Bændablaðið - 23.06.2016, Side 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Gott gróffóður er nauðsynlegt til
þess að framleiða mjólk og kjöt
á hagkvæman hátt, bæði með
nautgripum og sauðfé.
Það er mjög margt sem hefur áhrif
á gæði gróffóðursins. Plöntutegundir
hafa áhrif og þar með ræktun. Í
gömlum túnum er oft mikið um
tegundir sem þroskast mjög hratt
á vorin, á meðan nýrri tún hafa
tegundir sem tekur aðeins lengri
tíma að þroskast, en gefa einnig
töluvert mikla uppskeru án þess að
vaxa úr sér.
Með auknum þroska lækkar
næringargildi grasanna (og
fóðursins), próteinið minnkar, trénið
eykst, meltanleikinn minnkar og þar
með orkugildi fóðursins. Það vita því
allir sem framleiða gróffóður að til
þess að ná inn orku og próteinríku
gróffóðri, sem á að skila miklum
afurðum, má alls ekki slá of seint.
Hins vegar verðum við að hafa það
líka í huga að bæði nautgripir og
sauðfé eru grasbítar og jórturdýr.
Þau eru þannig gerð að til þess að
meltingarfæri þeirra virki sem best
er nauðsynlegt að tryggja góða
vambarstarfsemi. Ef við gefum þeim
fóður, sem ögrar vambarstarfseminni,
fáum við ekki þá framleiðslu sem við
væntum. Þetta á reyndar bæði við
um of gróft og of fínt fóður. Ef við
gefum úr sér sprottið gróft fóður er
það orkusnautt, stoppar lengi við í
vömbinni því það kemst ekki áfram
niður meltingarfærin fyrr en agnirnar
eru orðnar mjög smáar og það tekur
langan tíma að brjóta það niður.
Þetta hefur neikvæð áhrif á át. Það
er hreinlega hægt að svelta jórturdýr
á of illmeltanlegu fóðri, þó það sé
nóg af því á garðanum/ganginum.
Ef við hins vegar förum í öfgarnar í
hina áttina og sláum allt fóður mjög
snemma og lítið þroskað, fáum við
mjög próteinríkt og trénissnautt
fóður. Þetta fóður reiknast með
gott orkugildi og flokkast sem
úrvalsfóður. En það getur verið
erfitt að hafa eingöngu svona fóður
í boði því þegar „strúktúr“ vantar í
vömbina, virkar hún ekki eins vel
og hún gæti. Einkenni þessa eru t.d.
að kýr verða latar, þær éta minna
og framleiða þar af leiðandi líka
minna. Próteinið sem er í svo miklu
magni í þessu gróffóðri nýtist ekki
í vömbinni og því þarf að skola því
út sem úrefni, það nýtist því ekki í
mjólkurpróteinframleiðslunni. Þetta
fóður hefur einnig neikvæð áhrif á
fitu í mjólk.
Þetta hvort tveggja er dæmi um
öfgar, en öfgar sem ennþá finnast.
Mikilvægt er að eiga til fóður sem
hefur góðan „strúktúr“ og það er
líka mikilvægt að eiga fóður sem
hefur hátt orkugildi. Því þarf að
fara milliveginn þegar sláttutími er
ákveðinn og mikilvægt að þekkja
vel þær tegundir sem eru í túninu
og geta metið þroskastig þeirra og
þar með væntanlegt næringargildi
fóðursins. Ef við ætlum að framleiða
mismunandi gerðir af gróffóðri
þannig að meðaltalið verði gott er
eins mikilvægt að fóðrunin á því sé
í samræmi við það. Þegar um kýr er
að ræða er mikilvægt að þær fái ekki
það næringarsnauða einn daginn og
næsta dag það næringarríka, og að
þær geti auðveldlega valið á milli
tegunda því þær velja ekki endilega
það sem er þeim sjálfum fyrir
bestu eða skilar mestri framleiðslu.
Því skiptir tæknin við gjafir mjög
miklu máli þegar ákveðið er hvernig
heyskapurinn á að vera. Við verðum
að framleiða fóður sem hentar þeim
fóðrunaraðferðum sem búið er að
fjárfesta í svo fóðrið nýtist sem best.
Ef við getum ekki blandað fóðrið
eða tryggt jafnt aðgengi gripa að
öllu fóðri, sem á boðstólum er,
verðum við að framleiða einsleitt
fóður. Í sauðfjárbúskap er hins
vegar mjög mikilvægt að framleiða
mismunandi gróffóður eftir
tímabilum en „prinsippið“ er það
sama, of seint slegið er ekki gott
og of snemmslegið getur líka verið
erfitt fyrir gripina. Það er einnig
mikilvægt fyrir sauðfjárbændur
að framleiða fóður sem hentar
fóðrunartækni hvers og eins. Þegar
gefið er á garðann tvisvar á dag er
auðvelt að fylgjast vel með áti, gefa
jafnvel mismunandi tegundir fóðurs
saman o.s.frv., en þegar gjafagrindur
eru notaðar er eins mikilvægt og hjá
kúabændum að framleiða einsleitara
fóður.
Verkun gróffóðurs skiptir öllu
máli
Auðveldast er að ná fram góðri
gerjun í gróffóðri þegar það er slegið
og hirt þegar plönturnar eru þurrar
(ekki votar eftir rigningu eða dögg)
en einnig er mikilvægt að slá þegar
sykurinnihald (auðleyst kolvetni) í
plöntunni er sem mest. Sem sagt,
eftir hádegi á sólríkum degi. Þegar
sólin skín á grasið verður ljóstillífun
og þar með sykurframleiðsla í
plöntunum, sólríkur dagur gefur
einnig þurran svörð.
Þegar gróffóður verkast hvort
sem er í rúllum eða stæðum brotnar
sykurinn niður og við það myndast
sýra. Einnig brotnar próteinið
niður að vissu marki. Eftir því sem
þurrefnið er minna í fóðrinu við
verkun verður meiri gerjun. Það
er mjög mikilvægt að tryggja rétta
gerjun í votheyi og blautum rúllum.
Ef gerjunin heppnast ekki vel sjáum
við meiri smjörsýru og ammoníak í
heysýnunum. Þannig fóður ést ekki
vel, það hefur líka lægra orku- og
AAT-gildi. Því getur verið heppilegt
að nota íblöndunarefni til að tryggja
góða gerjun.
Grænfóður er töluvert vinsælt
í framleiðslu, sérstaklega fyrir
mjólkurkýr. Það sem skiptir mestu
máli til að tryggja góða verkun á
grænfóðri er að nota íblöndunarefni
því þetta fóður er oftar en ekki
töluvert blautt þegar það er hirt.
Einnig skiptir hér mjög miklu
máli að vanda vel til verka svo
jarðvegsmengun verði í algjöru
lágmarki. Mjög algengt er að
sjá á niðurstöðum efnagreininga
að grænfóðurverkun hafi ekki
heppnast. Þá er of mikil smjörsýra,
of mikið ammoníak, oft mjög mikið
járn og jafnvel hættulega mikið
nítrat. Þetta gerist ef ekki eru notuð
íblöndunarefni til að tryggja rétta
gerjun þannig að smjörsýrubakteríur
nái sér síður á strik og gerjunin stoppi
tímanlega þannig að próteiniðurbrot
verði ekki of mikið og þar með
hæfilegt magn ammoníaks í fóðrinu.
Mikið járninnihald í fóðri gefur
vísbendingu um jarðvegsmengun og
þegar hún á sér stað er alltaf erfitt
að tryggja góða gerjun. Mikið nítrat
verður gjarna í fóðrinu ef slegið er
eftir mikið sólarleysi og eins getur
mjög mikill búfjáráburður haft þau
áhrif. Það er vont að leggja mikila
vinnu og kostnað í grænfóðuræktun
ef hún svo misheppnast, vanda þarf
vel til verka, bregðast við ef tíðin er
erfið og reyna með öllum ráðum að
tryggja góða gerjun í grænfóðrinu
eins og öðru gróffóðri.
Íblöndunarefni
Það er ekki mjög algengt að setja
íblöndunarefni í rúllur á Íslandi,
sérstaklega ekki ef fóðrið er eitthvað
forþurrkað. Hins vegar er umræðan
um íblöndunarefni að aukast og
notkunin um leið. En þá er alltaf
spurningin hvenær það svarar
kostnaði að nota íblöndunarefni í
rúllur? Og hvaða íblöndunarefni er
heppilegast að velja hverju sinni?
Til eru mörg mismunandi
íblöndunarefni, en þeim mætti
skipta í tvo meginflokka. Annars
vegar er um að ræða kemísk-efni
sem beitt er til þess að lækka
sýrustig og hins vegar bakteríur
(gerlar), sem eru notaðar til að lækka
sýrustigið. Í Noregi er venjan að
nota kemísk íblöndunarefni enda
eru aðstæður þar oft þannig að þau
henta betur, óstöðugt veður og lítill
sykur í fóðrinu. Hins vegar er mun
algengara að nota bakteríur eftir því
sem sunnar er farið, eins og t.d. í
Danmörku og Hollandi.
Ef nota á bakteríur er nauðsynlegt
að slá þegar nógur sykur er í
plöntunum til að tryggja rétta gerjun.
Bakteríurnar brjóta niður sykurinn
(þeirra fóður) og mynda mjólkursýru
sem lækkar sýrustigið í fóðrinu og
tryggir rétta gerjun. Vanti sykur ná
þessar bakteríur sér ekki nógu vel á
strik og þá getur farið af stað röng
gerjun með vaxandi smjörsýru í
fóðrinu. Að nota bakteríur sem
íblöndunarefni hefur marga kosti,
efni sem innihalda þær eru ekki jafn
hættuleg í meðhöndlun og kemísk
efni og fara oftar en ekki betur með
tækin. Eins og fyrr kom fram þarf að
vanda til verka þegar nota á bakteríur
sem íblöndunarefni, þær virka best í
fóður sem er slegið þegar plönturnar
eru þurrar, sykurinnihaldið hátt og
þegar hirt er við a.m.k. 30% þurrefni.
Við aðstæður sem eru aðeins
meira krefjandi eins og þegar rignir
í slegið fóður, eða það hefur verið
slegið mjög blautt eða í bleytu,
hafa athuganir í Noregi sýnt fram
á að öruggara sé að nota kemísk
íblöndunarefni, því við þessar
aðstæður eiga bakteríurnar oft erfitt
uppdráttar, sykur fyrir þær sem eiga
að mynda mjólkursýruna vantar og
smjörsýrubakteríur ná sér á strik,
enda geta þær notað mjólkursýru
sem næringu. Smjörsýrubakteríur
þrífast hins vegar illa þegar þurrefni
fóðursins er komið yfir 30%. Við
þessar erfiðari aðstæður tryggjum
við frekar góða gerjun með kemísk-
um efnum en bakteríum, gerjunin
verður ekki eins sterk (minni magn
af sýrum eftir að jafnvægi er náð),
hún varðveitir betur sykurinnihald
fóðursins og einnig verður minna
próteinniðurbrot, en þetta þrennt
gerir fóðrið lystugra en það annars
yrði. Þannig fáum við fóður sem ést
betur og hefur hærra orku- og AAT-
gildi en ella.
Við forþurrkun á fóðrinu og
góðar aðstæður í heyskap er minni
þörf fyrir íblöndunarefni því við
þær aðstæður verður niðurbrot
á næringarefnum mun minna en
þegar fóðrið er hirt blautara. En
þá eru vinnubrögðin í heyskapnum
ennþá mikilvægari. Rúllurnar endast
betur ef þær eru þétt rúllaðar og vel
pakkaðar og ekki jarðvegsmengaðar.
Mjög mikilvægt er að spara ekki
plastið, því þegar rúllurnar eru
forþurrkaðar og þurrefnisprósentan
orðin hærri er kannski ekki eins
mikil hætta á rangri gerjun, en ennþá
er hætta á myglu. Hægt er að kaupa
mylguvarnarefni sem er blandað í
fóðrið en það er líka vel hægt að
komast af án þeirra ef vandað er vel
til verka. Norskar athuganir hafa
þó sýnt að þó fóðrið sé forþurrkað
(þurrefni allt að 50%) geti borgað sig
að nota íblöndunarefni, sérstaklega í
það fóður sem á að endast langt fram
á veturinn og jafnvel fram á vor.
Nokkur atriði sem gott er
að hafa í huga þegar velja á
íblöndunarefni:
• Ef þú verkar í stæðu og verður
að gera hlé á hirðingunni áður
en þú klárar að setja í stæðuna,
er gott að setja aðeins meira af
sýru í efsta lagið til að hindra
hitamyndun og muna að
pressa það lag sérstaklega vel.
• Ef grasið er mjög blautt (25%
þurrefni eða lægra) er líklega
best að nota kemísk íblöndun-
arefni því í þessum tilfellum
er hætt við því að með bakter-
íum verði magn sýra í fóðrinu
svo mikið að það hafi neikvæð
áhrif á átið. Einnig eru meiri
líkur á að smjörsýrubakteríur
nái sér á strik og ammoníak í
fóðrinu verð mjög hátt.
• Sé um góðar aðstæður að ræða
við slátt og hirðingu (þurrefni
um 30% eða hærra) skiptir
valið á íblöndunarefni ekki
eins miklu máli, þ.e. hvort um
er að ræða kemísk efni eða
bakteríur. Það getur verið gott
að velja efni sem innihalda
einnig mygluvarnir.
• Þegar valin eru íblöndunarefni
sem innihalda bakteríur
er ágætt að hafa ekki bara
m j ó l k u r s ý r u m y n d a n d i
bakteríur heldur blöndu
af bakteríum sem einnig
framleiða edik- og/eða
própíonsýru. Athuganir hafa
sýnt að þá náist jafnvægi fyrr,
heildarmagn sýra verði aðeins
minna, niðurbrot á próteini
minna og gróffóðurgæðin þar
með meiri.
Gangi ykkur vel í heyskapnum
í sumar og vonandi verður
tíðin betri í ár en í fyrra.
Hitablásarar og rafstöðvar
Hitablásari
HDK 30T - 30Kw
brennir steinolíu og dísil
Hitablásari
HDK 15T - 15Kw
brennir steinolíu og dísil
Rafstöð 1,36 kw - STE3000
Rafstöð 7,5 kw - STE8000
Rafstöð 1,3 kw - STE2000
Eigum einnig fyrirliggjandi
| |
Gott gróffóður gulli betra
– Mikilvægt er að framleiða gróffóður sem hentar þeirri fóðrunaraðstöðu sem hver og einn hefur fjárfest í
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Berglind Ósk
Óðinsdóttir
fóðurfræðingur og ráðu-
nautur hjá RML