Bændablaðið - 28.03.2019, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 201924
LAND&LANDNYTJAR
Landssamtök landeigenda á Íslandi mótmæla framlögðum breytingatillögum á náttúruverndarlögum:
Fólki er freklega misboðið að það er sífellt
verið að ganga meira á rétt landeigenda
– segir Óskar Magnússon, formaður félagsins, og segir margt afar sérkennilegt í frumvarpsdrögunum
Aðalfundur Landssamtaka
land eigenda á Íslandi (LLÍ)
var haldinn á Hótel Sögu þann
14. mars síðastliðinn og þar var
samþykkt harðorð ályktun um
drög að frumvarpi umhverfis- og
auðlindaráherra til breytinga á
náttúruverndarlögum nr. 60 frá
2013.
LLÍ gera alvarlegar athugasemdir
við fyrirhugaðar breytingar og telja
að verði þær að lögum muni á ný
skapast fullkomið ófremdarástand
á fjölsóttum ferðamannastöðum,
eignarréttur landeigenda verði
fótum troðinn og misskilinn
almannaréttur sé gerður rétthærri
en stjórnarskrárvarinn eignarréttindi.
Stjórn endurkjörin
Um 400 manns eru nú í Lands
samtökum landeigenda á Íslandi og
hefur farið fjölgandi. Á aðalfundi
félagsins var stjórnin endurkjörin,
en í henni sitja Óskar Magnússon á
Sámsstaðabakka, sem er formaður,
Sigurður Jónsson í Eyvindartungu,
Guðrún María Valgeirsdóttir í
Reykjahlíð, Björn Magnússon að
Hólabaki og Örn Bergsson á Hofi
í Öræfum og fyrrverandi formaður.
Varastjórn skipa þau Snorri H.
Jóhannesson, Erlendur Ingvarsson,
Þórólfur Sveinsson, Haukur
Halldórsson og Elín Líndal.
Fólki er freklega misboðið –
óþarfa breytingar á lögum
Óskar Magnússon, formaður
félagsins, sagði í samtali við
Bændablaðið að í meginatriðum sé
verið að breyta tveim atriðum sem
sé hreinn óþarfi að breyta.
„Fólki er freklega misboðið því
að það sé sífellt verið að ganga meira
á rétt landeigenda. Við teljum að það
sé ekkert voðalegt ófremdarástand
í þessum málum. Við hefðum þó
viljað gera greinilegri og skýrari rétt
landeigenda til þess að takmarka för
um land sitt.
Þau ákvæði, sem hefur verið beitt
að undanförnu, hafa langleiðina
dugað að mestu, þótt nýlega sé
fallinn héraðsdómur þar sem réttur
landeigenda er fyrir borð borinn.
Þar virðist ekki vera nógu sterk
ákvæði til að banna hópferðir niður
að flugvélaflaki á Sólheimasandi
þótt landið sé í einkaeigu og
landeigendur stundi sjálfir ferðir
þangað niður eftir. Að öðru leyti
hafa ekki verið verulegir árekstrar
neins staðar á landinu, hvorki þar
sem tekið er gjald fyrir inngang, né
þar sem tekið er gjald fyrir bílastæði.
Hefur þetta verið að leita jafnvægis
á undanförnum árum samhliða
auknum fjölda ferðamanna.
Það hefur verið aukinn skilningur
á því að það þurfi að vera tækifæri
til og möguleiki á því að koma upp
hinum margfrægu innviðum. Sem
eru þá bílastæði, girðingar, stéttir,
stígar, pallar, brýr og tröppur og svo
framvegis. Allt kostar þetta peninga.
Reyndar hefur ríkið gengið þar fram
fyrir skjöldu varðandi bílastæðagjöld
á Þingvöllum þar sem teknar eru
inn gríðarlega miklar tekjur og
langt umfram það sem þarf vegna
bílastæðanna.“
Sérkennilegur greinarmunur
„Í þessari lagabreytingu sem nú er
lögð til eru bílastæðin alveg látin
í friði, kannski vegna þess að þar
er ríkisvaldið að taka sinn stærsta
hluta. Hins vegar er gerður mjög
sérkennilegur og í raun óskiljanlegur
greinarmunur á þjónustu sem felst í
að þjónusta bíla annars vegar og selja
þeim aðgang og hins vegar þjónustu
vegna aðgangs að göngustígum sem
lagðir hafa verið og eru í stöðugu
viðhaldi. Er sérstaklega tekið fram
í þessari lagabreytingu að almennt
viðhald svæðis teljist ekki þjónusta
sem heimili gjaldtöku. Þar er
tilgreind sérstaklega stígagerð, gerð
brúa og þess háttar. Eitthvað sem ég
hélt einmitt tilheyra nauðsynlegri
uppbyggingu innviða sem mikið
hefur verið talað um.
Það rekur sig hvað á annars horn
í þessu og alveg óskiljanlegt að það
megi búa til bílastæði fyrir mörg
hundruð eða þúsundir bíla og rukka
fyrir það. Fólkið sem kemur út úr
bílunum og fer síðan inn á eitthvert
svæði eða náttúruperlu má hins
vegar ekki innheimta af pening til
uppbyggingar innviða.“
Ferðamenn ánægðir
Bendir Óskar á uppbyggingu á fjölda
staða eins og í Raufarhólshelli, við
Kerið í Grímsnesi, á Helgafelli á
Snæfellsnesi og víða um land.
Sjálfur er hann tengdur rekstrinum
í Kerinu, þangað sem koma um
300.000 ferðamenn á ári. Voru
eigendur Kersins í raun frumkvöðlar
um innheimtu gjalds fyrir aðgengi
að náttúruperlu. Olli það nokkru
uppnámi hér innanlands á sínum
tíma, en Óskar segir að þetta
hafi gengið mjög vel og lýsi það
sér best í afar góðum umsögnum
ferðamanna á vefsíðu TripAdvisor
á netinu. Þar fái Kerið gjarnan fjórar
stjörnur af fimm mögulegum. Ekki
hafi komið fram nein gagnrýni af
hálfu notenda á það fyrirkomulag
sem þar er viðhaft. Þarna hafi menn
tekið þá ákvörðun að rukka ekkert
fyrir bílastæðin, en eingöngu fyrir
aðgang að Kerinu sjálfu og stígum
sem þar eru og séu í stöðugu
viðhaldi allt árið um kring. Ef
frumvarpsdrögin ná óbreytt fram
að ganga, þá verður óheimilt að
innheimta aðgöngugjald að Kerinu
sjálfu með tilheyrandi þjónustu sem
þar er innt af hendi, en heimilt að
rukka fyrir bílastæðaafnot.
„Mér skilst að ef menn
eru með leiðsögumann þá sé
það talið þjónusta samkvæmt
frumvarpsdrögunum sem rukka
megi fyrir. Hins vegar ef menn
útbúa bækling, uppdrátt eða leggja
göngustíga svo kílómetrum skiptir
þá teljist það ekki þjónusta og megi
því ekki rukka fyrir slíkt.
Svo máttu taka gjald af fólki sem
kemur á svæðin svo framarlega að
það komi í hópferðabíl og um sé
að ræða endurtekna og skipulagða
hópferð í atvinnuskyni. Þetta er svo
sem ekki alveg fráleit hugsun að
það sé einhver munur á einstaklingi
eða þeim sem gerir út á land annars.
Ef menn horfa hins vegar til þess
að á Íslandi eru kannski 50–60
þúsund bílaleigubílar sem gerðir
eru út í atvinnuskyni til aksturs um
landið, þá horfir málið öðruvísi
við. Það geta kannski verið tveir
til fimm í hverjum bíl. Óbreyttar
lagabreytingar þýða að allur sá fjöldi
sem fer á þessum bílum um allt land,
borgar hvergi aðgangseyri þrátt fyrir
augljósan átroðning á landinu. Það
verður aðeins borgað fyrir afnot af
bílastæðum.“
Eingöngu má rukka fyrir suma
rútufarþega en ekki aðra
„Það er meira að segja tekið fram
í þessum frumvarpsdrögum að
það megi ekki rukka einstaka rútu
skólafélaga sem eru á ferðalagi, eða
skátahóps. Með öðrum orðum, ef
skólafélagar eru að fagna t.d. 30
ára útskrift og taka sig saman og
leigja eina eða fleiri rútur og fara
í einhverja náttúruperlu, þá má
ekki rukka fyrir það. Þessir gestir
þurfa heldur ekki að spyrja leyfis
landeigenda til að fara um hans
svæði. Tekið er fram að það sé
allt of mikið vesen að hafa upp á
landeiganda og stundum séu þeir
líka margir.
Hvernig á landeigandi að stýra
eða fylgjast með því hvernig
samsetning rútuferðamannanna er?
Hvaða ástand halda menn að skapist
á þeim stöðum þar sem kemur rúta
eftir rútu þegar búið verður að skapa
flækjustig af þessu tagi sem er ekki
fyrir hendi í dag?
Það gæti hæglega komið
upp dæmi þar sem koma t.d.
700 kórfélagar úr Norræna
kórasambandinu. Þeir leigja 15 rútur
og geta farið óhindrað inn á hvaða
land sem er, án þess að þurfa að
spyrja landeigendur leyfis, né borga
krónu fyrir átroðning á landinu.“
Í ályktun aðalfundar LLÍ er meðal
annars bent á eftirtalin atriði:
• Hin forni almannaréttur tók til
frjálsrar farar gangandi manna
um eignarlönd annarra og var
ekki annað en umferðarréttur
í vegalausu landi. Rétturinn
var undantekningarheimild frá
ótvíræðum eignarrétti og til
þess gerður að greiða för á milli
tveggja staða á tímum þegar
samgöngur voru með öðru sniði
en nú er. Vegfarendum bar að
hlíta ströngum undantekningum
og greiða bætur eða sæta öðrum
viðurlögum ef ekki væri að
þessum reglum farið. Um
þetta liggja fyrir fjölmargar
lögfræðilegar fræðigreinar sem
vart teljast umdeildar. Samtök
landeigenda eru ekki mótfallinn
þessum forna almannarétti.
Þvert á móti styðja þau þennan
umferðarrétt almennings eins
og hann hefur verið túlkaðir frá
tímum Jónsbókar.
• Breytingartillögurnar gera ráð
fyrir að landeigenda sé ekki
lengur heimilt að takmarka
eða banna för um land sitt nema
við sérstakar aðstæður og aldrei
með gjaldtöku fyrir aðgang.
Hins vegar er heimilt að taka
gjald fyrir bílastæði og gerð
þeirra. Sérstaklega er tekið fram
ólögmætt sé að taka gjald vegna
viðhalds ferðmannasvæða og
hnykkt á því að lagning stígs
eða bygging göngubrúa eða
slíkra mannvirkja, feli ekki í
sér þjónustu. LLÍ telja þessa
afmörkun ólögmæta. Ekki
fær staðist að gjald megi taka
fyrir að búa til malarstæði fyrir
bifreiðar en að ekki megi taka
gjald fyrir mannvirki til verndar
náttúrunni svo sem malarstíga,
tröppur, útsýnispalla, brýr og
stiga. Hér er sönnunarbyrði
snúið við og lagt að herða
landeiganda að sýna fram á að
beita megi takmörkunum. Allt
mat er lagt í hendur stjórnvalda.
Ljóst er að alla hugsun vantar
í framsetningu þessa ákvæðis.
• Gjaldtaka er einungis heimil
ef um er að ræða endurteknar
hópferðir í atvinnuskyni. Þannig
er ekki heimilt að taka gjald
fyrir hópferð sem talin er koma í
eitt sinn og ekki í atvinnuskyni,
t.d. ferð gamalla skólafélaga á
tiltekið eignarland jafnvel þótt
saman færu hundruð manna á
mörgum rútum.
• LLÍ benda á, að engin leið
verður að reka ferðmannastaði
með þeim takmörkunum sem
fram eru settar. Rekstaraðili
eða landeigandi getur aldrei
vitað hvort rúta sem kemur á
staðinn er komin í fyrsta sinn
eða er hluti af endurteknu
ferðaskipulagi. Viðamikið
eftirlitskerfi, starfsfólk og
umstang, þarf til þess að
komast á snoðir um það hvort
viðkomandi gestir komu á
eigin vegum, í rútu sem aðeins
kom einu sinni, eða í rútu sem
stundar endurteknar ferðir á
sama staðinn.
• Landeigandi sem kýs að
verja náttúruna með stígum,
pöllum, tröppum, og öðrum
viðlíka mannvirkjum á þess
engan kost að fá kostnað sinn
bættan. Bílastæði hafa forgang,
náttúran ekki. Náttúrverndarlög
hafa snúist upp í andstæðu sína.
• Landssamtök landeigenda á
Íslandi mótmæla skerðingu
stjórnarskrárvarins eignarréttar
landeigenda með tilefnislausri
lagasetningu sem mun ein
ungis skapa árekstra upp
námsástand við stóra og smáa
ferðmannastaði og verða
náttúruvernd til skaða.
Óttast hraðkeyrslu frumvarpsins
gegnum Alþingi
Óskar Magnússon segist óttast að
knýja eigi frumvarpið með hraði í
gegnum afgreiðslu Alþingis. Skella
því inn í þingið fyrir 31. mars til
þess að það komist á málaskrá
vorþingsins.
„Það er viss hætta á að menn fái
ekki mikil tækifæri til að velta fyrir
sér þeim tugum athugasemda sem
bárust við frumvarpsdrögunum.
Það er ekki líklegt að menn fái
mikinn tíma til að liggja mikið yfir
því,“ segir Óskar Magnússon.
/HKr.
Óskar Magnússon, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi, segir að í frumvarpsdrögum til breytingar á
náttúruverndarlögum nr. 60 frá 2013 reki sig hvað á annars horn. Mynd / HKr.