Bændablaðið - 06.07.2017, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Laxveiðin hefur víða byrjað vel,
laxinn er mættur en næstu göngur
mættu vera stærri og jafnvel fleiri.
Smálaxinn þarf að mæta á svæðið
í næstu flóðum, það skiptir miklu
máli fyrir alla. Einnig fyrir veiðitölur
sumarsins.
„Veiðin gekk bara vel. Hollið
veiddi 15 laxa og ég fékk 6 laxa.
Laxá í Leirársveit er skemmtileg
veiðiá,“ segir Axel Óskarsson. Hann
var á veiðum í vikunni. Laxveiðin er
allt í lagi þessa dagana, en smálaxinn
mætti láta sjá sig aðeins meira en
verið hefur.
Það var frekar rólegt yfir veið-
inni en þetta var jú kringum 15 laxar,
allt fyrir neðan Laxfossinn. Jú það
var fiskur að ganga og eitthvað
komið up peftir fyrir nokkru síðan.
Kvöldvökurnar í veiðihúsinu bættu
upp veiðileysið og maturinn var frá-
bær. Vonandi fara göngurnar að skila
sér svo næstu veiðimenn fái fiska,“
sagði Axel enn fremur.
,,Þannig er nú það að ég var úti
í Ameríku og kíkti í flotta stóra
veiðibúð að nafni Cabelas og ég
sá þessa flottu fluguveiðistöng,“
sagði veiðimaðurinn Ómar
Smári Óttarsson.
„Ég hugsaði til kærustu minnar,
hennar Ástu Lilju, því hún var
margoft búin að segja við mig að
hana langaði að byrja að veiða á
flugu. Svo mér fannst þessi bleika
stöng vera tilvalin fyrir hana til að
byrja að veiða.
Náði stórum urriða í Litlu Laxá
Við vorum svo á ættarmóti á Hellu
og vorum á leið í náttúrulaug á
Flúðum og Ásta var búin að segja
við mig að hana langaði að fara
að veiða og prufa nýju stöngina,
Þá mundi ég eftir því að það
væri veiðiá á Flúðum að nafni
Litla Laxá sem í væru einhverjir
urriðatittir. Við ákváðum að kíkja
til þess að hún fengi að æfa sig á
stöngina og vonandi ná að krækja
í urriða.
Það var byrjað að kasta og gekk
frekar erfiðlega í byrjun, en síðan
náði hún einu góðu kasti og lét
fluguna reka með straumnum og
þá var tekið.
Ég hélt fyrst að þetta væri
einhver tittur en síðan byrjaði
langur bardagi og rauk fiskurinn
fram og til baka í hylnum.
Þangað til að hann fór niður með
straumnum og ég náði að háfa
fiskinn í grynningunum. Þá kom
þessi fiskur á land, fallegur 53 cm
urriði, sem tók á flugu sem kölluð
er Aldan.
Það má segja að hún Ásta
mín hafi algjörlega smitast af
veiðidellunni eftir að hafa veitt
þennan flotta urriða í Litlu Laxá,“
sagði Ómar Smári Óttarsson.
Það er með ólíkindum hvað
mörgum er illa við pöddur,
hvaða nafni sem þær nefnast.
Köngulær, geitungar, blaðlýs,
ranabjöllur, humlur og svo ég
tali nú ekki um snigla.
Öll þessi dýr virðast í huga
marga vera hræðileg óarga-
kvikindi sem ekki mega sjást í
görðum og hvað þá inni í húsum.
Pöddunum skal útrýmt hvað sem
það kostar.
Á hverju einasta sumri leggst
annars nokkuð rétthugsandi og
heilbrigt fólk í hernað sem hefur
að markmiði að drepa sem allra
mest af pöddum hvar sem til
þeirra næst, hvort sem það er
innan eða utandyra.
Öllum brögðum er beitt og
ekkert eitur er svo eitrað að ekki
megi nota það í baráttunni við
þessa óværu. Þetta gerist þrátt
fyrir að flestir viti að öll þessi dýr
þjóni tilgangi í náttúrunni, hvort
sem það er að frjóvga blóm eða
vera fæða fyrir önnur dýr.
Smádýrin sem spretta upp á
sumrin laðast flest að plöntum og
eru fylgidýr aukins áhuga á garð-
rækt og hækkandi lofthita. Blóm
og pöddur eru óaðskiljanleg og
annað fæst ekki þrifist án hins.
Pöddurnar frjóvga blómin og
blómin eru fæða fyrir plönturnar.
Einsleitt plöntuval í ræktun
veldur því að ákveðnar tegundir
padda fjölga sér mikið á skömm-
um tíma enda framboð á fæðu
mikið. Yfirleitt ganga þessi
blómaskeið paddanna yfir á
nokkrum vikum og plönturnar
jafna sig í flestum tilfellum aftur.
Humlur og ánamaðkar
eru líklega allra gagnlegustu
smádýrin sem finnast í garðinum.
Ánamaðkar flýta rotnun og grafa
göng í jarðveginum sem vatn og
næringarefni streyma um.
Fæstum er illa við ánamaðka
enda fer lítið fyrir þeim og þeir
sjást sjaldan nema í rigningu
þegar þeir koma upp á yfirborðið
til að drukkna ekki.
Annað mál gildir um humlur
og margir hreinlega hræddir við
þær þótt sárasaklausar séu. Á
Íslandi finnast fjórar eða fimm
tegundir af humlum og ættum við
að fagna hverri tegund.
Víða um heim hefur býflugum
fækkað gríðarlega og það mikið
að til vandræða horfir í ávaxta-
ræktun. Býflugur finnast ekki
villtar á Íslandi og margir rugla
þeim saman við humlur enda
skyldar tegundir og sinna báðar
frjóvgun blóma. Haldi býflugum
áfram að fækka vegna notkunar
á skordýraeitri er raunveruleg
hætta á að margar ávaxtategundir
hverfi af markaði.
Af öllum smádýrum sem
heimsækja garðinn eru stórir
sniglar að öllu jöfnu óvinsælastir.
Sniglar eru hægfara, draumleit
og værukær dýr sem halda sig í
skugganum og líður best í röku
loftslagi.
Þeim líkt og börnunum finnst
jarðarber og ferskt salat gott og
kunna sér ekki magamál kom-
ist þeir í slíkt sælgæti. Þeir eru
einnig sólgnir í bjór og hefur það
orðið mörgum sniglum og mönn-
um að falli.
Séu sniglar skoðaðir nánar
sést að þeir eru ótrúlegir og fal-
legir þegar þeir líða áfram á kvið-
lægum fætinum og teygja augn-
fálmarana rannsakandi út í loftið.
Ólíkar tegundir lifa á landi, í sjó
og ferskvatni og þeir eru til með
og án kuðungs. Sumar tegundir
eru tvíkynja sem þýðir að hittist
tveir sniglar undir salatinu geta
þeir frjóvgað hvor annan eða
sjálfan sig séu þeir einir á ferð.
Pöddur eru æði. /VH
Hræðslan við
pöddur
STEKKUR
Allir veiðimenn eiga sér
uppáhaldsveiðistað og Ómar
Smári Óttarsson segir okkur
frá sínum stað.
„Já, Hraunsfjörðurinn er minn
uppáhalds veiðistaður og ástæð-
an er að ég hef lent í svo miklum
ævintýrum þarna en hef líka farið
fisklaus á erfiðum og leiðinlegum
dögum. Það má eiginlega segja að
ég hafi fengið fluguveiðiáhugann
þarna þegar ég var í útilegu með
mömmu og pabba, tja, svona 11
ára. Var þá byrjaður að hnýta flug-
ur en átti ekki flugustöng.
Ég man eftir því þegar ég var
að horfa á fimm karla vera að
veiða þarna og allir með fisk á
í einu, fallegar sjóbleikjur sem
voru að taka fluguna á krókinn.
Hver veiðimaður var með 20
til 30 bleikjur en ég var ekki
að ná neinu út af því að ég var
ekki með flugustöng og átti ekki
vöðlur heldur. En ég vildi fá allar
græjur og bað um allt í jólagjöf,
afmælisgjöf og sumargjöf og viti
menn, ég fékk allar græjur sem
ég þurfti.
Svo kom loksins sumarið og
ég var orðinn vel spenntur og
græjaður upp og hlakkaði mikið
til í að fara í Hraunsfjörðinn, það
var í byrjun júlí. Síðan ég fór út í
fjörðinn með fullt box af flugum
og þurrflugur sem ég hafði hannað
sjálfur. Hún var sett undir og tekin
nokkur köst og búmm, það var á og
fiskinum landað. Aftur var kastað
og aftur og aftur var fiskur á, þetta
var geggjað.
Það var bleikja úti um allt og
ég var nú ekki góður kastari en
vá, ég hafði aldrei upplifað annað
eins. Ég endaði með 50–60 bleikj-
ur í þessum túr og allt var tekið á
fluguna sem ég hannaði. Svo fékk
pabbi flottan 9 punda lax í túrnum,
þetta var bara æði.
Þetta byrjaði allt þarna í
Hraunsfirðinum á þessum fallega
stað. Þetta er ástæðan fyrir því að
Hraunsfjörðurinn er uppáhalds
staðurinn minn og ég mæli með
að allir ættu að prufa og sjá þennan
fallega fjörð,“ sagði Ómar Smári
um Hraunfjörðinn.
Hraunsfjörðurinn er flottur staður
Fékk stóran urriða á
bleika veiðistöng
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Mynd / G.Bender
Mynd / Ómar
Þetta gekk bara vel í Leirársveitinni
Axel Óskarsson með lax fyrir neðan
Mynd / G.Bender
Með tvær sleppitjarnir
„Það gengur bara vel með
seiðin en við erum með tvær
sleppitjarnir, eina við Hvolsána
og hina við Staðarhólsána,“ sagði
Þórarinn Birgir Þórarinsson,
formaður veiðifélags Hvolsár og
Staðarhólsár í Dölum.
Við hittum Þórarin fyrir fáum
dögum við tjörnina við Hvolsána.
„Það er gott að gera þetta bara
sjálfir, en við erum að selja í ána og
á veiða.is. Það gengur bara vel, mjög
vel, þetta hefur verið svona fyrir-
komulag í tvö ár hérna hjá okkur,“
sagði Þórarinn og hélt áfram að
gefa seiðunum sem tóku vel fóðrið.
Bændur við Miðá og Hörðudalsá í
Dölum selja líka veiðileyfin sjálfir
og gengur vel.
Þórarinn Birgir Þórarinsson að gefa
Mynd / G.Bender
Í nógu að snúast
„Já, við erum að opna Laxá í
Dölum og það er gaman með
fleiri veiðimönnum,“ sagði
Harpa Hlín Þórðardóttir. Það er
í nógu að snúast hjá henni við að
leigja hvert veiðisvæðið af öðru
með eiginmanni sínum, Stefáni
Sigurðssyni.
„Það er alltaf eitthvað að gerast.
Við vorum að leigja Vatnasvæði Lýsu
á Snæfellsnesi fyrir fáum dögum,
síðan hefur verið frábær gangur á
Urriðafossinum. Frábær veiði dag
eftir dag. Síðan tókum við Leirá
og Skjálfandafljótið í vor, það er
alltaf eitthvað,“ sagði Harpa. Hún
var þá nýbúin að landa einum af
fyrstu löxunum í Laxá í Dölum sem
byrjar vel eins og fleiri veiðiár þetta
sumarið.
Harpa Hlín Þórðardóttir með einn af fyrstu löxunum í Laxá í Dölum þetta
Mynd / G.Bender
HLUNNINDI&VEIÐI