Bændablaðið - 28.03.2019, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 7
Margmenni sótti matvælasýninguna
Local Food Festival sem haldin var í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á
dögunum. Félagið Matur úr héraði
á Norðurlandi stendur fyrir þessum
viðburði annað hvert ár. Alls tóku 38
fyrirtæki þátt og kynntu matvæli af
margvíslegu tagi og gáfu gestum að
smakka. Markaðstorg var á svæðinu,
vínsvæði og þá sýndi Iðnaðarsafnið alls
kyns varning sem tengdist matvælaiðnaði
fyrri tíðar.
Viðburðir af ýmsu tagi voru í boði.
Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi
stóð fyrir kokkakeppni og var hún
þrískipt, forréttakeppni matreiðslunema,
aðalréttakeppni matreiðslumanna og
eftirréttakeppni bakara og matreiðslunema/-
manna.
Sigursælir frá Strikinu
Í nemakeppninni var dagskipun sú að útbúa
rétt úr bleikju og blómkáli sem aðalhráefni
og setja saman á 30 mínútum fyrir framan
áhorfendur. Sigurvegari í þeirri keppni
varð Bjarni Þór Ævarsson hjá Strikinu. Í
kokkakeppninni var markmiðið að elda
lamb á tvo vegu og höfðu keppendur 30
mínútur til að skila af sér fullbúnum rétti til
dómara. Árni Þór Árnason hjá Strikinu fór
með sigur af hólmi í þeirri keppni. Loks var
eftirréttakeppni þar sem kokkar og bakarar
útbjuggu eftirrétt sem innihélt m.a. Ricotta
ost og vanillu og höfðu líkt og hinir 30
mínútur til að setja réttinn saman. Sá sem
vann til fyrstu verðlauna í þessum flokki var
Jón Arnar Ómarsson hjá Strikinu.
Málþing um matvælaframleiðslu og
orkunýtingu
Eimur sem er samstarfsverkefni um bætta
nýtingu orkuauðlinda og nýsköpum í
orkumálum á Norðurlandi eystra efndi til
málþings í tengslum við sýninguna með
yfirskriftinni „Tækifæri og takmarkanir“. Þar
var fjallað um vaxandi þörf fyrir framleiðslu
matvæla og möguleikana til nýtingar
jarðhita við framleiðsluna og við frekari
vinnslu matvæla. Snæbjörn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Eims, fjallaði um
tækifæri í fjölnýtingu jarðhita og Sigurður
Markússon, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun,
um orkufreka matvælaframleiðslu og hvort
þar væri komin ný stoð í grænu hagkerfi.
Arnar Freyr Jónsson, rekstrarstjóri
Silfurstjörnunnar, fjallað um landeldi á laxi í
Öxarfirði með jarðhita og Christin Schröder,
skordýrabóndi á Húsavík, ræddi um þá
áskorun að byggja upp skordýraræktun á
Norðurlandi. Loks hélt
Rannveig Björnsdóttir,
forseti Viðskipta- og
r a u n v í s i n d a s v i ð s
Háskólans á Akureyri,
erindi sem nefndist;
Verð mætasköpun úr
hlið ar afurðum matvæla-
framleiðslu, tækifæri og
takmarkanir.
Viðurkenningar
Uppboð var haldið
til styrktar Krabba-
meinsfélagi Akureyrar
og nágrennis og bauðst
gestum þá að bjóða
í ýmsa hluti, m.a.
matarboð fyrir allt að 10 manns þar sem kokkar
úr Klúbbi matreiðslumeistara á Norðurlandi sjá
um veisluna. Um 250 þúsund krónur söfnuðust
á uppboðinu.
Veitt voru verðlaun fyrir fallegasta og
frumlegasta bás sýningarinnar og einnig
verðlaun sem nefnast Frumkvöðull ársins í mat
og matarmenningu. Matarkista Skagafjarðar
þótti eiga fallegasta básinn, Milli fjöru og
fjalla var með frumlegasta bás sýningarinnar
og Norðlenska hreppti titilinn Frumkvöðull
ársins. /MÞÞ
LÍF&STARF
Fyrst verða birtar lesendum þrjár vísur eftir Höskuld Einarsson frá Vatnshorni. Ekki man ég til þess
að hafa séð þær fyrr. Þær rötuðu hingað
norður, eftir eitt af ánægjufullum símtölum
við Sigríði Höskuldsdóttur á Kagaðarhóli.
Hún romsaði þeim upp úr sinni munnlegu
geymd og vonandi hefur mér lánast að hafa
þær réttar eftir dóttur skáldsins:
Fyrsta vísan er ort eftir að Höskuldur
flutti suður til Reykjavíkur:
Ég er að skima allt um kring
er einhver að kalla.
Nú fer að grænka lauf og lyng
í lautunum upp til fjalla.
Landið mitt er lítið breytt
líti ég til fjalla.
Ég kannast við það kalt og heitt,
kosti þess og galla.
Hugurinn flýgur heim í sveit
halli ég mér til náða,
sé ég þá í sauðaleit
„sóðana“ mína báða.
Næsta vísa er haldin eftir Magnús Einarsson
frá Hrófbergi við Steingrímsfjörð:
Víninu hvolfdi korðatýr
koks um foldar bekki.
Pipruðu holdið pelar þrír,
en pottinn þoldi hann ekki.
Sr. Hallgrímur Pétursson orti svo til
borgfirskrar bóndadóttur:
Held ég nú í hendina á þér,
hana ég fyrir mér virði.
Engin er sú, sem af þér ber
í öllum Borgarfirði.
Jón R. Thorarensen, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps, sendi vísu
þessa með skilagrein til Seðlabankans:
Ég greiði öllum sem greiða ber
og gjöri við alla kvitt,
svo Drottinn fær það sem Drottins er
þótt djöfullinn hafi sitt.
Vigfús Þ. Jónsson á Vatnsenda í Eyjafirði
kvað, er Ólöf Sigurðardóttir, síðar húsfreyja í
Fjósakoti, var ung og ógefin heima í Leyningi:
Ef ég skunda á Ólu fund,
aðrir blund er fanga,
halla mundi ég höfði um stund
hennar undir vanga.
Enn er tilefni til að birta illviðravísur þótt komið
sé yfir sumarmál. Valdimar S. Long kvað:
Dimmir höllum drafnar í,
dynja fjöll af veðragný,
sveiflast mjöllin, sorta ský,
sveipa völlinn klæði ný.
Eftir Guðmund Inga á Kirkjubóli er þessi:
Víða grátt er veðurfar,
varla dátt er gaman.
Höfuðáttir heyja þar
hríðarsláttinn saman.
Inni er kalt en úti rok,
ískrar hurð til gátta.
Víst eru komin vökulok,
við skulum fara að hátta.
Jónas Jónsson frá Hörgsdal kvað, er leikrit
Indriða Einarssonar „Skipið sekkur“ var
frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1903.
Alls urðu sýningarnar níu:
Allt má gera í einum svip,
Indriði hefur smíðað skip.
Aldrei fer það á saltan sjó,
en sekkur á hverju kvöldi þó.
Jón M. Pétursson í Hafnardal orti til stúlku
einnar:
Svo ei festi angurs ís
inn við hjartarætur,
vertu minna draumadís
dimmar vetrarnætur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
222MÆLT AF
MUNNI FRAM
Local Food Festival haldinn í Hofi Akureyri:
Margmenni á matvælasýningu
Norðlenska hreppti titilinn Frumkvöðull ársins og greinilegt að starfsmenn eru kampakátir með þá viðurkenningu. Myndir / MÞÞ
Matarkista Skagafjarðar þótti eiga fallegasta básinn.
Milli fjöru & fjalla á Grenivík var með frumlegasta bás Local Food-sýningarinnar.
Það var vinsælt að smakka á Fjallalambi frá Kópaskeri.
Gestum og gangandi bauðst að smakka á
kræsingum af ýmsu tagi.