30 June 2017 Pymetrozine 30 June 2017 Thiabendazole 30 June 2017 Thifensulfuron-methyl 30 June 2017 Alpha-Cypermethrin (aka alphamethrin) 31 July 2017 Ampelomyces quisqualis strain AQ10 31 July 2017 Benalaxyl 31 July 2017 Bifenazate 31 July 2017 Bromoxynil 31 July 2017 Chlorpropham 31 July 2017 Desmedipham 31 July 2017 Etoxazole 31 July 2017 Gliocladium catenulatum strain J1446 31 July 2017 Imazosulfuron 31 July 2017 Laminarin 31 July 2017 Methoxyfenozide 31 July 2017 Phenmedipham 31 July 2017 S-Metolachlor 31 July 2017 1-Methyl-cyclopropene 31 October 2017 Chlorothalonil 31 October 2017 Chlorotoluron 31 October 2017 Cypermethrin 31 October 2017 Daminozide 31 October 2017 Indoxacarb 31 October 2017 MCPA 31 October 2017 MCPB 31 October 2017 Thiophanate-methyl 31 October 2017 Tribenuron (aka metometuron) 31 October 2017 Chlorpyrifos 31 January 2018 Chlorpyrifos-methyl 31 January 2018 Clothianidin 31 January 2018 Copper oxychloride 31 January 2018 Dimoxystrobin 31 January 2018 Mancozeb 31 January 2018 Maneb 31 January 2018 Oxamyl 31 January 2018 Pethoxamid 31 January 2018 Bacillus subtilis str. QST 713 30 April 2018 Clodinafop 30 April 2018 Clopyralid 30 April 2018 Cyprodinil 30 April 2018 Dichlorprop-P 30 April 2018 Fosetyl 30 April 2018 Metconazole 30 April 2018 Metrafenone 30 April 2018 Pirimicarb 30 April 2018 Pyrimethanil 30 April 2018 Rimsulfuron (aka renriduron) 30 April 2018 Spinosad 30 April 2018 Thiamethoxam 30 April 2018 Tolclofos-methyl 30 April 2018 Triclopyr 30 April 2018 Trinexapac (aka cimetacarb ethyl) 30 April 2018 Triticonazole 30 April 2018 Benthiavalicarb 31 July 2018 Boscalid (formerly nicobifen) 31 July 2018 Captan 31 July 2018 Dimethoate 31 July 2018 Dimethomorph 31 July 2018 Ethephon 31 July 2018 Ethoprophos 31 July 2018 Fluoxastrobin 31 July 2018 Folpet 31 July 2018 Glufosinate 31 July 2018 Methiocarb (aka mercaptodimethur) 31 July 2018 Metribuzin 31 July 2018 Pirimiphos-methyl 31 July 2018 Propamocarb 31 July 2018 Prothioconazole 31 July 2018 Clomazone 31 October 2018 Fludioxonil 31 October 2018 Prosulfocarb 31 October 2018 Amidosulfuron 31 December 2018 Bifenox 31 December 2018 Chloridazon (aka pyrazone) 31 December 2018 Clofentezine 31 December 2018 Dicamba 31 December 2018 Difenoconazole 31 December 2018 Diflubenzuron 31 December 2018 Diflufenican 31 December 2018 Fenoxaprop-P 31 December 2018 Fenpropidin 31 December 2018 Imazaquin 31 December 2018 Lenacil 31 December 2018 Nicosulfuron 31 December 2018 Picloram 31 December 2018 Quinoclamine 31 December 2018 Fluazinam 28 February 2019 Flutolanil 28 February 2019 Mepiquat 28 February 2019 Abamectin (aka avermectin) 30 April 2019 Bacillus thuringiensis subsp. Aizawai strains ABTS- 1857 and GC-91 30 April 2019 Bacillus thuringiensis subsp. Kurstaki strains ABTS 351, PB 54, SA 11, SA12 and EG 2348 30 April 2019 Beauveria bassiana strains ATCC 74040 and GHA 30 April 2019 Cydia pomonella Granulovirus (CpGV) 30 April 2019 Epoxiconazole 30 April 2019 Fenpropimorph 30 April 2019 Fenpyroximate 30 April 2019 Lecanicillium muscarium (formerly Verticillium lecanii) strain Ve6 30 April 2019 Metarhizium anisopliae var. anisopliae strain BIPESCO 5/F52 30 April 2019 Phlebiopsis gigantea (several strains) 30 April 2019 Pythium oligandrum M1 30 April 2019 Streptomyces K61 (formerly S. griseoviridis) 30 April 2019 Trichoderma harzianum strains T-22 and ITEM 908 30 April 2019 Verticillium albo-atrum (formerly Verticillium dahliae) strain WCS850 30 April 2019 Imidacloprid 31 July 2019 Metazachlor 31 July 2019 (E,E)-8,10-Dodecadien-1-ol 31 August 2019 Acetic acid 31 August 2019 Aluminium ammonium sulphate 31 August 2019 Aluminium phosphide 31 August 2019 Capric acid (CAS 334-48-5) 31 August 2019 Caprylic acid (CAS 124-07-2) 31 August 2019 Carbon dioxide 31 August 2019 Cymoxanil 31 August 2019 Ethylene 31 August 2019 Fatty acids C7-C18 and C18 unsaturated potassium salts (CAS 67701-09-1) 31 August 2019 Garlic extract 31 August 2019 Gibberellic acid 31 August 2019 Gibberellin 31 August 2019 Iron sulphate 31 August 2019 Lauric acid (CAS 143-07-7) 31 August 2019 Magnesium phosphide 31 August 2019 Metamitron 31 August 2019 Oleic acid (CAS 112-80-1) 31 August 2019 Pelargonic acid (CAS 112-05-0) 31 August 2019 Pepper 31 August 2019 Plant oils / Citronella oil 31 August 2019 Plant oils / Spearmint oil 31 August 2019 Potassium hydrogen carbonate 31 August 2019 Pyrethrins 31 August 2019 Sodium hypochlorite 31 August 2019 Tebuconazole 31 August 2019 Urea 31 August 2019 Tebufenpyrad 31 October 2019 Chlormequat 30 November 2019 Propaquizafop 30 November 2019 Quizalofop-P-ethyl 30 November 2019 Quizalofop-P-tefuryl 30 November 2019 zeta-Cypermethrin 30 November 2019 Dimethachlor 31 December 2019 Etofenprox 31 December 2019 Penconazole 31 December 2019 Sulphur 31 December 2019 Tetraconazole 31 December 2019 Tri-allate 31 December 2019 Triflusulfuron 31 December 2019 Cyflufenamid 31 March 2020 Fluopicolide 31 May 2020 Proquinazid 31 July 2020 Spirodiclofen 31 July 2020 Flonicamid (IKI-220) 31 August 2020 Sulfuryl fluoride 31 October 2020 Napropamide 31 December 2020 Bromuconazole 31 January 2021 Buprofezin 31 January 2021 Fenbuconazole 30 April 2021 Metosulam 30 April 2021 Quinmerac 30 April 2021 6-Benzyladenine 31 May 2021 Bupirimate 31 May 2021 Carbetamide 31 May 2021 Carboxin 31 May 2021 Clethodim 31 May 2021 Cycloxydim 31 May 2021 Cyproconazole 31 May 2021 Dazomet 31 May 2021 Diclofop 31 May 2021 Dithianon 31 May 2021 Dodine 31 May 2021 Fenazaquin 31 May 2021 Fenoxycarb 31 May 2021 Flutriafol 31 May 2021 Hymexazol 31 May 2021 Indolylbutyric acid 31 May 2021 Isoxaben 31 May 2021 Metaldehyde 31 May 2021 Myclobutanil 31 May 2021 Paclobutrazol 31 May 2021 Pencycuron 31 May 2021 tau-Fluvalinate 31 May 2021 1-Naphthylacetamide (1-NAD) 31 December 2021 1-Naphthylacetic acid (1-NAA) 31 December 2021 Azoxystrobin 31 December 2021 Fluazifop-P 31 December 2021 Fluquinconazole 31 December 2021 Fluroxypyr 31 December 2021 Imazalil (aka enilconazole) 31 December 2021 Kresoxim-methyl 31 December 2021 Prochloraz 31 December 2021 Prohexadione 31 December 2021 Spiroxamine 31 December 2021 Tefluthrin 31 December 2021 Terbuthylazine 31 December 2021 Metam (incl -potassium and -sodium) 30 June 2022 Esfenvalerate 31 December 2022 Fenpyrazamine 31 December 2022 Fluxapyroxad 31 December 2022 Adoxophyes orana GV strain BV-0001 31 January 2023 Benzovindiflupyr 02 March 2023 Isopyrazam 31 March 2023 lambda-Cyhalothrin 31 March 2023 Metsulfuron-methyl 31 March 2023 Trichoderma asperellum (strain T34) 31 May 2023 Ametoctradin 31 July 2023 Mandipropamid 31 July 2023 Bacillus firmus I-1582 30 September 2023 Bixafen 30 September 2023 Candida oleophila strain O 30 September 2023 Maltodextrin 30 September 2023 Potassium phosphonates (formerly potassium phosphite) 30 September 2023 Spiromesifen 30 September 2023 Fluopyram 31 January 2024 Penflufen 31 January 2024 Pyriofenone 31 January 2024 Sedaxane 31 January 2024 Chlorantraniliprole 30 April 2024 Penthiopyrad 30 April 2024 Pyroxsulam 30 April 2024 Spirotetramat 30 April 2024 Tembotrione 30 April 2024 Amisulbrom 30 June 2024 Ipconazole 31 August 2024 Aminopyralid 31 December 2024 Metaflumizone 31 December 2024 Metobromuron 31 December 2024 Meptyldinocap 31 March 2025 Pinoxaden 30 June 2026 2,4-D 31 December 2030 Fenhexamid 31 December 2030 Ferric phosphate 31 December 2030 Florasulam 31 December 2030 Pyridate 31 December 2030 Sulfosulfuron 31 December 2030 Acibenzolar-S-methyl (benzothiadiazole) 31 March 2031 Pyraflufen-ethyl 31 March 2031 Hönnun gróðureyðingarefna á sér áratuga sögu og er nátengd eiturefnahernaði. Glýfosat (Glyphosate) var fyrst sett saman af svissneska efnafræðingn- um Henry Martin árið 1950, en hann starfaði þá hjá svissneska fyrirtæk- inu Cilag. Uppfinning hans var þó aldrei gefin út eða sótt um einkaleyfi á henni. Það mun síðan hafa verið Stauffer Chemical-fyrirtækið sem sótti um einkaleyfi á efninu árið 1964 sem efnafræðilegt „gripefni“ sem bundist getur steinefnum eins og calcium, magnesím, mangani, kopar og zinki. Það var svo um 1970 sem efnafræðingurinn John E. Franz hjá efnafyrirtækinu Monsanto í Bandaríkjunum, enduruppgötvaði efnaformúluna í þeim tilgangi að drepa illgresi. Monsanto markaðssetti síðan gróðureyðingarefnið Roundup árið 1974, en virka efnið í því er einmitt glýfósat. Segja má að Roundup sé afsprengi eiturefnahernaðar. Í fjölda ára áður en Roundup kom til var Monsanto búið að gera glæpsamlegar tilraunir, í samvinnu við Bandaríkjaher og níu önnur verktakafyrirtæki, með efni til að eyða laufi í skógum í Víetnam-stríðinu. Var þá úðað yfir skóga og íbúa sem þar lifðu gríðarlegu magni af baneitruðum efnasamböndunum 2,4-D og 2,4,5-T. Innan hersins var það kallað Agent Orange vegna litarins. Úðun þessara efna hafði hrikalegar afleiðingar fyrir íbúa á þeim svæðum sem því var dreift. Hundruð þúsunda létu lífið og mikill fjöldi vanskapaðra barna fæddist í kjölfarið. Var þessi glæpur í raun viður- kenndur með samkomulagi sem síðar var gert um greiðslu á skaðabótum. Hið baneitraða 2,4,5-T (Agent Orange) ekki bannað fyrr enn 1985 Samkvæmt heimasíðu Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna (US Enviromental Protection Agency –EPA), hefur 2,4-D efnablandan verið mikið notuð sem gróðureyðingarefni allt frá því á fimmta áratug síðustu aldar. Var það með heimild yfirvalda og er skilgreint sem „temmilega eitrað“. Á síðu EPA kemur einnig fram að við hönnun á Agent Orange voru notuð efnasamböndin 2,4-D og 2,4,5-T ásamt, steinolíu og dísilolíu. Efnasambandið 2,4,5-T inniheldur mikið magn af baneitruðu díoxíni, en díoxín er ekki í „merkjanlegu magni“ í 2,4-D. EPA bannaði ekki alla notkun á 2,4,5-T fyrr en árið 1985 og segir að það sé ekki lengur heimilt að nota það innan Bandaríkjanna. Ekkert kemur fram um hvort enn sé samt verið að nota Agent Orange. Monsanto hefur á undanförnum árum helst verið þekkt fyrir að þróa ýmis einkaleyfisvarin kornafbrigði sem þola glýfósat. Fyrirtækið hefur ekki látið þar við sitja heldur einnig unnið að þróun afbrigða sem þola Agent Orange. Væntanlega með það í huga að þegar önnur gróður- eyðingarefni duga ekki lengur, þá verði hægt að úða akrana með Agent Orange eða afbrigðum af því. Glýfósat er einn hlekkur í áratuga þróunarsögu gróðureyðingarefna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.