Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 1
Stöðugt minni hluti raforku á
Íslandi er framleiddur með endur-
nýjanlegum orku gjöfum sam-
kvæmt gögnum Orku stofnunar
og er hann nú aðeins 11%. Þá eru
34% orkunnar sögð framleidd með
kjarnorku og 55% með kolum,
olíu og gasi vegna sölu á uppruna-
vottorðum úr landi.
Æpandi þversagnir eru í þessum
tölum því á sama tíma segir
Orkustofnun að 99,99% raforku
á Íslandi séu framleidd með
endurnýjanlegum orkugjöfum. Allt
á þetta þó skýringar í sölu íslenskra
orkufyrirtækja á uppruna- eða
hreinleikavottorðum raforku til
erlendra framleiðslufyrirtækja, sem
nota „óhreina“ orku til að framleiða
sínar vörur.
Í staðinn verða íslensku orku-
fyrirtækin að skrá á sig mengun
sem hlýst af framleiðslu erlendu
fyrirtækjanna. Samt hefur hvorki
farið fram sala á orku frá Íslandi né
raunverulegur innflutningur á CO2
og kjarnorkuúrgangi til Íslands.
Ítrekað hefur verið fjallað um
þetta mál í Bændablaðinu allt frá
því þáverandi formaður Sambands
garðyrkjubænda benti á þennan sér-
kennilega lið á orkureikningum í
júní 2014. Í kjölfarið varð bakslag
í sölu upprunavottorða árið 2015
eftir yfirlýsingar þingmanna og
ráðherra um að tekið yrði á mál-
inu. Ekkert gerðist og áfram hefur
stöðugt verið gengið á endurnýj-
anlega hluta íslensku raforkunnar í
skráningu Orkustofnunar.
Engar vangaveltur um siðferði
Í kynningu Landsvirkjunar á hrein -
leika vottorðunum hefur erlendu
kaupendunum verið bent á að þeir
geti síðan notað vottorðin til að
fá ýmiss konar umhverfisvottanir
og selt sínar vörur í skjóli þeirra á
hærra verði til neytenda en ella. Það
geta þeir gert þrátt fyrir að halda
áfram að nota óhreina orku við sína
framleiðslu. Ekkert er þar minnst á
siðferði slíkra viðskipta gagnvart
grunlausum neytendum. Þeir telja
sig væntanlega vera að borga hærra
verð fyrir vörur frá fyrirtækjum sem
stunda umhverfisvæna framleiðslu.
Hrein íslensk raforka úr
89% árið 2011 í 11% árið 2018
Íslensk orkufyrirtæki hófu sölu á
upprunavottorðum raforku árið
2011. Í gögnum Orkustofnunar
kemur fram að það ár hafi 89%
raforkunnar á Íslandi verið endur-
nýjanleg orka. Hins vegar var 5%
hlutdeild orkunnar framleidd með
kjarnorku og 6% með jarðefnaelds-
neyti.
Árið 2018 var hreina íslenska raf-
orkan aðeins orðin 11% af heildar-
sölu raforku á Íslandi samkvæmt
tölum Orkustofnunar. Þá var 34%
orkunnar framleidd með geislavirku
úrani og 55% raforkunnar voru sögð
framleidd með jarðefnaeldsneyti,
eða kolum, olíu og gasi. Svona er
nú komið fyrir hreinorkulandinu
Íslandi.
Líklegt má telja að hlutfall raf-
orku sem framleitt er með endur-
nýjanlegum orkugjöfum á Íslandi
verði á pappírunum komið niður
fyrir 10% á þessu ári. Þar ræður
eftirspurn eftir syndaaflausnum í
orkumálum vegna mikillar umræðu
um hlýnun jarðar. Allir vilja jú geta
sýnt fram á það á pappírunum að
þeir séu ekki að framleiða vörur
með orku sem orsakar útblástur
gróðurhúsalofttegunda, þótt þeir
geri það samt.
Mengun flutt inn í stórum stíl?
Í staðinn fyrir sölu á uppruna-
vottorðum frá íslenskum raforku-
fyrirtækjum verða Íslendingar að
taka á sig á pappírunum ábyrgð
á losunartölum frá erlendum fyr-
irtækjum sem kaupa vottorðin. Í
tölum Orkustofnunar kemur fram
að vegna þess að íslensk raforka er
að 34% hluta sögð framleidd með
kjarnorku þá skrifum við á okkur
0,94 milligrömm af geislavirkum
úrgangi á hverja kílówattstund. Það
skildi eftir sig tæp 19 tonn af geisla-
virkum úrgangi á árinu 2018.
Íslensk raforka er svo að 55%
hluta sögð framleidd með jarð-
efnaeldsneyti. Þess vegna tökum
við á okkur samkvæmt pappírunum
443,13 grömm af koltvísýringi á
hverja kílówattstund af raforku. Það
jafngildir því að við höfum verið
að losa um 8,8 milljónir tonna af
CO2 út í andrúmsloftið á síðasta ári
vegna okkar „hreinu“ raforkufram-
leiðslu. /HKr.
– Sjá nánar á bls. 20–21
23. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 5. desember ▯ Blað nr. 552 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Máltækið „Snemma beygist krókurinn“ á vel við á þessari mynd því hér er það þriggja ára smaladrengur, Vilhelm Bjartur Eiríksson, sem aðstoðar afa
sinn nýlega, Kristin Guðnason í Árbæjarhjáleigu II í Rangárþingi ytra, að reka ærnar heim til sín. Myndina tók pabbi stráksins, Eiríkur Vilhelm Sigurðsson.
Endurnýjanleg orka
11%
Kjarnorka
34%
Jarðefnaeldsneyti
55%
SAMSETNING RAFORKU Á ÍSLANDI 2018
RAFORKUSALA
Heimild: Orkustofnun
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
. 2
01
9
Einungis 11% raforkunnar á Íslandi er nú sögð hrein og endurnýjanleg vegna sölu upprunavottorða á raforku:
„Losum” 19 tonn af geislavirkum úrgangi og 8,8
milljón tonn af CO2 vegna raforkuframleiðslu
– Á pappírum Orkustofnunar voru 34% raforkunnar sögð framleidd með kjarnorku á síðasta ári og 55% með kolum, olíu og gasi
Atkvæðagreiðslu meðal kúabænda
um endurskoðun nautgripasamn-
ings lauk í hádeginu í gær, miðviku-
daginn 4. desember. Samkomulag
bænda og stjórnvalda var sam-
þykkt með afgerandi meirihluta
atkvæða. „Já“ sögðu 447, eða 76%.
„Nei“ sögðu 132, eða 22,5%. Níu
tóku ekki afstöðu.
Ef aðeins eru teknir þeir sem
afstöðu tóku þá var samkomulag-
ið samþykkt með 77,2% atkvæða.
Á kjörskrá voru 1.332 en atkvæði
greiddu 588, eða 44,1%.
Um sólarhring fyrir auglýstan frest
höfðu einungis rúm 25% bænda greitt
atkvæði. Kjörsókn bænda í atkvæða-
greiðslum hefur verið nokkuð misjöfn
í gegnum tíðina. Ríflega 45% þátttaka
var í rafrænni atkvæðagreiðslu um
endurskoðun sauðfjársamnings fyrr
á árinu og 70,8% kúabænda kusu um
nýjan nautgripasamning árið 2016.
Árið 2012 var kosið um framlengingu
nautgripasamnings og þá var kjör-
sókn aðeins 36%.
Atkvæðagreiðslan fór fram með
rafrænum hætti en upplýsingar um
samkomulagið og kynning á áhrif-
um þess eru aðgengilegar á vef
Bændasamtakanna, bondi.is. /TB
Kúabændur sam-
þykktu samning
Ógn við eitt besta
heilbrigðisástand í heimi
4
Skynsamlegur landbúnaður og
kapítalismi fara ekki saman
26–27
Tínum gúrkur alla daga vikunnar
– líka á jóladag
36–38