Bændablaðið - 05.12.2019, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201934
Úrslitin í Íslandsmeistarakeppninni í matarhandverki voru kynnt á matarhátíð á Hvanneyri:
Íslandsmeistarar í tíu keppnisflokkum
Askurinn, Íslandsmeistarakeppni
í matarhandverki, var haldin dag-
ana 19.–21. nóvember. Úrslitin
voru síðan kynnt á matarhátíð á
Hvanneyri á laugardaginn, en veitt
voru gull-, silfur- og bronsverðlaun
fyrir efstu þrjú sætin í hverjum
keppnisflokki – og er gullverð-
launahafi jafnframt Íslandsmeistari
í viðkomandi flokki.
Keppt var í tíu flokkum matvæla.
Gæðamat dómara fór fram miðviku-
daginn 20. nóvember í húsakynnum
Matís, þar sem þættir eins og áferð,
útlit, lykt, bragð og nýnæmi voru
metnir, en 133 vörur voru skráðar til
leiks.
Að sænskri fyrirmynd
Keppnin er að sænskri fyrir mynd og
hefur sambærileg hátíð verið haldin
þar frá 1998. Íslandsmeistarakeppnin
í matarhandverki hefur einu sinni áður
verið haldin, árið 2014, en þá var hún
haldin í samstarfi Matís og norræna
verkefnisins Ný norræn matvæli (Ny
Nordisk Mad). Þar kepptu 110 vörur
frá öllum Norðurlöndunum í átta
flokkum.
Núna hélt Matís keppnina
í samstarfi við Sóknaráætlun
Vesturlands, Markaðsstofu
Vesturlands, Landbúnaðarháskóla
Íslands og Matarauð Íslands.
Úrslitin voru eftirfarandi:
Bakstur
• Gull, Rúgbrauð
– Brauðhúsið ehf.
• Silfur, Rúg hafrabrauð
– Brauðhúsið ehf.
Ber, ávextir og grænmeti
• Gull, Þurrkaðir lerkisveppir
– Holt og heiðar ehf.
• Silfur, Grenisíróp – Holt og
heiðar ehf.
• Brons, Sólþurrkaðir tómatar
– Garðyrkjustöðin
Laugarmýri
Ber, ávextir og grænmeti – sýrt
• Gull, Pikklaðar radísur
– Bjarteyjarsandur
• Silfur, Kimchi, krassandi
kóresk blanda
– Huxandi Slf
• Brons, Pylsukál, eitt með
öllu – Huxandi slf
Ber, ávextir grænmeti, drykkir
• Gull, Aðalbláberjate
– Urta islandica ehf.
• Silfur, Krækiberjasafi
– Íslensk hollusta ehf.
Fiskur og sjávarfang
• Gull, Birkireyktur urriði –
matarhandverk úr
Fram-Skorradal
• Silfur, heitreyktur makríll
– Sólsker
• Brons, Léttreyktir
þorskhnakkar – Sólsker
Kjöt og kjötvörur
• Gull, Gæsakæfa
– Villibráð Silla slf
• Silfur, Taðreykt hangikjöt
– Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi
Kjöt og kjötvörur, hráverkaðar
• Gull, Rauðvínssalami
– Tariello ehf.
• Silfur, Nautasnakk
– Mýrarnaut ehf.
• Brons, Ærberjasnakk
– Breiðdalsbiti
Mjólkurvörur
• Gull, Sveitaskyr –
Rjómabúið Erpsstaðir
• Silfur, Búlands Havarti
– Bíobú ehf.
Verðlaunahafarnir samankomnir á matarhátíðinni á Hvanneyri. Myndir / Kristín Edda Gylfadóttir
Brauðhúsið var með gull og silfur í flokknum Bakstur.
Hólmfríður Tania Steingrímsdóttir, Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir og Þórgrímur Einar Guðbjartsson frá Rjómabúinu
Erpsstöðum, sem framleiðir mjólkurvörur og fékk gull fyrir skyrið sitt.