Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Árið 2015 var að mörgu leyti
sögulegt sé litið til evrópskrar
mjólkurframleiðslu en það ár
var mjólkurkvótinn aflagður í
Evrópusambandinu.
Þessi breyting á framleiðslukerfi
hafði veruleg áhrif á þróun
mjólkurframleiðslunnar á
síðari hluta ársins og sést þess
berleg merki þegar horft er
til mjólkurframleiðslunnar
á Norðurlöndunum þar sem
þrjú af fimm löndum eru í
Evrópusambandinu.
Enn fækkar kúabúunum
Þróun síðustu áratuga heldur
áfram og heldur kúabúum á
Norðurlöndunum áfram að fækka
og fækka. Um áramótin síðustu var
heildarfjöldi kúabúanna 24.730 (sjá
töflu 1) og hafði búunum fækkað
á árinu um 1.595 talsins eða um
6,4%.
Langmest fækkun búa varð í
Noregi en þar hættu 769 kúabú
á árinu, eða sem nemur 8,8%
starfandi búa. Þar á eftir kom svo
Finnland en þar fækkaði búunum
um 480 á árinu, eða um 6,1%.
Minnst hlutfallsleg fækkun varð í
Danmörku en þar fækkaði búunum
einungis um 119 á árinu eða 3,6%
Norðurlöndin framleiddu
12,3 miljarða kg
Eins og sést við skoðun á töflu
1 þá endaði mjólkurframleiðsla
Norðurlandanna í 12,3 milljörð-
um kg árið 2015 sem er aukning
um 2,0% frá fyrra ári. Afar misjafnt
var á milli einstakra landa hvern-
ig framleiðslan þróaðist á árinu.
Þannig jókst hún langmest á Íslandi
eða um 9,4% frá fyrra ári, um 3,2%
í Danmörku, um 1,8% í Noregi og
um 1,6% í Finnlandi.
Í Svíþjóð stóð mjólkur-
framleiðslan hins vegar í stað á
milli ára þrátt fyrir að framleiðslan
væri frjáls. Þegar horft er til mjólk-
urmagnsins er dönsk mjólkurfram-
leiðsla sem fyrr í sérflokki með 5,3
milljarða kílóa mjólkur og stend-
ur undir 42,9% allrar framleiðslu
Norðurlandanna. Þar á eftir kemur
Svíþjóð með 23,9% og Finnland
með 19,5%.
1,5 milljónir mjólkurkúa
Á sama tíma og kúabúunum fækkar
nokkuð ört hefur fjöldi mjólkurkúa
á Norðurlöndunum hins vegar auk-
ist en heildarfjöldi þeirra jókst um
54 þúsund á síðasta ári miðað við
fyrra ár. Mest jókst fjöldi mjólkur-
kúa í Danmörku, eða um 32 þúsund
kýr og næstmest í Noregi þar sem
fjöldi þeirra jókst um 27 þúsund
kýr. Á sama tíma fækkaði kúm hins
vegar í Svíþjóð um 6 þúsund kýr.
Þessar kýr mjólka eðlilega mis-
mikið eftir löndum, kúakyni og
framleiðsluaðferðum en sé horft
til þeirrar mjólkur sem skilar sér í
afurðastöðvar og svo heildarfjölda
kúnna á Norðurlöndunum kemur
fram einkar áhugaverð mynd.
Mestar afurðir er að finna í
Danmörku og Svíþjóð með rétt um
9 þúsund kíló eftir kúna en eðlilega
lægst hér á landi. Að jafnaði skilaði
hver kýr í afurðastöð 8.457 kílóum
mjólkur árið 2015 sem er töluverð
afturför frá árinu 2014, eða um 158
kíló.
Mestu munar um hraustlegan
samdrátt í Noregi um 827 kíló á
kúna en skýringin gæti falist í því
að vegna mikillar fækkunar kúabúa
hafi mörg afurðahá kúabú farið út
úr framleiðslunni. Einnig hefur
kúnum þar verið að fjölga hratt og
að yngjast upp sem getur komið
fram sem tímabundin afurðalækk-
un.
Langstærstu búin í Danmörku
Meðalbústærðin á Norður-
löndunum er nú komin í 59 árskýr
og jókst bústærðin í öllum löndun-
um og að jafnaði um 5,6 árskýr.
Sem fyrr eru dönsku kúabúin
langstærst og eru að jafnaði með
177 kýr nú og jókst bústærðin
að jafnaði um rúmlega 1 árskú í
hverjum einasta mánuði síðasta ár
í Danmörku.
Kúabúin þar eru ekki einung-
is stærst meðal Norðurlandanna
heldur einnig í allri Evrópu ásamt
skoskum kúabúum.
Hægist á þróun með mjaltaþjóna
Síðustu árin hefur mjaltaþjónum
fjölgað mikið á Norðurlöndunum
en nú virðist sem heldur hafi hægst
á þróuninni.
Á línuritinu efst á síðunni má
sjá þróun útbreiðslu mjaltaþjóna-
búa á Norðurlöndunum og eins
og sjá má fækkar búunum bæði í
Danmörku og Svíþjóð og þá hefur
hægst á þróuninni í Finnlandi.
Mjaltaþjónabúum fjölgaði þó
á árinu úr 4.293 um áramótin
2014/2015 í 4.444 um síðustu ára-
mót en þetta er minni hlutfallsleg
aukning en verið hefur undanfarin
ár. Þá hefur mjaltaþjónum fjölgað
úr 6.894 um áramótin 2014/2015 í
7.179 um síðustu áramót.
Mestan fjölda er enn að finna
í Danmörku eða 2.194 mjalta-
þjóna um nýliðin áramót, sem er
þó fækkun um 73 mjaltaþjóna frá
árinu á undan. Um liðin áramót
voru mjaltaþjónar á 18,0% kúabúa
Norðurlandanna en hæsta hlutfall
þeirra er að finna í Svíþjóð þar sem
24,6% kúabúa landsins eru með
mjaltaþjóna. Lægst er þetta hlutfall
í Finnlandi þar sem einungis 12,0%
kúabúanna eru með mjaltaþjóna.
Hér á landi var hlutfallið 21,8%
um síðustu áramót.
Þegar horft er til mjólkur-
framleiðslu þessara mjaltaþjónabúa
þá hefur tæknihópur NMSM áætlað
að framleiðslan nemi 30,3% af allri
framleiddri mjólk Norðurlandanna,
þó verulega misjafnt eftir löndum.
Hlutfallslega eru flestir
mjaltaþjónar á Íslandi
Íslenska mjaltaþjónaframleiðslan
er hlutfallslega sú langmesta á
Norðurlöndunum og eftir því sem
best er vitað í heiminum öllum eða
37,4%. Þar á eftir koma norsku kúa-
búin með 35,0% og þá sænsku búin
með 33,6%.
Lægst er hlutfallið í Danmörku
sem er veruleg breyting frá því sem
áður var en landið var lengi vel
leiðandi í mjólkurframleiðslu með
mjaltaþjónum. Skýringin á þessari
breytingu felst í því að danskir
kúabændur byggja afkomu sína
að mestu leyti á útflutningi mjólk-
urvara og vinna því í mun meira
samkeppnisumhverfi en starfs-
bræður þeirra á Norðurlöndum.
Eins og áður hefur komið fram
eru kúabúin í Danmörku einnig
þau stærstu í Evrópu og á flestum
þeirra er launað starfsfólk auk ábú-
enda. Hagræðið af því að vera með
mjaltaþjóna fer því þverrandi auk
þess sem mjaltaþjónar eiga mjög
erfitt með að keppa í hagkvæmni
við hefðbundnar framleiðsluaðferð-
ir og því hopar þessi tækni jafnt og
þétt í Danmörku.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
Danmörku
Mjólkurframleiðsla Norður landanna jókst 2015
Utan úr heimi
Þróun útbreiðslu mjaltaþjónabúa á Norðurlöndunum frá 1996
Sem fyrr eru dönsku kúabúin langstærst og eru að jafnaði með 177 kýr nú
og jókst bústærðin að jafnaði um rúmlega 1 árskú í hverjum einasta mánuði
síðasta ár í Danmörku. Mynd / HKr.
OG
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
í