Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 201942
Hið árlega og þekkta Kvæg
kongres var haldið á dögunum
í Herning í Danmörku og venju
samkvæmt var um blandaða
ráðstefnu að ræða, þ.e. bæði
aðalfund þarlendra kúabænda
og svo fagþing dönsku naut
griparæktarinnar.
Það er alltaf jafn áhugavert
að fylgjast með því sem er
að gerast í Danmörku á sviði
mjólkurframleiðslu og nau t
gripa ræktar, enda leiða danskir
kúabændur aðra evrópska kúa
bændur þegar horft er til ýmissa
atriða sem lúta að búskapnum
s.s. varðandi bústærð, afurðasemi
kúa, lágt sótspor (kolefnisfótspor)
framleiðslunnar og svo mætti lengi
telja.
Setja sér skýr markmið
Rétt eins og Landssamband
kúabænda hefur gert hér á landi
þá hafa danskir kúabændur
markað sér skýra stefnu sem
er bæði ætluð til skemmri og
lengri tíma. Þetta kom m.a. fram
í máli stjórnarformannsins og
kúabóndans Christian Lund og
framkvæmdastjóra sambandsins,
hennar Idu Storm. Þau fóru yfir
markmið samtakanna en sum þeirra
eru skammtíma markmið þ.e. eiga
að vera komin til framkvæmda
innan tveggja
ára, en önnur eru
markmið sem
tekur lengri tíma
að ná.
Stefna á 12 tonn
eftir kúna
Til skemmri tíma
litið hefur stefnan
verið sett á að
meðalafurðir danskra kúa verði
enn meiri en nú, en Holstein kýr í
hefðbundinni mjólkurframleiðslu
skila í dag um 11.400 kílóum af
mjólk á ári. Markmiðið er að ná 12
tonna meðalnyt innan fárra ára en
aðalhvatinn að því að auka nytina
er lægra sótspor framleiðslunnar
en því hærri sem meðalnytin er,
því lægra er fótsporið á hvert
framleitt kíló mjólkur. Sömu rök
gilda um nautakjötsframleiðsluna
en þar er stefnan sett á enn meiri
daglegan vöxt gripa en nú er. Af
öðrum markmiðum sem kalla má
skammtímamarkmið er að berjast
fyrir aukinni þátttöku ungs fólks
í landbúnaði með því að gera
kúabúskap áhugaverðari fyrir yngri
kynslóðina.
Ætla að draga úr
sýklalyfjanotkun
Sambandið hefur sett það
sem markmið að draga úr
notkun á sýklalyfjum í bæði
mjólkur og kjötframleiðslu.
Reyndar hefur sýklalyfjanotkun
í mjólkurframleiðslu dregist
saman um rúm 12% á síðustu
tveimur árum í kjölfar átaks þar
að lútandi í Danmörku en á sama
tíma hefur sýklalyfjanotkun í
nautakjötsframleiðslu aukist. Nú
ætla þarlendir kúabændur að setja
notkun sýklalyfja sérstaklega á
oddinn og stefna að því að draga
verulega úr notkuninni þó svo
að notkun danskra kúabænda sé
langtum minni en t.d. kúabænda
sunnar í Evrópu, svo ekki sé nú
talað um Asíu.
„Aukin afköst er lausnin“
Í setningarræðu sinni lagði
Christian Lund sérstaka áherslu
á að danskir kúabændur yrðu að
auka afköst sín enn frekar en nú
er! Það er áhugavert að heyra
enda eru engir bændur í heiminum
í dag jafn afkastamiklir og hinir
dönsku kúabændur, þegar horft
er til framleiðslu á mjólk á hverja
vinnustund.
Uppgjör ráðgjafa miðstöðvar
innar SEGES sýnir hins vegar að
því meiri sem afköstin eru, því betri
er efnahagur búanna og því eru
bændurnir hvattir til þess að gera
sitt til þess að auka meðalafurðir
kúnna enn frekar og skoða allar
færar leiðir til þess að draga úr
vinnuþörf á búunum.
Hann nefndi sem dæmi að
með því að auka afköstin um
2% á hefðbundnum kúabúum í
mjólkurframleiðslu þá myndu
bændurnir ná betri afkomu en
ef t.d. allur eignaskattur á land
í Danmörku og skattar og gjöld
á p löntu
varnarefni yrðu
afnumin. Staðan
væri þó þannig
að margir
bændur horfðu
hins vegar mikið
á skattana og
kostnaðinn við
plöntuvarnar
efn in , en
spáðu etv. ekki
nógu mikið í því hvernig þeir
standa að framleiðslunni á búum
sínum. Áhugaverð nálgun hjá
formanninum. Hann tók þó skýrt
fram að samtökin ætla áfram að
berjast fyrir því að fella niður
eignaskattinn á land og losa um
álögur á plöntuvarnarefni, enda
væri Danmörk með hærri álögur
hvað þetta snertir en flest lönd í
Evrópu.
„Of mikið listrænt frelsi“
Christian benti á að í dag væri
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Aukin matvælaframleiðsla
á heimsvísu næstu árin
Framleiðsla á landbúnaðarvörum
og fiski mun aukast um 16
prósent frá árunum 2018 til
2027 samkvæmt áætlunum
Efnahags og framfarastofnunar
Evrópu og Matvæla og land
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Sé rýnt í skýrslu sem
norska landbúnaðarráðuneytið
sendi frá sér á dögunum um
matvælaframleiðslu í heiminum
má sjá að Kínverjar, sem eru
vaxandi markaður, eru öflugir á
mörgum sviðum þegar kemur að
landbúnaði.
Kínverjar eru stærstu fram
leiðendur af fersku grænmeti í
heiminum þar sem tómatar og
kálframleiðsla eru mikilvægustu
vörurnar. Þriðja stærsta
útflutningsþjóð á grænmeti
er Holland en fjórði stærsti
framleiðandi á fersku grænmeti
í heiminum er Tyrkland. Stærstu
mjólkurframleiðendur í heiminum
eru Indverjar en þeir nota langmestan
hluta sjálfir og aðeins brotabrot af
framleiðslunni er flutt út til nálægra
landa. Á NýjaSjálandi er allt annað
upp á teningnum þar sem 95 prósent
af mjólkurframleiðslunni er flutt úr
landi. Indland, Evrópusambandið og
Bandaríkin framleiddu yfir helmingi
heildarframleiðslu mjólkur árið
2017, eða rúmlega 820 milljónir
tonna. Þrátt fyrir það var það Nýja
Sjáland sem átti hlutdeild í nærri 30
prósenta útflutningi á mjólkurvörum
það sama ár.
Nautakjötsframleiðsla í Brasilíu
Kínverjar framleiddu yfir 54
milljónir tonna af svínakjöti
árið 2017, eða um 46 prósent af
öllu svínakjöti sem framleitt er
í heiminum. Samt sem áður voru
þeir á sama tíma stærsti innflytjandi
svínakjöts í heiminum. Á síðasta ári
braust út afríkönsk svínapest í Kína
sem varð til þess að á ákveðnum
svæðum í landinu var öllum svínum
slátrað og fargað en það virðist ekki
enn sem komið er hafa áhrif á neyslu
eða innflutning þar í landi.
Framleiðsla á nautgripakjöti
jókst milli áranna 2017 og 2018.
Það gerðist einnig í Brasilíu og
aukningin þar var fjórfalt meiri
en til dæmis öll framleiðsla
Norðmanna árið 2018. Brasilíumenn
hafa undanfarin ár haft ákveðnar
áskoranir með framleiðsluna hjá
sér, árið 2017 var hulunni svipt af
spillingar og mataröryggishneyksli
sem tengdist kjötiðnaði þar í landi.
Í framhaldinu komu mörg lönd
á innflutningshöftum frá landinu
og sum þeirra gilda enn þá.
Útflutningsmarkaður Brasilíumanna
heldur áfram að aukast þegar kemur
að nautgripakjöti og þannig eru
Kína, Egyptaland og Chile orðnir
stórir kaupendur.
Kínverjar sterkir í svína- og
lambakjöti
Kínverjar eru ekki eingöngu stórir
í framleiðslu á svínakjöti því árið
2017 framleiddu þeir rúm 30 prósent
af öllu lambakjöti í heiminum. Á
sama tíma fluttu þeir inn um 30
prósent af heildarinnflutningi
lambakjöts í heiminum. Stærstu
útflutningsaðilarnir eru Ástralir og
NýjaSjáland sem eru með tæp 90
prósent af heimsmarkaðnum.
Síðustu 50 ár hefur framleiðsla á
alifuglakjöti aukist til muna en upp
úr 1960 framleiddi hver heimshluti á
bilinu núll til fjórar milljónir tonna af
alifuglakjöti. Í dag framleiða löndin
í Asíu um 40 milljónir tonna á ári og
Suður og MiðAmeríka framleiða
yfir 25 milljónir tonna. Vöxturinn í
Bandaríkjunum árið 2017 var yfir
ein milljón tonn af alifuglakjöti.
/Bondebladet-ehg
Rauð svæði eru þar sem flest dýr í útrýmingarhættu er enn að finna.
Heimur á helvegi:
Tólf hundruð dýrategundir
nánast útdauðar
Samkvæmt kortlagningu
vísinda manna við Háskólann í
Queensland í Ástralíu eru rúmlega
1.200 dýrategundir í heiminum
svo gott sem útdauðar, ef þannig
má að orði komast. Á það jafnt
við um fugla, froska og spendýr.
Yfir 90% þessara dýra eru í hættu
vegna rasks á kjörlendi þeirra.
Kortlagningin náði alls til
5.457 dýra sem á einn eða annan
hátt eru talin í hættu vegna
mannlegra athafna á kjörlendi
dýranna. Meðal þátta sem taldir
eru valda mestri hættu fyrir
dýrin er aukin landnotkun vegna
landbúnaðar og útþenslu borga,
samgöngumannvirki, námugröftur,
skógareyðing, ljósmengun, og
mengun.
Niðurstaða kortlagningarinnar
sýndi að 1.237 dýrategundir eru í
svo alvarlegri hættu að nánast er
annað útilokað en að þær muni deyja
út á næstu árum verði ekkert að gert
til að vernda kjörlendi þeirra og það
strax. Allra verst er ástandið sagt
vera hjá 395 tegundum. Spendýr
eru sögð vera 52% þeirra dýra sem
eru í mestri hættu.
Lönd þar sem ástandið er verst
og flest dýr eru sögð vera í hættu
eru Brasilía, Malasía, Indónesía,
Indland, Míanmar og Taíland. /VH
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Kvægkongres 2019. Bóndin og stjórnarformaður Landssamband kúabænda í Danmörku, Christian Lund.
Myndir / Landbrugsavisen
Kvægkongres 2019
Landssamband kúabænda í Danmörku hefur sett það sem markmið að draga
úr notkun á sýklalyfjum í bæði mjólkur- og kjötframleiðslu.