Bændablaðið - 06.07.2017, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Norðurheimskautið hlýnar
hratt sem veldur því að sífreri
þiðnar. Sífreri (e. permafrost)
er skilgreindur sem varanlega
frosinn jarðvegur. Sífrera er að
finna í jarðvegi út frá pólunum
tveim og í fjallagörðum. Á
norðurheimskautinu þekur sífreri
um 23 milljón ferkílómetra eða um
fjórðungur af norðurhveli jarðar
en búist er við að syðri mörk hans
færist mörg hundruð kílómetra til
norðurs á þessari öld.
Þegar sífrerajörð þiðnar losnar
kolefni úr jarðveginum út í and-
rúmsloftið. Nú er talið að allt að 67
milljarðar tonna af köfnunarefni sem
hefur verið bundið í sífrera í þúsund-
ir ára geti losnað sökum hlýnandi
loftslags. Veldur það vísindamönn-
um verulegum áhyggjum enda gæti
það haft í för með sér keðjuverkandi
stigvaxandi áhrif á losun gróðurhúsa-
lofttegunda sem leiðir aftur til enn
frekari hlýnunar jarðar.
Samkvæmt nýútkominni grein
í tímaritinu PNAS bætist áhrif frá
losun hláturgass (N20) úr sífrera-
jarðvegi ofan á aðra ógn vegna
þiðnunarinnar. Þar sem sífrera-
jarðvegur geymir gríðarlegt magn
kolefnis sem áður hefur ekki verið
aðgengilegt, getur niðurbrot lífrænna
efna í þessum jarðvegi leitt til los-
unar mikils magns af hláturgasi.
Hláturgas mun hafa um 300 sinn-
um skaðlegri áhrif á hlýnun jarðar
en koltvísýringur (CO2) og því eru
viðbrögð við þiðnandi sífrera afar
aðkallandi.
Áhrif sífrera er byrjað að gæta
víða á Norðurslóðum, ekki aðeins
vistfræðilega með breyttum
umhverfisskilyrðum sökum hlýn-
unar. Mannvirki og vegir á norður-
hveli hafa orðið fyrir skemmdum
og jafnvel hrunið vegna þiðnunar
jarðvegsins. Þá hefur þiðnunin leyst
miltisbrand úr læðingi sem hefur
orðið mönnum að aldurtila. /ghp
ER ÞITT BÚ
ÖRUGGUR
OG GÓÐUR
VINNUSTAÐUR?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
FJÓRHJÓL ERU
EKKI LEIKTÆKI
BARNA
Á síðustu árum hafa orðið
mörg slys af völdum fjórhjó-
la. Í flestum tilvikum eru
þessi tæki án veltigrindar.
Gæta skal varúðar við notkun
fjórhjóla og ætíð nota tilskilinn
hlífðarbúnað.
Fjórhjól eru ekki leiktæki barna.
UTAN ÚR HEIMI
Ógnin eykst sem stafar
af þiðnandi sífrera
Norðurheimskautið geymir gífurlegt magn kolefnis sem gæti losnað út í andrúmsloftið vegna hlýnandi loftlags.
Kortið sýnir umfang sífrera á norðurhveli jarðar og lífrænt kolefnisinnihald jarðvegsins í allt að 1 metra dýpi sam-
kvæmt áætlun Northern Circumpolar Soil Carbon Database.
og jarðvegur gefur sig.
Sífrerinn gefur eftir í takt við hlýnandi
loftslag.
...frá heilbrigði til hollustu
Ákvörðun varðandi úthlutun
á greiðslumarki staðfest
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur kveðið upp
úrskurð vegna stjórnsýslukæru
varðandi úthlutun á greiðslumarki
í mjólk í febrúar sl.
Í 10. gr. reglugerðar nr. 1150/2016
um stuðning í nautgriparækt segir
að greiðslufrestur vegna kaupa
á greiðslumarki sé 20. febrúar.
Kærendur óskuðu eftir greiðslufresti
sem Matvælastofnun hafnaði og
upplýsti að ekki væri hægt að skrá
kaupin. Þann 21. febrúar var gengið
frá uppfærslu á greiðslumarki skv.
reglugerðinni. Þann 23. febrúar
kröfðust kærendur þess að fá
afhent það greiðslumark sem til
stóð að úthluta gegn greiðslu.
Matvælastofnun hafnaði viðtöku
greiðslunnar og vísað til þess að
ekki hefði verið heimild til að veita
greiðslufrest. Í kjölfarið var málið
kært til ráðuneytisins.
Í niðurstöðu ráðuneytisins segir
að kærendur hafi ekki uppfyllt
lögbundin skilyrði fyrir kaupum
á innleystu greiðslumarki, sbr. 10.
gr. reglugerðarinnar. Ráðuneytið
taldi sjónarmið um meðalhóf ekki
eiga við enda hefði Matvælastofnun
ekkert svigrúm til að veita
greiðslufrest skv. reglugerðinni. Þá
taldi ráðuneytið að jafnræði aðila
hefði verið gætt.
Ákvörðun Matvælastofnunar
um að hafna greiðslu frá kæranda
fyrir greiðslumark mjólkur var því
staðfest.
Kæling matvæla eftir eldun
Árlega standa Matvælastofnun
og heilbrigðiseftirlit sveitarfé-
laganna fyrir sameiginlegum
eftirlits verkefnum. Verkefnin
standa yfir í afmarkaðan tíma
og er þá lögð áhersla á ákveðið,
afmarkað málefni. Að þessu sinni
var sjónum beint að kælingu mat-
væla eftir eldun en ónóg og/eða of
hæg kæling matvæla eftir eldun
er ein meginorsök matarborinna
sjúkdóma.
Sjö heilbrigðiseftirlitssvæði
auk Matvælastofnunar tóku þátt
í eftirlitsverkefninu. Verkefnið
skiptist í tvennt:
1. Eftirlitsmenn heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga og Matvæla-
stofnunar heimsóttu 26 fyrirtæki
og öfluðu upplýsinga um
hvernig matvælaframleiðendur,
full- eða hálf eldaðra rétta,
standa að kælingunni.
2. Matvælastofnun og heilbrigðis-
eftirlit sveitarfélaganna gerðu
könnun á því hve meðvitaðir
matvælaframleiðendur eru um
þær hættur, sem leynst geta í
framleiðsluvörunum og hvern-
ig þeir tryggi öryggi matvæl-
anna, en veigamikill þáttur í
því að tryggja öryggi matvæla
er að standa rétt að kælingu
eftir eldun. Könnunin var gerð
meðal 40 fyrirtækja, þ.m.t. fyr-
irtækin 26 sem heimsótt voru
sbr. tölulið 1.
Niðurstöður úr heimsóknum voru
þær að í 25 fyrirtækjum af 26,
sem heimsótt voru, var það mat
eftirlitsmanns að rétt væri staðið
að kælingu matvæla.
Niðurstöður könnunar sýna
að framleiðendur eru nokkuð
meðvitaðir um nauðsyn kælingar
og hvernig tryggja megi öryggi
matvælanna. Flestir þátttakendur
töldu helstu hættu vegna
framleiðsluferilsins, þar sem
matvæli eru kæld eftir eldun, vera
sjúkdómsvaldandi örverur. Rúmur
fjórðungur svarenda taldi enga hættu
fylgja framleiðsluferlinu, mögulega
vegna þeirra öryggisráðstafana sem
gerðar eru. Flestir framleiðendur
sögðust hafa skilgreint verklag
við kælinguna en aðeins tæpur
helmingur var með verklagið
skriflegt. Flestir gerðu sér grein
fyrir þeim hættum sem fylgja
framleiðsluferlinu og telja öryggi
matvælanna tryggt með þeirri
kæliaðferð sem notuð er.