Bændablaðið - 06.07.2017, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Helena Hólm hárgreiðslumeistari
fluttist ásamt eiginmanni sínum,
Stefáni Þór Rögnvaldssyni, smið
og múrara, úr Reykjavík að
Skálatjörn austur í Flóa fyrir
þremur árum. Þar gerðust þau
geita- og ferðaþjónustubændur.
Helena segist engin tengsl hafa
haft við sveitina áður en þau
ákváðu að söðla um en þau sjái
alls ekki eftir því.
Helena stofnaði og rak
Hárgreiðslustofu Helenu og
Stubbalubba frá 2002 til 2015, en
Stubbalubbar var hárgreiðslustofa
fyrir börn og er enn í rekstri undir
heitinu Stubbalubbar ehf. Helena
segir að slitgigt hafi verið farið að
angra sig þannig að hún gat ekki
lengur unnið við hárgreiðslustörfin.
Stefán hafði þá nóg að gera í sínu
fagi sem smiður og múrari. Bæði
segja þau að vinirnir hafi litið á þau
stórum augum þegar þau ákváðu að
söðla algjörlega um, selja eignir
sínar, rífa sig upp úr borgarmenn-
ingunni og flytja út í sveit. Stefán
segist nú hvergi annars staðar
vilja búa og hann fari helst ekki
til Reykjavíkur lengur nema brýna
nauðsyn beri til.
Áttu engin tengsl við sveitina
þegar þau fluttu
„Við fluttum frá Reykjavík í
sveitina haustið 2014. Ég er hár-
greiðslumeistari og sagði skilið
við starfið í borginni og gerðist
geita- og ferðaþjónustubóndi. Ég
á engar rætur í sveitinni, en ég og
maðurinn minn ákváðum bara að
skipta um gír og flytja. Við höfum
alls ekki séð eftir því og mér finnst
alveg meiri háttar að vera hér. Þar
að auki er geitin alveg frábært dýr
að vinna með og hægt að nýta hana
til margs,“ segir Helena.
Keyptu fyrrum hestabúgarð
Þau hjón keyptu Skálatjörn sem
rekin hafði verið sem hestabúgarð-
ur. Þar eru hesthús sem nú eru notuð
undir geiturnar. Þá er stór reiðhöll
á bænum og vélageymsla, en þau
Helena og Stefán hafa ekki ákveðið
hvað þau gera með reiðhöllina
sjálfa. Áfastri vélageymslu eru þau
búin að breyta í gistiaðstöðu með
6 litlum stúdíóíbúðum og í hluta
reiðhallar er líka komin íbúð. Þá
eru þau með gistiaðstöðu í íbúðar-
húsinu líka og geta í heild tekið við
22 gestum í einu.
Blaðamaður Bændablaðsins
hitti Helenu fyrst á fjölskylduhá-
tíðinni Fjör í Flóa sem haldin var
við félagsheimilið Þingborg í Flóa
í maí. Þar var hún með sölubás að
kynna sína eigin framleiðslu sem
unnin er úr geitaafurðum og var
auðvitað tekin tali.
„Ég er að þróa geitaafurð-
ir á Suðurlandi,“ sagði Helena.
Hún segist hafa fengið styrk frá
Nýsköpunarsjóði Suðurlands til
að þróa geitapylsur og geitapaté
(geitakæfu). Hún fékk mjög góðar
móttökur á hátíðinni með sínar
afurðir og sagðist svolítið hissa á
þessum góðu viðbrögðum. Fólk
hafi verið ófeimið við að smakka og
bragðið hafi komið mörgum á óvart
og enginn hafi verið ósáttur.
Kynnir möguleikana í
framleiðslu geitaafurða
„Ég er að vinna í þessu núna og
hef verið að kynna þessar afurð-
ir. Ég er líka í samvinnu við
Geitfjárræktarfélagið og hef hug á
að koma geitinni betur á framfæri.
Þannig vil ég kynna geitakjötið og
hjálpa til við að nýta geitina eins
og við getum.“
22 geitur og fer fjölgandi
-Hvað eruð þið með margar geitur?
„Við vorum nú síðast með 22
vetrarfóðraðar geitur og fer trúlega
í 30 næsta vetur. Þá stefni ég alla-
vega á að vera ekki með færri en
50 geitur.
Ég stefni líka á að mjólka þær
og framleiða geitaost fyrir heimil-
ið til að byrja með og selja aðrar
afurðirnar beint frá býli. Ég hef
aðeins prófað að mjólka og búa til
osta sem er mjög gaman. Ég fer
að færa kiðin frá geitunum þegar
líður á sumarið og þau verða stærri.
Þá get ég farið að mjólka og prófa
mig áfram í ostagerð. Annars mun
ég reyna að nýta geitina eins og
hægt er og m.a. kemba þær og hirða
fiðuna til að spinna úr henni band.“
Verið að setja upp litla
spunaverksmiðju
Helena segir að geitabændur hafi
lengi haft hug á að kaupa vélar til
gerast geita- og ferðaþjónustubændur. Nú vilja þau hvergi annars staðar vera. Myndir / Hörður Kristjánsson
Helena Hólm kynnti afurðir geitarinnar sem fram-
– Vinnur að þróun margvíslegra geitaafurða auk þess að reka ferðaþjónustu með manni sínum, sem er bæði smiður og múrari