Bændablaðið - 06.07.2017, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Íslenski geitastofninn er enn í útrýmingarhættu, en hann telur 1.123 vetrarfóðraðar skepnur í dag. Til að koma geitinni úr hættu þarf fjöldin að ná 4.700 dýrum. Myndir / ghp
„Tilvera geitarinnar verður
tryggð með því að skapa eftir-
spurn eftir afurðum hennar,“
segir Sif Matthíasdóttir, formaður
Geitfjárræktarfélags Íslands. Hún
rekur, ásamt Jörundi Svavarssyni,
eiginmanni sínum, geitabú að
Hrísakoti í Helgafellssveit undir
Ljósufjöllum. Geitfjárræktendur
horfa fram á spennandi tíma.
Samstarf við Matís og fleiri getur
skapað athyglisverða möguleika
varðandi nýsköpun í afurða-
framleiðslu og um leið stuðlað að
breyttum hugsunarhætti varðandi
landbúnað.
Íslenski geitastofninn er enn
í útrýmingarhættu, en hann telur
1.123 vetrarfóðraðar skepnur í dag,
samkvæmt Heiðrúnu, skýrsluhalds-
kerfi fyrir geitur. Geitaeigendur eru,
samkvæmt sömu skýrslu, 823 talsins
og því er ljóst að margir eiga fáar
skepnur.
Til að koma geitinni úr útrým-
ingarhættu þarf fjöldinn að ná 4.700
dýrum, samkvæmt reglum Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO). Til þess að nálgast
þá tölu og viðhalda stofninum þarf
að skapa grundvöll fyrir afurðasölu
og nýta geitina meira og betur, að
mati Sifjar Matthíasdóttur, formanns
Geitfjárræktarfélags Íslands.
Í dag er framleitt kjöt, mjólk-
urvörur, snyrtivörur og ull í afar
smáum stíl en sú staðreynd að allar
þessar vörur seljast upp gefur vís-
bendingar um að bæta megi verulega
í vöruframboð. Til þess þarf hins
vegar fleiri geitur, fleiri og stærri
geitabændur, ásamt góðum stuðningi
og fræðslu.
Kveða niður gamla drauga
Sif telur þó allra brýnasta verkefni
geitfjárbúskaparins í dag að koma
upp sæðisbanka.
„Við stöndum frammi fyrir því
vandamáli að geitastofninn er lítill
og innan hvers varnarhólfs eru enn
minni hjarðir. Allt ræktunarstarf
reynist því afar erfitt. Samkvæmt
búfjársamningum BÍ og ríkisins
mun 15% af fé til geitfjárræktar
fara í vinnu við að koma upp sæðis-
banka. Við gerðum samning við
Nautastöðina á Hesti í Borgarfirði
um töku, geymslu og frystingu
sæðis, en aðalmálið er að fá aðstöðu
fyrir sæðistöku,“ segir Sif og legg-
ur áherslu á þýðingu þess að slík
aðstaða sé tryggð.
„Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að við erum ofboðslega tæp
á að missa þessa tegund af landinu.
Ef við lítum til ferðamannastraums-
ins og allan mögulegan innflutning
er fræðilegur möguleiki að smit í
stofninn geti leitt af sér ófyrirsjáan-
legan skaða. Það þarf ekki nema eina
„hestapest“ og stofninn gæti horfið.“
Merkum áfanga var náð
í sögu geitfjárræktar þegar
Geitfjárræktarfélag Íslands fékk
aðild að Bændasamtökum Íslands
árið 2015.
„Með því breyttist viðhorfið til
geitarinnar, úr gæludýri í nytjadýr.
Reyndar virðast margir íslenskir
bændur enn neikvæðir gagnvart
geitinni, telja hana óalandi og óferj-
andi skepnu. Margir setja samasem-
merki milli sauðfjár og geitar. Þetta
eru hins vegar ólíkar skepnur, sem
haga sér á ólíkan máta. Þú smalar til
dæmis ekki geitum, þær elta þig,“
segir Sif og bætir við að kveða þurfi
niður fordóma.
„Það er algjör mýta að engar
girðingar haldi þeim. Ef við
hugsum um þá milljónir kílómetra
af girðingum sem settar eru upp
til að halda sauðfénu frá, en samt
komast alltaf einhverjar kindur
inn á tún. Það sama er að segja um
geitur. Góðar girðingar halda þeim
og fullorðin geit hoppar ekki einu
sinni yfir skurð ef þeim líst svo á.
Kiðin hoppa, klifra og troða sér alls
staðar sem þau komast. En það gera
lömb líka,“ segir Sif.
Vinnustofur um nýtingu og
framleiðslu geitaafurða
Viljayfirlýsing um samstarf milli
Geitfjárræktarfélags Íslands og
Matís var undirrituð 14. febrúar sl.
um samstarf um auknar rannsóknir
í tengslum við ræktum geitarinnar,
verðmætasköpun, vöruþróun og
kynningu á geitinni og afurðum að
markmiði. Sif segir viljayfirlýsinguna
strax hafa haft jákvæð áhrif, því
nokkrum spennandi verkefnum verði
ýtt úr vör á næstunni.
Meðal annars sé verið að vinna
að heimasíðu og hönnun vörumerkis
fyrir íslenskar geitaafurðir. Þar með
verði allar íslenskar geitaafurðir
merktar einu vörumerki. Verkefnið
Matarauður Íslands, sem atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytið kom
á fót árið 2015, hjálpar til við það.
Tilgangur þess er m.a. að hefja mat-
armenningu og matarframleiðslu til
vegs og virðingar gegnum samstarf
Geitaafurðir tryggja tilveru stofnsins
– Brýnt að koma upp sæðisbanka fyrir íslenska geitféð, að mati formanns Geitfjárræktarfélags Íslands
Íslenska geitféð (Capra hircus) er talið vera
af norskum eða norrænum uppruna sem
hafi komið hingað með landnámsmönnum.
Í fræðsluritinu Geitfjárrækt eftir Birnu K.
Baldursdóttur er talið að engin innblöndun
hafi átt sér stað frá landnámi og því er
stofninn einstakur á heimsmælikvarða.
„Elstu heimildir um fjölda geita í
landinu eru frá 1703 en þá voru þær 818.
Í harðindunum á seinni hluta 19. aldar
lá við að geitastofninn yrði aldauða og
fór niður í 62 dýr á árunum 1881-1890
(meðaltal). Á fyrri hluta 20. aldar fór
geitum að fjölga á ný og stærstur hefur
geitfjárstofninn orðið tæplega 3.000 dýr
árið 1930. Geit um fækk aði aftur sam-
fara breytingum á búskaparháttum og
niðurskurðar vegna fjárskipta og upp úr
miðri síðustu öld var geitfjárstofninn af-
tur kominn í útrýmingar hættu og taldi
87 dýr árið 1962. Upp úr því fóru menn að
hafa verulegar áhyggjur af því að stofninn
yrði útdauður og 1965 var farið að greiða
stofnverndarframlag fyrir vetrarfóðraðar,
skýrslufærðar geitur til að reyna að sporna
við frekari fækkun í stofn inum og til að
stuðla að verndun hans,” segir í Geitfjár-
rækt.
Íslenski geitastofninn telur 1.123
vetrar fóðraðar skepnur í dag samkvæmt
Heiðrúnu, skýrsluhaldskerfi fyrir geitur.
Flestir halda 1–20 geitur en stærsti geit-
fjárbóndi á landinu er Jóhanna B. Þor-
valdsdóttir á Háafelli í Hvítársíðu.
Afurðir geitarinnar eru helst þrjár,
mjólkin, ullin og kjötið.
Mjaltaskeið getur verið um 300 dagar
og dagsnyt á bilinu 1–2 lítrar að sumri en
nytin minnkar í 0,5–1 lítra þegar haustar.
Geitamjólk mun vera auðmeltari en kúa-
mjólk og minni hætta mun vera á óþoli af
völdum hennar, en fyrirhuguð er rannsókn
á eðli og áhrifum geitamjólkur. Úr geita-
mjólk hafa einnig verið framleiddir ostar
hér á landi.
Íslenskar geitur hafa bæði strý og fiðu
og er töluvert meira af fiðu en hjá erlend-
um geitum. Fínleiki þess er mikill og flokk-
ast undir kasmírull.
Geitkjöt er afar magurt, en pró-
teininnihald þess svipar til nautakjöts.
Bragðgæði ákvarðast meðal annars af
fóðurvali geitarinnar og aldur við slátrun.
Kjötafurðir hafa verið framleiddar hér í
litlu magni en eftirspurn mun vera mikil.
Tólgin hefur einnig verið notuð í
matargerð, til sápugerðar og í húðkrem.
Gömul húsráð segja hana góða fyrir þurra
húð og útbrot, samkvæmt upplýsingum
úr Geitfjárrækt.
Íslenska geitin og afurðir hennarJörundur og Sif gera að höltu kiði í Hrísakoti sem staðsett er í einu af hreinustu hólfum landsins í Helgafellssveit. Geitahjörðin þeirra stækkaði
umtalsvert í vor og eiga þau nú um 60 skepnur.
Brýnasta verkefni geitfjárbúskaparins er að koma upp sæðisbanka, að mati
Sifjar. Það myndi auðvelda ræktunarstarf og viðhalda stofninum ef illa færi.
Hér eru hafrarnir Kolur og Snær.