Bændablaðið - 06.07.2017, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Eigum hinar sívinsælu og klassísku DEUTZ- FAHR KM 3.18
tromlusláttuvélar til afgreiðslu strax.
Þægilegar vélar til sláttar við allar aðstæður og góðar á
smærri stykki og óslétt tún.
Sláttu
þyrlur
Vinnslubreidd: 1,85 m
Þyngd: 420 kg
Lágmarksaflþörf 35 hö
DEUTZ-FAHR KM 3.18 sláttuþyrlur
Kr. 595.000,-
án VSK
Verð aðeins
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
II. Ísólfur Líndal Þórisson sýndi Ísey
en hann er ræktandi hennar ásamt
Vigdísi Gunnarsdóttur.
Bróðir Íseyjar, sammæðra,
Júpíter frá Lækjamóti, hlaut hæstu
einkunn 4 vetra stóðhesta. Hann
hlaut 8,30 í aðaleinkunn, 8,00 fyrir
kosti og 8,74 fyrir sköpulag sem var
hæsta einkunn sem gefin var fyrir
sköpulag á mótinu. Fyrir það hlaut
Júpíter Blesabókina, farandverðlaun
Hrossaræktar sambands Vestur-
lands sem fjölskyldan í Skáney
gaf til minningar um Marinó
Jakobsson. Júpíter er undan
heiðursverðlaunastóðhestinum Víði
frá Prestsbakka.
Hæst dæmdi stóðhestur
Fjórðungsmótsins var Sægrímur frá
Bergi, en hann sigraði flokk 5 vetra
stóðhesta. Sægrímur hlaut 8,61 í
aðaleinkunn, 8,54 fyrir sköpulag og
8,66 fyrir kosti. Sægrímur er undan
Sæ frá Bakkakoti og Hríslu frá
Naustum. Jón Bjarni Þorvarðarson
er ræktandi og eigandi Sægríms
en sýnandi hans var Jakob Svavar
Sigurðsson.
Kalsi frá Þúfum var efstur í
flokki 6 vetra stóðhesta. Hann
hlaut 8,59 í aðaleinkunn, 8,35
fyrir sköpulag og 8,74 fyrir kosti.
Kalsi er undan Trymbil frá Stóra-
Ási, sem sigraði A-flokk gæðinga á
mótinu, og Kylju frá Stangarholti.
Ræktandi, eigandi og sýnandi Kalsa
var Metta Mannseth.
Heikir frá Hamarsey var efstur
í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri.
Heikir hlaut 8,59 í aðaleinkunn, 8,36
fyrir sköpulag og 8,74 fyrir kosti.
Heikir er Álfssonur undan Hrund
frá Árbæ. Ræktendur hans eru Per
S. Thrane, Hannes Sigurjónsson og
Inga Cristina Campos en eigendur
hennar eru Karl Áki Sigurðsson
og Eyrún Ýr Pálsdóttir sem sýndi
Heiki.