Bændablaðið - 06.07.2017, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
frá hafnarbænum Peel. Þaðan
sést yfir til Norður-Írlands í góðu
skyggni. Land jarðarinnar, allt vel
gróið, um 100 hektarar og að hluta
einnig nýtt til heyskapar, er allt í
hlíðum fjallsins Slieau Whallian,
ofan við ána Neb. Mjög fallegt bæj-
arstæði. Vitað er að fyrir rúmri öld
var þar á bæ eitt stærsta bú eyjar-
innar með Manx Loaghtan fé og nú
er hjörðin aftur orðin stór eða um
800 fjár að meðtöldum sauðum,
flest ferhyrnt. Að auki er verið að
byggja upp ferðaþjónustu í tengsl-
um við búskapinn.
Þótt sauðakjöt sé aðalafurðin
hafa þau Jenny og Rawdon lagt
mikla áherslu á að auka verðmæti
ullarinnar á seinni árum. Reynt er
að selja afurðir sem mest sérmerkt-
ar beint frá býli og einnig er tölu-
verð sala á líffé. Fylgt er lífrænum
búskaparháttum en ekki hefur verið
leitað eftir vottun. Þess má geta að
samkvæmt efnagreiningum sem
búvísindastofnun í Skotlandi hefur
gert er kjötið af þessu fé ekki eins
feitt, er með hagstæðari samsetn-
ingu fitusýra og hefur lægra hlutfall
kólesteróls en kjöt af bresku holda-
fé. Sauðakjötið þeirra bragðaðist
vel.
Jenny hefur verið formað-
ur ræktunarfélagsins, the Manx
Loaghtan Breeders Society, undan-
farin fimm ár og til að vinna gegn
skyldleikarækt hefur hún sýnt gott
fordæmi með því að lána öðrum
félögum hrúta gegn vægu gjaldi,
einni vínflösku fyrir hvern hrút á
fengitíma.
Heimsóknin reyndist hin
ánægjulegasta, og ég naut mikill-
ar gestrisni. Fór meira að segja í
svolítið fjárrag með þeim Jenny og
Rawdon því að þau voru að velja
kindur til útflutnings til Spánar.
Bættist þá dýralæknir í hópinn
til að taka blóðsýni vegna rann-
sókna til þess að hægt væri að
ganga frá vottorðum að kröfum
Evrópusambandsins. Mön er þó
ekki í ESB, engin áform eru um
að sækja um aðild að sambandinu
og sterlingspundið er gjaldmiðill
eyjarinnar.
Norræn áhrif á Mön
Það er áhugavert fyrir Íslendinga
að heimsækja Mön, m.a. vegna
augljósra, norrænna tengsla. Þar
heitir hæsta fjallið Snaefell (621
m) og þingið, sem enn starfar,
heitir Tyndwald, stofnað árið 978
þegar norrænir víkingar réðu þar
ríkjum. Nú á dögum er eyjan í kon-
ungssambandi við Bretland en telst
samt ekki vera hluti af því og nýtur
sjálfsstjórnar um flest mál. Bretar
fara þó með utanríkis- og varnar-
mál eyjarinnar sem er 572 ferkíló-
metrar að flatarmáli. Manverjar
eru um 85.000 að tölu, enska er
tungumálið og bærinn Douglas á
austurströndinni er höfuðstaður
eyjarinnar.
Þegar ferðaþjónustunni hnign-
aði sem undirstöðuatvinnugrein
um síðustu aldamót breytti þingið
í Tyndwald eyjunni í skattaparadís.
Nú er aflandsbankaþjónusta orðin
aðalatvinnuvegurinn, mikilvægari
en iðnaður og ferðaþjónusta, en
fiskveiðar og landbúnaður fylgja
þar á eftir. Til dæmis er lagður 10%
skattur á hagnað banka og á leig-
utekjur af eignum á eyjunni en að
öðru leyti munu fyrirtækjaskatt-
ar vera engir í flestum tilvikum.
Mest er verslun við Bretland og er
Mön í tollabandalagi við það. Þess
má geta að kvikmyndagerð nýtur
mikils opinbers stuðnings á Mön,
margar kvikmyndir hafa verið
teknar á eyjunni síðan um alda-
mót en samt er talið að þessi fjár-
festing hafi ekki verið ábatasöm.
Þá er athyglisvert að Mön hefur
orðið miðstöð fyrir geimferðir
einkaaðila og árið 2010 var talið
að eyjan væri komin í fimmta sæti
þeirra þjóða sem gætu næst lent á
tunglinu.
Frá mínum sjónarhóli séð er
þó full ástæða til að heimsækja
Mön af jarðbundnari ástæðum
en áhættufjárfestingum og geim-
ferðakapphlaupi. Þótt ekki væri til
annars en að skoða hið sérstæða
ferhyrnda fé, sem ég kynntist mér
til mikillar ánægju, og hugsanlega
líka til þess að sjá þótt ekki væri
nema einn þeirra rófulausu katta
(Manx Cat) sem þar munu vera til
en ég sá því miður ekki.
Höfundurinn, dr. Ólafur R.
Dýrmundsson, er félagi í Rare
Breeds International, Slow Food
og Evrópuhópi lífrænna landbún-
aðarhreyfinga (oldyrm@gmail.
com).
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ÝMSAR GERÐIR
& ÚTFÆRSLUR
YFIR 20 ÁRA REYNSLA
Í HURÐUM Á ÍSLANDI
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
SMÍÐI OG SAMSETNING
ALLAR HURÐIR SMÍÐAÐAR
SAMKVÆMT MÁLI
MARGAR ÚTFÆRSLUR
OG LITAMÖGULEIKAR
ÁRATUGA REYNSLA
STARFSMANNA Í HURÐUM
HÁGÆÐA HRÁEFNI
ÞOLA VEL ÍSLENSKT VEÐURFAR
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
F Y R I R I Ð N A Ð I N N IÐNAÐARHURÐIR
F R A M L E I Ð S L A
F Y R I R B Í L S K Ú R I N N BÍLSKÚRSHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR | IÐNAÐARHURÐIR
FÁÐU HEIMSÓKN
SÖLURÁÐGJAFI OKKAR KEMUR Á STAÐINN,
VEITIR FAGLEGA RÁÐGJÖF OG GERIR ÞÉR VERÐTILBOÐ.
VINSAMLEGAST ÓSKIÐ EFTIR HEIMSÓKN
Í SÍMA 865-1237 EÐA Á logi@ishurdir.is
www.ishurdir.is
IS Hurðir ehf.
Reykjalundi, 270 Mosfellsbæ
Sími: 564 0013
logi@ishurdir.is / 865 1237
www.ishurdir.is
HAFÐU SAMBAND
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími 552-2002
ÓDÝR
Gleraugu með
glampa- og rispuvörn
Verð 19.900 kr
Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 5.0 með cyl. til 2,0.