Bændablaðið - 06.07.2017, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Ölgerðin kaupir Kú mjólkurbú:
Svipaðri framleiðslu
verður haldið áfram
– undir sama vörumerki og nýjar vörur eru í þróun
Eins og fram kom í fréttum um
miðjan júní síðastliðinn hefur
Ölgerðin keypt Kú mjólkurbú.
Ætlunin er að reka mjólkurbúið
áfram með svipuðu sniði og
byggja á hágæða handverki.
Kú mjólkurbú var stofnað árið
2009 af þeim Ólafi M. Magnússyni,
og Tómasi Kr. Sigurðssyni.
„Ölgerðin er alltaf að leita að
spennandi tækifærum og mjólkur-
markaðurinn hefur verið í athugun
hjá okkur í nokkuð langan tíma,“
segir Októ Einarsson, stjórnarfor-
maður Ölgerðarinnar.
„Við höfum mikinn áhuga á
því að skapa fjölbreytni á þessum
markaði bæði varðandi það að auka
samkeppni á honum ásamt því að
við höfum verið að þróa nýjar og
spennandi vörur sem munu koma
á markað á næstu mánuðum. Kú er
lítið mjólkurbú sem mun byggja á
hágæða handverki við framleiðslu
á sínum vörum. Íslenskir bændur
framleiða fyrsta flokks vörur og
erum við sannfærð um að þeirra
afurðir muni skapa fjölmörg tæki-
færi fyrir Kú til þess að koma með
nýjungar á mjólkurmarkaðinn til
hagsbóta fyrir íslenska neytendur,“
segir Októ.
Hann segir að öll framleiðsla
Ölgerðarinnar á vörum sem
innihalda mjólkurafurðir muni fara
fram hjá Kú mjólkurbúi og svo lengi
sem íslenskir kúabændur framleiði
næga mjólk sé ekki ekki fyrirhugað
að flytja inn mjólkurvörur af neinu
tagi til frekari vinnslu hér. /smh
Ísey skyr – nýtt
vörumerki MS
Öllu var tjaldað til í Heiðmörk
fimmtudaginn 22. júní þegar MS
hélt stórglæsilegt partí til að fagna
nýju alþjóðlegu vörumerki í skyri.
Á næstu vikum og misserum mun
Skyr.is, sem Íslendingar þekkja vel,
hverfa úr hillum og í staðinn kemur
Ísey skyr.
Við val á nýju nafni vildi
fyrirtækið leitast við að halda fast
í tengingu skyrsins við Ísland, það
átti hafa íslenskan staf og vera bæði
stutt og einfalt.
Til að heiðra konur landsins sem
miðluðu þekkingu á skyrgerð til
dætra sinna í gegnum aldirnar og
til að endurspegla þennan íslenska
bakgrunn og sögu skyrsins heitir
skyrið okkar nú Ísey skyr, en Ísey
er séríslenskt kvenmannsnafn sem
vísar í eyjuna Ísland.
Til að fagna þessu nýja nafni var
blásið til mikillar veislu í Heiðmörk
og var helstu viðskiptavinum,
erlendum samstarfsaðilum og góðum
gestum boðið í veisluna. Boðið
var upp á glæsilegar veitingar þar
sem skyrið var m.a. notað í sósur,
eftirrétti og kokteila og skemmtu
auk þess nokkrir af vinsælustu
tónlistarmönnum þjóðarinnar,
Emmsjé Gauti, Sísí Ey, Amabadama
og Júníus Meyvant.
Woody Tasch, stofnandi Slow
Money-hreyfingarinnar, hélt fyr-
irlestur hér á landi fyrir skömmu
þar sem hann kynnti hugmynd-
ir sínar um fjárfestingar í mat-
vælaframleiðslu og stuðning við
matarfrumkvöðla.
Slow Money-hreyfingin talar
fyrir því að fjármagnseigendur noti
minnst 1% af fjármunum sínum til
að byggja upp framleiðslu matar
með áherslu á heilnæmu hráefni
og sjálfbærri þróun. Tasch segir að
megin ástæða þess að hann tali um
1% sé að fyrsta prósentið sé yfirleitt
það erfiðasta að fá til að leggja fram.
„Að taka ákvörðun um að leggja
fé í langtímafjárfestingu og oft lít-
inn ágóða eins og vill verða í mat-
vælaframleiðslu er mörgum fram-
andi hugsun. Það er því best að byrja
smátt.
Slow Money er ekki fjárfestinga-
sjóður, ekki með neina stjórn og
tekur ekki þóknun fyrir sitt fram-
lag. Hugmyndin er einfaldlega að fá
fólk og fjárfesta til að leggja sjálft
fé til staðbundinnar matvælafram-
leiðslu milliliðalaust. Yfirleitt er
um að ræða lán á lágum eða jafnvel
engum vöxtum til langs tíma sem
gerir litlum framleiðendum kleift
að hefja framleiðslu, auka við tækja-
búnað, kaupa land eða að gera frum-
kvöðlum kleift að hrinda hugmynd-
um sínum í framkvæmd. Á Íslandi
gætu lán af þessu tagi einnig átt við
um minni sjávarútvegsfyrirtæki og
trillusjómenn.“
Menningararfleifð og
uppbygging nærsamfélaga
Tasch sagði í samtali við
Bændablaðið að hugmyndin að
baki Slow Money sé að hluta til
byggð á Slow Food-hreyfingunni.
Bakgrunnur Tasch er í fjármálageir-
anum og hann var eigandi og sá um
rekstur fjárfestingasjóðs á níunda
áratug síðustu aldar en gjaldkeri
fyrir umhverfisverndarsamtök í New
York á þeim tíunda. Hann segist
lengi hafa haft áhuga á langtíma-
fjárfestingum og áhrifum þeirra á
samfélagið.
„Aldamótaárið 2000 heimsótti
ég höfuðstöðvar Slow Food á Ítalíu
og varð mjög hrifinn af þeirra hug-
myndafræði. Í kjölfarið fór ég að
velta fyrir mér af hverju ekki væri
hægt að hugsa um peninga á sama
hátt. Þolinmótt fjármagn sem hægt
er að nota til að styrkja og efla stað-
bundna matvælaframleiðslu og um
leið nærsamfélagið.“
Árið 2008 sendi Tasch frá sér bók
sem kallast Inquiries into the Nature
of Slow Money: Investing as If
Food, Farms and Fertility Mattered
og fjallar um hugmyndina að baki
Slow Money.
„Með slíkri fjárfestingu,
hvort sem hún er í landbúnaði,
heimavinnslu eða lítilli útgerð, er
jafnframt verið að hlúa að menn-
ingararfleifð, heilsu neytenda og
uppbyggingu nærsamfélaga.“
Þess má geta að að Slow Money
var valið ein af fimm markverð-
ustu stefnum í fjárfestingageiranum
af www. entrepreneur.com sem er
heimasíða sem leggur áherslu á frum-
kvöðlastarf.
Slow Money víða um heim
„Á þeim átta árum sem liðin eru
frá fyrstu fjárfestingunni í anda
Slow Money hafa fjárfestar í
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu,
Sviss, Belgíu og Frakklandi beint ríf-
lega 57 milljónum bandaríkjadala í
600 fyrirtæki í landbúnaði eins og
mjólkur- og korniðnaði, í lífrænni
og staðbundinni framleiðslu og í
veitingarekstri,“ segir Tasch.
Innlend framleiðsla mikilvæg
Tasch segir áhugavert hversu mikið
af þeim matvælum, kjöti og fiski,
sem Íslendingar neyta, sé innlend
framleiðsla. „Í Bandaríkjunum og
víðar um heim er staðbundin mat-
vælaframleiðsla aðeins lítill hluti af
þeim mat sem fólk borðar og sérstaða
Íslands því mikil og eitthvað sem
er mjög dýrmætt. Vitund fólks fyrir
uppruna fæðunnar er sífellt að aukast.
Fólk vill í auknum mæli vita hvaðan
maturinn kemur og hver framleiðir
hann.“
Það var frumkvöðlafyrirtæk-
ið Spor í sandinn, í samvinnu við
Matarauð Íslands, Slow Food
Reykjavík, Sólheima, Flow
Meditation, Sjávarklasann, Icelandic
Startups og fleirum sem stóðu fyrir
komu Tasch til landsins.
Að sögn Hjördísar Sigurðardóttur,
framkvæmdastjóra Spor í sandi, er
talsverður áhugi fyrir stofnun Slow
Money hreyfingar á Íslandi sem
stuðlað gæti að uppbyggingu stað-
bundins matarauðs og aðstoð við
matarfrumkvöðla. /VH
Fjárfesting í nærandi nýsköpun:
Langtíma fjárfesting í matvæla-
framleiðslu og frumkvöðlastarfi
FRÉTTIR
Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, og Guðni Þór Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri Kú mjólkurbús. Mynd / smh
Mynd / VH