Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Allt þarf að ganga upp
Þegar maður sér fallega mynd
af nautgrip getur verið erfitt að
ímynda sér alla þá vinnu sem býr að
baki einni svona mynd en til þess
að ná fram þeim eiginleikum sem
er verið að sækjast eftir koma að
myndatökunum fjöldi fólks sem
hefur mismunandi hlutverkum
að gegna. Myndasmiður
Viking er sérhæfður í
myndatökum á nautgripum og
kemur alla leið frá Hollandi
í þessum eina tilgangi. Þá
koma að undirbúningnum einnig
sérfræðingar í kúaklippingum.
Þegar búið er að velja grip til
myndatöku er hann fyrst klipptur eftir
kúnstarinnar reglum, en þó fyrst og
fremst á þeirri hlið sem taka á mynd
af. Svo er gripurinn þveginn hátt og
lágt með vatni og sápu svo ekki séu
óhreinindi til staðar. Eftir þetta er
feldurinn þurrkaður með hárblásara
og þegar gripurinn er þurr er hægt
að hefja raunverulegan undirbúning
myndatökunnar. Sérstök olía er borin
í feldinn svo hann glansi, lakk sett
á klaufirnar í sama tilgangi og
stundum er meira að segja notað
litasprey til þess að skerpa enn frekar
á grunnlitum gripsins. Þessi vinna
tekur oft í kringum 90 mínútur og þá
er hægt að hefja myndatökuna sjálfa.
Rétta augnablikið
Myndatakan sjálf er svo sér listgrein
og eigi að stilla gripnum upp er
hann látinn standa á upphækkun að
framan, svo hann verði reisulegri.
Þá er halanum haldið strekktum,
fótstaðan sett í samræmi við óskir
og notaður spegill eða annað slíkt til
þess að fanga athygli gripsins til þess
að fá hausinn upp og eyrun fram.
Svo eru stundum myndvinnsluforrit
notuð til þess að fjarlægja bakgrunn
gripsins og hann settur inn í annað
umhverfi. Myndatakan sjálf getur
stundum bara tekið augnablik, sé
gripurinn samvinnufús, en stundum
tekur afar langan tíma að ná hinu
rétta og dýrmæta augnabliki sem
getur skipt sköpum fyrir sölu
erfðaefnisins.
Þýtt og endursagt af
Snorra Sigurðssyni með
heimild VikingDanmark
og Lea Fourstad Harbo
greinarhöfundar, sem einnig tók
allar myndirnar sem tengjast
þessari umfjöllun.
Stjórnvöld í Katar glíma við viðskiptabann:
Flytja 4000 kýr flugleiðis
– milli Ástralíu og Bandaríkjanna til Katar
www.olafsson.is
Monsun® 2 LED
Ammoníaksþolinn og
vottaður fjósabúnaður
Réttu tækin fyrir verulega krefjandi
aðstæður. Vottaður búnaður.
OSRAM er rétta merkið.
„Ljósmyndahlið“
kýrinnar er klippt
og snyrt.
Spegill notaður til þess að fá kúna til að horfa upp og fá rétta eyrnastöðu.
Halinn togaður aftur og kýrin látin standa á palli!
UTAN ÚR HEIMI
Eftir að nágrannalöndin snið-
gengu Qatar reynir nú þekktur
kaupsýslu maður þar í landi
að finna skapandi lausnir til
að tryggja nóg af mjólk ofan í
neytendur landsins.
Fyrr í mánuðinum ákváðu Sádi-
Arabía, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin, Bahrain og Egyptaland að
sniðganga Katar eftir langt tímabil
með spennu milli þessara þjóða.
Arabísku ríkin standa í þeirri trú
að Katar blandi sér um of í innri
málefni þeirra, hafi of mikinn vin-
skap við Íran og að ríkið styðji við
alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi.
Yfirvöld í Katar hafna ásökununum
meðal annars með því að benda á
að Bandaríkin hafa stærstu herstöð
sína í Mið-Austurlöndum í landinu,
flugstöðina Al Udeid. Það virðist þó
ekki koma þeim til góða því Sádi-
Arabía og Sameinuðu arabísku
furstadæmin hafa lagt blátt bann við
því að skipakostur sem er í eigu fyr-
irtækja eða einkaaðila frá Katar fái
ekki að leggja að landi hjá þeim. Á
sama tíma hefur Sádi-Arabía, sem
er eina landið sem hefur landamæri
að Katar, lokað landamærunum og
bannað alla flugumferð til landsins.
Áður fyrr kom mest öll mjólk til
landsins frá Sádi-Arabíu. Katar er
skagi sem er erfiðlega staðsettur í
Persaflóanum með landamæri að
Sádi-Arabíu, Bahrain liggur nálægt
landinu og hinum megin við flóann
er Íran næsti nágranni þeirra.
Nú hefur kaupsýslumaðurinn
og bóndinn Moutaz Al Khayyat
frá Katar hrundið af stað verkefni
til að koma í veg fyrir mjólkurskort
í landinu. Hann er sauðfjárbóndi
og hafði hug á að bæta við sig
mjólkurframleiðslu og má nú engan
tíma missa til að útvega löndum
sínum mjólk. Nú hefur hann hug á
að flytja 4000 kýr flugleiðina milli
Ástralíu og Bandaríkjanna til Katar.
Katar Airways er fimmta stærsta
flugflutningafyrirtæki í heiminum
og er ætlunin að sækja burðarkýr
sem eiga að bera og framleiða mjólk
í Katar. Áætlað er að búið muni
framleiða sem nemur 30 prósentum
af mjólkurþörf landsins í júlímánuði
þar sem íbúar eru rétt rúmlega 2
milljónir.
Um er að ræða kúastofninn
Holstein en til að flytja 600 kílóa
þung dýrin er áætlað að þurfi á bilinu
40–60 flugferðir á milli landanna. Þar
sem Sádi-Arabía og nágrannalöndin
hafa lokað lofthelginni þurfa
flugvélarnar að fljúga hjáleið yfir
lofthelgi Írans og Óman. Vegna
þessa hækkar flutningskostnaðurinn
verulega og er áætlað að hann verði
nálægt 7 milljörðum íslenskra
króna. Kaupsýslumaðurinn hefur
ekki áhyggjur af kostnaðinum
og segir mikilvægt að sýna
nágrannalöndunum í fulla hnefana,
Katar geti orðið sér úti um
matvæli á annan hátt. Fluttar eru
landbúnaðarvörur frá Tyrklandi til
landsins og ávexti og grænmeti flytja
þeir inn frá Íran. Þar að auki hafa
stjórnvöld hvatt íbúa landsins til að
byrja á að rækta og framleiða mat
sjálf.
/Bloomberg - ehg