Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 41
LESENDABÁS
Á vettvangi bænda hafði á árunum
frá 2011 aukist mjög áhugi á
uppbyggingu öflugra fjarskipta
í sveitum. Bændasamtökin hafa
lengi látið sig fjarskipti varða, enda
þau mikilvæg fyrir líf og atvinnulíf
sveitanna. Margar lausnir hafa
þar verið ræddar og markvisst var
fylgst með framgangi þeirra mála
í nágrannalöndum okkar. M.a.
hafði vakið athygli frumkvæði
bænda í lagningu ljósleiðara um
sveitir og framgangur þess.
Hér á landi var merkilegt
frum kvæði bænda og íbúa í
Öræfasveit, sem lögðu þar framtíðar
ljósleiðarakerfi. Fleiri sveitarfélög
höfðu fylgt í kjölfarið og nýtt samleið
með hitaveituframkvæmdum, og
lagt annaðhvort rör fyrir ljósleiðara
og eða þráð og byggt þannig upp
ljósleiðarakerfi fyrir íbúa sinna.
Hugmynd að átaki í lagningu
ljósleiðara kynnt 2012
Snemma árs 2012 átti ég fund með
Páli Jónssyni og Evu Magnúsdóttur
hjá Mílu um framtíðarskipulag
fjarskipta í sveitum. Míla, sem allir
þekkja, hélt á grunnkerfi fjarskipta
í sveitum. Undir lok ársins 2012
kynntu Páll og Eva hugmynd að
átaki í lagningu ljósleiðara. Páll
og Eva lögðu í raun fyrst grunn
að þeirri hugsun að mögulegt væri
fjárhagslega að kljúfa þann kostnað
– en þá með aðkomu hins opinbera.
Þann fund sátu nokkrir
alþingismenn sem hóað var í með
stuttum fyrirvara. Lausn þeirra
opnaði augu okkar margra fyrir
því tækifæri sem gæti verið í
átaki um lagningu ljósleiðara um
sveitir. Míla kynnti síðan ráðherra
fjarskiptahugmyndir sínar.
Nú háttaði þannig til að sá sem
þetta ritar var á þeim tímamótum að
hverfa frá formennsku fyrir samtök
bænda og í framboði til Alþingis.
Var raunar kjörinn alþingismaður
vorið 2013.
Það var þessi hugmynd Mílu og
nálgun sem var grunnur að þeirri
baráttu sem ég hóf strax sumarið
2013, fyrir aðkomu stjórnvalda að
því að leggja málinu lið.
Starfshópur lét vinna
kostnaðargreiningu
Innanríkisráðherra, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, tók strax frumkvæði
í málinu og skipaði starfshóp um
fjarskipti. Í þeim hópi var ég
skipaður formaður og félagi minn
Páll Jóhann Pálsson þingmaður var
einnig skipaður í hópinn, ásamt
fulltrúum m.a. úr atvinnulífinu.
Starfshópur minn lét vinna
vandaða kostnaðargreiningu á
lagningu ljósleiðara um sveitir
landsins. Niðurstaða þeirrar
könnunar var grunnur að þeim
tillögum sem hópurinn skilaði af
sér og lagði til átak í fjarskiptum.
Niðurstaða var að kostnaður við að
ná 99,9% útbreiðslu á a.m.k. 100
mbs tengingum væri um 6 milljarðar.
Aukinn og vaxandi þrýstingur
sveitarfélaga um endurbætur á
fjarskiptum
Á sama tíma starfaði ég í
fjárlaganefnd Alþingis. Á þeim
vettvangi kom vel fram aukinn og
vaxandi þrýstingur sveitarfélaga um
aðkomu stjórnvalda að endurbótum
á fjarskiptum. Fyrir fjárlagagerðina
2014 og aftur 2015 var málið eitt
af aðalmálum sveitarfélaganna að
vinna að úrbótum í fjarskiptum.
Hringtenging um Vestfirði
Við fjárlagagerðina 2015 gerði
meirihluti fjárlaganefndar breyting
ar tillögu um fjármagn til að tryggja
að hringtengingu ljósleiðara um
Vestfirði og Snæfellsnes voru
tryggðir. Var það fyrst fjármagnið
sem veitt var til átaksins.
Tillagan okkar til breytinga á
fjárlagafrumvarpinu hlaut stuðning
allra flokka á Alþingi.
Ólöf Nordal hafði þá tekið
við ráðuneyti fjarskipta. Hún var
ekki síður en Hanna Birna áfram
um að leita leiða til úrbóta. Ólöf
Nordal skipaði okkur Pál Jóhann
ásamt núverandi iðnaðaráðherra
í verkefnishóp um að vinna
að útfærslum á tillögum fyrri
starfshóps. Ætlun Ólafar var mjög
skýr – að vinna að framgangi þess
að tryggja að sú áætlun næði fram
að ganga.
500 milljónir í átakið við
fjárlagagerð 2016
Við fjárlagagerðina 2016 tók
meirihluti fjárlaganefndar, undir
forustu Vigdísar Hauksdóttur og
Guðlaugs Þór Þórðarsonar aftur
til óspilltra mála. Breytingartillaga
við fjárlagafrumvarp – um að veita
500 milljónum til átaks í lagningu
ljósleiðara. Aftur var það samþykkt
á Alþingi.
Með þá fjármuni hafði
verkefnishópurinn í fyrsta sinn
tækifæri til að hrinda af stað þessu
mikilvæga og merkilega átaki Ísland
ljóstengt.
Hugmyndin að fá sem flestar
tengingar fyrir sem minnst
fjármagn
Aftur tókum við Páll Jóhann,
ásamt starfsmönnum ráðuneytis
Ólafar Nordal, til við að útfæra
átakið. Það verður ekki rakið hér
hvernig að því var staðið – en
megin hugmyndin var sú að fá sem
flestar tengingar fyrir sem minnst
fjármagn. Sveitarfélögin og kraftur
heimamanna var því virkjaður.
Að vinna að þessum grunninnvið
samfélagsins.
Virkjun heimamanna var
lykillinn að farsæld verkefnisins
Það er lykillinn að farsæld og
framgangi Ísland ljóstengt að hafa
leitað til heimamanna um að takast á
við verkefnið. Það hefur tryggt þann
árangur sem nú er að koma í ljós.
100 milljónir til viðbótar 2016
Vatnaskil verða aftur við ný lög um
opinber fjármál. Fjármálaáætlun
í raun tryggði til lengri tíma að
hægt væri að ljúka átakinu. Jón
Gunnarsson, ráðherra byggða
og samgöngumála, lagði til 100
milljónir til viðbótar árið 2016 til
að efla enn frekar stöðu veikari
byggðarlaga. Sú ákvörðun Jóns var
mjög mikilvæg og tryggði í raun að
hægt var að ljúka því.
Bæði fjármálaáætlun ríkisstjórnar
Bjarna Benedikssonar og Katrínar
Jakobsdóttur hafa síðan staðfest
mikilvægi átaksins.
Skipaður formaður
Fjarskiptasjóðs 2016
Ólöf Nordal skipar mig formann
stjórnar Fjarskiptasjóðs frá 1.
janúar 2016 til að tryggja framgang
verksins. Það hefur bæði verið
flókið og krefjandi að láta slíkt
ganga upp.
Frá haustdögum 2018 hefur verið
unnið að útfærslu á breyttri nálgun
við að tryggja að endalok átaksins
verði. Góð mynd var komin á það
verk um áramót, þegar núverandi
samgönguráðherra ákvað að skipa
mig ekki formann Fjarskiptasjóðs
áfram. En til leiks var kallaður
Páll Jóhann Pálsson, sem allan
tímann hefur fylgt þessu átaki með
mér. Ég hef setið með Páli í stjórn
fjarskiptasjóðs
frá áramótum
ásamt Margréti Gauju
Magnúdóttur.
Það var aldrei í mínum huga
kostur að hverfa frá þessu verki –
án þess að sjá fyrir endann á þessu
mikilvæga verki – sem ég hef barist
svo lengi fyrir.
Núna hefur Fjarskiptasjóður birt
tilboð til sveitarfélaga, á grundvelli
fjármálaáætlunar til 2021.
Átakið hefur skilað Íslandi
í fremstu röð
Þegar horft er til baka, og eftir að
hafa fylgt þessu mikla innviðaátaki
frá frumbernsku þess – er ekki
úr vegi að líta til baka og meta
árangur. Átakið hefur m.a. skilað
Íslandi í fremstu röð allra þjóða í
fjarskiptum. Þegar staða mála er
greind í nágrannalöndum okkar
sést að okkur hefur tekist hið
ómögulega. Að fámennri þjóð í
stóru landi hefur tekist að byggja
upp grunnkerfi framtíðar fjarskipta.
Þessum áfanga hefðum við ekki
náð nema vegna framsýni
ráðherranna Hönnu Birnu, Ólafar
Nordal og Jóns Gunnarssonar. Eða
meirihluta fjárlaganefndar árin
2013–2016. Þetta fólk gerði þetta
mögulegt, ásamt góðum stuðningi
allra flokka á Alþingi.
Aðferðafræðinni mætti beita við
aðra inviðauppbyggingu
Okkur getur greint á um leiðir
og aðferð. Ég segi hins vegar
hiklaust að sú aðferð sem okkur
lánaðist að vinna með og mótuð
var af góðu fólki og ráðgjöfum
í samgönguráðuneytinu er til
eftirbreytni. Þeirri hugsun og aðferð
má vel beita til framfara og sóknar
við aðra innviði – eins og rafmagn
og tengivegi.
Ég skal vel viðurkenna að
margar vinnustundir, ferðalög og
margir fundir hafa skilað þessu
verki áfram. Árangurinn er miklu
meiri og betri en ég þorði að vona.
Haraldur Benediktsson
alþingismaður
Haraldur Benediktsson.
Ísland ljóstengt
Hringtenging Vestfjarða og Snæfellsness voru
fyrstu málin sem fengu fjárveitingu í átakinu.