Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 15
Samráðshópur um endurskoðun
búvörusamninga hefur lagt
skilabréf fyrir sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra um
endurskoðun á samningi um
starfsskilyrði nautgriparæktar.
Samkvæmt erindisbréfi var
hópnum ætlað að taka afstöðu til
þess hvort afnema skuli kvótakerfi
í mjólkurframleiðslu frá og með 1.
janúar 2021.
Samráðshópur um endurskoðun
búvörusamninga hefur haldið tólf
fundi um málefni nautgripa og
mjólkurframleiðslu. Hópurinn
hefur fundað með fulltrúum
frá Landssambandi kúabænda,
Mjólkursamsölunni, Örnu,
BioBú ehf. og umhverfis- og
auðlindaráðuneyti auk þess að kynna
sér starfsemi annarra úrvinnsluaðila
á mjólkurvörumarkaði.
Fram kemur að framleiðendum
í nautgriparækt hefur farið ört
fækkandi á síðustu áratugum. Árið
1978 voru þeir um 2.500 talsins og
árið 2018 voru þeir 565. Bú eru
almennt stærri núna og framleiða
meira. Árið 2018 var meðalinnvigtun
269.750 lítrar en um 45.000 lítrar
árið 1978. Heildargreiðslumark
árið 2018 var 145 milljón lítrar og
innvigtun mjólkur 152,4 milljón
lítrar. Sala á fitugrunni var 144,8
milljón lítrar, sem var aukning um
0,5%, og sala á próteingrunni var
129,5 milljón lítrar, lækkun um 2,2
% frá árinu 2017.
Afstaða til kvótakerfisins
liggur ekki fyrir
Samkvæmt erindisbréfi er hópnum
ætlað að taka afstöðu til þess
hvort afnema skuli kvótakerfi í
mjólkurframleiðslu frá og með
1. janúar 2021. Niðurstaða í
atkvæðagreiðslu um framtíð
kvótakerfisins í mjólkurframleiðslu í
febrúar leiddi í ljós yfirgnæfandi vilja
kúabænda til að halda í kvótakerfið.
Voru 89,41% því hlynntir. Samkvæmt
heimildum Bændablaðsins hefur
samráðshópurinn ekki tekið afstöðu
til þeirrar niðurstöðu. Hópurinn segir
hins vegar í skilabréfi sínu:
„Framleiðslustýring, opinber
verðlagning og skráning á
framleiðendaverði hafa stuðlað að
jafnri stöðu mjólkurframleiðenda
um land allt og tilsvarandi
byggðafestu. Á sama tíma hefur
búum fækkað verulega. Hópurinn
telur að horfa verði á þessa þætti
í samhengi. Verði einum þeirra
raskað hefur hann áhrif á hina.
Verði sem dæmi framleiðslustýring
afnumin er örðugt að sjá hvernig föst
verðlagning gangi til lengri tíma.
Afnám framleiðslustýringar gæti því
haft áhrif á verð til bænda.“
Síðan segir um framhaldið ef
haldið verði í kvótakerfið:
„Verði framleiðslustýringu
viðhaldið þarf að endurskoða hvernig
viðskiptum með greiðslumark skuli
háttað og væri æskilegt að takmarka
undanþáguheimildir. Í þeim efnum
þarf að líta til mikilvægis nýliðunar
í stéttinni. Langvarandi lokun
á tilfærslu greiðslumarks er til
þess fallið að skapa erfiðleika og
mögulega hamla framþróun, sem
meðal annars getur komið fram við
sameiningu búa, búskaparlok vegna
aldurs eða veikinda. Núverandi
rétthafar eru líklegir til að halda að
sér höndum þar sem þeir eru ekki
sáttir við núverandi verðlagningu
auk þess sem óvissa ríkir um framtíð
kerfisins.“
Áshersla verði lögð á aukna
framleiðni
Varðandi landbúnaðinn í heild telur
hópurinn rétt að leggja áherslu á
rannsóknir og þróun í landbúnaði
sem miða að því að auka framleiðni
og framleiðsluverðmæti í greininni.
Hvatt verði til samstarfs starfandi
rannsóknastofnana og háskóla.
Áhersla skal lögð á samstarf
stjórnvalda og landbúnaðarins um
rannsóknir og aðgerðir í loftslags-
og umhverfismálum. Frekar verður
fjallað um þessa þætti í skilum hópsins
í umfjöllun um landbúnaðarstefnu
og rammasamning landbúnaðarins.
Frestir verði endurskoðaðir
Hópurinn leggur til að frestir
við innleiðingu á nýjum
aðbúnaðarreglum verði endur-
skoðaðir, þannig að framleið endur
hafi eðlilegan tíma til að vinna að
bættum aðbúnaði, án þess að slegið
sé af kröfum varðandi velferð dýra.
Reglurnar kalla á aukinn kostnað
og fjárfestingar. Hröð innleiðing
á breyttum aðbúnaði er verulega
íþyngjandi fyrir framleiðendur.
Mörg ágæt fjós eru í rekstri þar sem
ábúendur eiga fá ár eftir af sínum
búskap.
Fjárstuðningur til að mæta
auknum kröfum
„Mikil umbreyting hefur orðið í
aðbúnaði kúa. Almennt má segja
að sá aðbúnaður sé góður. Bættur
aðbúnaður, framfarir í fóðrun og
ræktun kúastofnsins hafa aukið
afurðir og þar með framleiðslu. Þá
hafa breytingar undanfarinna ára
skapað betri vinnuaðstæður bænda
og létt þeim erfiðið. Mikilvægt
er að fjárfestingarstuðningi sé
úthlutað til að mæta þeim kröfum
sem gerðar eru um bættan aðbúnað
og að fjármunir séu nýttir í þau
verkefni sem nauðsynlegt er að
ráðast í.
Hópurinn leggur eindregið til
að við endurskoðun samnings um
starfsskilyrði nautgriparæktarinnar
verði mögulegt að gera tímabundna
uppbyggingarsamninga til að hvetja
til fjölbreyttari búskaparhátta
og framleiðslu. Horft verði til
stofnstyrkja til að auðvelda
uppbyggingu og fjárfestingu á því
sviði. Þá er rétt að kanna möguleika
til að ráðast í átaksverkefni
í framleiðslu nautakjöts, svo
sem kálfakjötsframleiðslu og
framleiðslu á nautakjöti með
hjarðeldi,“ segir m.a. í bréfi
samráðshópsins. /HKr.
Bústólpi ehf · fóður og áburður · 600 Akureyri · bustolpi@bustolpi.is · Sími 460 3350
Kraftblanda-30
30% fiskimjöl
Óerfðabreytt hráefni
Lífrænt selen
Kraftblanda-15
15% fiskimjöl
Óerfðabreytt hráefni
Lífrænt selen
Kraftblanda
Inniheldur Effekt Midi Island steinefnablöndu.
Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga:
Ekki búið að taka afstöðu til afnáms mjólkurkvótakerfis