Bændablaðið - 28.03.2019, Page 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 49
Prjónuð peysa með laskaúrtöku,
skemmtileg hreyfing kemur út
með því að prjóna með 1 þræði af
Drops Fabel og 1 þræði af Drops
Delight.
Veldu þína litasamsetningu en
garn í peysuna er á 30% afslætti
í mars og kostar því garn í þessa
peysu frá 2.583 til 4.305 kr hjá
Handverkskúnst – www.garn.is.
Stærðir:
3/4 (5/6) 7/8 (9/10) ára
Yfirvídd: 64 (68) 72 (76) cm
Garn: Drops Fabel:
Litur nr 522p túrkis/blár: 150 (200) 200 (250) g og
Drops Delight:
Litur nr 04, ljósblár: 150 (200) 200 (250) g
Prjónar: Sokkar- og hringprjónn 60 cm nr 3,5 og
4,5 – eða sú stærð sem þarf til að 18L geri 10 cm
með einum þræði af hvoru garni á prjóna nr 4,5.
Úrtaka:
Takið úr á réttu þannig: prjónið þar til það eru 5L
að prjónamerki, prjónið 2 slétt saman, 2 br, 2 sl
(prjónamerki er á milli þessar tveggja lykkja), 2 br,
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana
slétt, 1 sl, lyftið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Bak- og framstykki
Fitjið upp með einum þræði af hvorri tegund 128
(136) 144 (152) lykkjur á hringprjón nr 3,5. Tengið í
hring, setjið prjónamerki og prjónið stroff, 2 sl, 2 br
alls 5 cm. Skiftið yfir á prjón nr 4,5. Næsta umferð er
prjónuð þannig: Prjónið 50 (54) 58 (62) lykkjur slétt
en fækkið lykkjum um 6 (6) 8 (8) lykkjur jafnt yfir um
leið (= 44 (48) 50 (54) L slétt), prjónið næstu 14L
stroff eins og áður, síðan 50 (54) 58 (62) lykkjur slétt
en fækkið lykkjum um 6 (6) 8 (8) lykkjur jafnt yfir um
leið (= 44 (48) 50 (54) L slétt), að lokum 14L stroff
eins og áður. Það eru nú 116 (124) 128 (136) lykkjur
á prjóninum. Haldið áfram að prjóna slétt prjón og
stroff þar til stykkið mælist 10 (11) 12 (13) cm. Aukið
nú út um 1L sitt hvoru megin við strofflykkjurnar 14
í hvorri hlið = aukið út um 4L, þessar nýju lykkjur
eru prjónaðar slétt, endurtakið útaukninguna þegar
stykkið mælist 18 (20) 22 (24) cm. Prjónið áfram þar
til stykkið mælist 26 (29) 32 (35) cm, fellið nú af 8L
í miðju á strofflykkjunum í hvorri hlið fyrir handvegi
(þ.e. 1 sl, 2 br, 2 sl, 2 br, 1 sl) = 108 (116) 120 (128)
lykkjur á prjóninum. Geymið stykkið og prjónið ermar.
Ermar:
Fitjið upp 32 (36) 36 (40) lykkjur á sokkaprjóna nr
3,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Tengið í hring
og prjónið stroff, 2 sl, 2 br, alls 5 cm. Skiftið yfir á
sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið þannig: 18 (22) 22
(26) lykkjur slétt, og stroff eins og áður yfir næstu 14
lykkjur. Þegar ermin mælist 10 cm, er aukið út um
1L sitt hvoru megin við strofflykkjurnar, þessar nýju
lykkjur eru prjónaðar slétt. Endurtakið útaukninguna
með 3 (3½) 3 (3½) cm millibili alls 7 (7) 9 (9) sinnum
= 46 (50) 54 (58) lykkjur. Þegar ermin mælist 30 (34)
37 (41) cm er felldar af 8L mitt undir ermi, í miðju
á strofflykkjunum (þ.e.1 sl, 2 br, 2 sl, 2 br, 1 sl) = 38
(42) 46 (50) lykkjur á prjóninum. Leggið ermina til
hliðar og prjónið aðra eins.
Berustykki: Setjið ermarnar inn á sama hringprjón
og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir
handvegi = 184 (200) 212 (228) lykkjur. Setjið
prjónamerki við öll samskeyti erma og bols = 4 merki.
Haldið áfram að prjóna 2 br, 2 sl, 2 br á milli erma
og bak- og framstykkis en slétt þar á milli. Prjónið 3
(1) 1 (1) umf og hefjið þá úrtöku fyrir laskalínu – sjá
úrtaka. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð
alls 13 (15) 16 (18) sinnum.
Jafnframt þegar stykkið mælist 36 (39) 42 (45) cm
mælt frá miðju að framan, eru miðlykkjurnar 14 (14)
14 (14) settár á þráð/nælu. Prjónið áfram fram og til
baka – samtímis er fellt af í byrjun hverrar umferðar:
1L tvisvar sinnum. Þegar öllum úrtökum er lokið eru
62 (62) 66 (66) lykkjur á prjóninum. Skiptið yfir á
prjóna nr 3,5 og takið upp um 20-22 lykkjur meðfram
hálsmáli að framan (lykkjur á nælu meðtaldar) = 82
til 92 lykkjur. Prjónið 1 umf slétt yfir sléttar lykkjur
og stroff yfir strofflykkjur – og jafnið lykkjufjölda
þannig að það verði 6L slétt á hvorri ermi, 26 (26)
30 (30) lykkjur á framstykki og 18 (18) 22 (22)
lykkjur á bakstykki sem og 6 lykkjur í laskaúrtöku
eins og áður. Það eru nú 80 (80) 88 (88) lykkjur á
prjóninum. Prjónið stroff 2 sl, 2 br yfir allar lykkjur –
lykkjur á laska eru áfram 2 br, 2 sl, 2 br, teljið út frá
þeim hvernig prjóna á yfir sléttu lykkjurnar svo þær
falli inn í stroffið. Prjónið um 5 (6) 7 (8) cm, fellið af
í sléttum og brugðnum lykkjum.
Saumið saman undir ermum, gangið frá endum.
Þvoið flíkina og leggið til þerris.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
Litagleði
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
5 3 2 9
6 4 9 5
3 4 1 8
9 3 1 6
5 6 7 1
8 5 6 3
1 8 5 2
8 3 5 6
2 1 7 4
Þyngst
4 5
5 7 6 8 2
2 5 7 3
7 6
9 7
2 4
3 8 9 6
7 1 2 4 3
8 9
9 4
5 3 8
7
7 8
2 6 3
1 9
1
4 9 2
5 7
4 2
3 4 9
6 1 3
3 7 9 1
8 9
2 5 3 6
4 6 8
5 1 4
2 7
Góð pitsa í mestu uppáhaldi
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Símon Snorri er 13 ára skagfirskur
Skaftfellingur. Hann heldur mest
upp á góða pitsu og hefur gaman
af að spila tölvuleiki með vinum
sínum.
Nafn: Símon Snorri.
Aldur: 13 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Kálfafelli 1b í Fljótshverfi.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Ég á enga
uppáhaldshljómsveit en uppáhalds
söngvarinn minn er Eminem.
Uppáhaldskvikmynd: 22 Jump
Street.
Fyrsta minning þín? Ég er ekki
alveg viss en ætli það sé ekki þegar
ég var að hjálpa Daníel Smára, bróður
mínum, að hjóla á þríhjóli.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei, er ekki að æfa neinar
íþróttir núna í vetur. Kann pínulítið
á gítar.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég er ekki alveg
ákveðinn í því. Ætli ég verði ekki
bara stærri áður en ég ákveð það.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar við bræðurnir
máluðum skottið á bílnum hennar
mömmu með afgangsmálningunni
frá grindverkinu.
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt
um páskana? Sofa út, borða páskaegg
og hafa það kósí með fjölskyldunni.
Næst » Símon Snorri skorar á
Hrafntinnu Jónsdóttur, bekkjasystur
sína, að svara næst.
Vegg- og þakklæðningar
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| S t a n g a r h y l 7 | s í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Við finnum lausn sem hentar Þér!