Bændablaðið - 28.03.2019, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 201930
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmála ráðherra tók
á dögunum þátt í vali á verð-
launamyndum í teikni samkeppni 4.
bekkinga sem haldin er í tengslum
við Alþjóðlega skólamjólkur-
daginn ár hvert. Keppnin hefur
notið mikilla vinsælda síðustu ár,
bæði meðal grunnskólanema og
skólastjórnenda, og úrslitanna
alltaf beðið með mikilli eftir-
væntingu.
Að mati Lilju skipta keppnir
á borð við þessa miklu máli fyrir
skólastarfið, þær hvetja nemendur
í að leggja sig fram, brjóta upp
hefðbundið skólastarf og efla
liðsandann.
Líkt og undanfarin ár var
þátttakan í keppninni einstaklega
góð en rúmlega 1.400 myndir
bárust frá 70 skólum alls staðar að
af landinu.
Tólf myndir frá tíu skólum voru
valdar úr þessum mikla fjölda og
hafa skólastjórnendur í viðkomandi
skólum fengið gleðifréttirnar.
Verðlaunahöfum eru veitt viður
kenningarskjöl fyrir teikningar
sínar og til viðbótar er hver
mynd verðlaunuð með 40.000 kr.
peningagjöf frá Mjólkursamsölunni,
sem rennur óskipt í bekkjarsjóð
viðkomandi.
Nemendur viðkomandi bekkjar
eða árgangs geta svo nýtt þá upphæð
í að gera sér glaðan dag og efla
liðsheild í samvinnu og samráði við
umsjónarkennara.
„Myndefni keppninnar er alltaf
frjálst en má gjarnan tengjast
mjólk, hreyfingu og heilbrigði og
er virkilega gaman að sjá hvernig
nemendur útfæra hugmyndir sínar
á ólíkan hátt. Vinsælast er að teikna
kýr í öllum mögulegum útfærslum,
en jafnframt sjáum við margar
teikningar með mjólkurfernum og
flutningabílum,“ segir Gréta Björg
Jakobsdóttir, markaðsfulltrúi MS
og einn af fulltrúum í dómnefnd
keppninnar.
Verðlaunahafar í teiknisamkeppni
4. bekkinga skólaárið 2018–2019
eru:
Árni Ragnar Oddsson,
Gerðaskóli, Garði
Bjartey Ósk Sæþórsdóttir,
Grunnskóli Vestmannaeyja,
Hamars skóli
Bæring Breiðfjörð Magnússon,
Grunn skólinn Stykkishólmi
Hannibal Máni Kristínarson
Guðmundsson, Árbæjarskóli,
Reykjavík
Hrund Helgadóttir, Myllu
bakkaskóli, Reykjanesbæ
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Lækjarskóli, Hafnarfirði
Keara Ísabel Bayawa, Fellaskóli,
Reykjavík
Laufey Rökkvadóttir, Snælands
skóli, Kópavogi
Milana Navickaite, Fellaskóli,
Reykjavík
Sigrún Eva Arnarsdóttir, Breið
holts skóli, Reykjavík
Thelma Kristín Kristinsdóttir,
Gerðaskóli, Garði
Tristan Ásgeir Símonarson,
Varmárskóli, Mosfellsbæ
Dómnefndin þakkar nemendum 4.
bekkjar kærlega fyrir þátttökuna og
óskar vinningshöfum og skólunum
þeirra innilega til hamingju.
LÍF&STARF
Teiknisamkeppni 4. bekkinga vegna Alþjóðlega skólamjólkurdagsins:
Tólf grunnskólanemar frá tíu skólum hlutu verðlaun
– myndefnið tengdist mjólk, hreyfingu og heilbrigði
Mynd: Árni Ragnar Oddsson, Gerða
skóla Garði.
Mynd: Bjartey Ósk Sæþórsdóttir,
Grunnskóla Vestmannaeyja.
Mynd: Milana Navickaite, Fellaskóla,
Reykjavík.
Mynd: Bæring Breiðfjörð, Grunnskólanum Stykkishólmi. Mynd: Laufey Rökkvadóttir, Snælandsskóla, Kópavogi.
Mynd: Hrund Helgadóttir, Myllubakkaskóla, Reykjanesbæ. Mynd: Tristan Ásgeir Símonarson, Varmárskóla, Mosfellsbæ.
Mynd: Sigrún Eva Arnarsdóttir, Breið
holts skóla, Reykjavík.
Mynd: Hannibal Máni Kristínarson
Guðmundsson, Árbæjarskóla, Rvk.
Mynd: Thelma Kristín Kristinsdóttir,
Gerðaskóla, Garði.
Bænda
11. apríl
Dómnefnd skipuð fulltrúum MS og mennta og menningarmálaráðherra með tíu af tólf verðlaunamyndum í ár. Frá
vinstri, Steinunn Þórhallsdóttir, Ásgerður Höskuldsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Gréta Björg Jakobsdóttir.
Mynd: Keara Ísabel Bayawa, Fellaskóla, Reykjavík. Mynd: Ingibjörg Magnúsdóttir, Lækjarskóla, Hafnarfirði.