Bændablaðið - 28.03.2019, Síða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 201954
Nú kemur vorið sunnan að og sólin
bræðir ís, orti Sigurður Óskar
Pálsson sem lengi var skólastjóri
á Borgarfirði eystri. Þeir áttu það
sameinlegt, Sigurður og Kjarval,
að alast upp á sömu slóðum hvar
umhverfið er bæði fagurt og
friðsælt. Náttúran getur ekki bara
kveikt listrænan neista heldur líka
þrá eftir því taó sem allir menn
sækjast eftir, þó sumir leiti langt
yfir skammt að því sem stendur
okkur alltaf næst.
Það sem stendur okkur næst
og yfirgefur okkur aldrei hlýtur
að vera vitund okkar, öðru nafni
Sjálfið þó það taó sem um er talað
sé auðvitað ekki taó, eins og sagt er
frá í Bókinni um veginn. Hins vegar
vill svo óheppilega til að hindurvitni
kaldrar efnishyggju hafa að mestu
úthýst þeirri „póetísku“ og hlýju
stemningu sem ætti eða mætti svo
gjarnan ráða för á okkar litla landi.
Þessi stefna óyndis tekur sig mjög
hátíðlega en hamlar flestu því sem
við teljum mikilvægast í mannlífinu,
og ekki síst heilsunni sem dafnar
auðvitað best á húmor og himneskri
upphafningu.
Vedíska fræðasetrið á Borgarfirði
eystri stendur fyrir 5 daga heilsuviku
um páskana hvar þátttakendur geta
dvalið á notalegu gistiheimili,
borðað bragðgóðan og hollan mat,
lært að elda slíkan mat, stundað
útiveru ef vill og hlustað á sögur
úr ævisögu Árna prófasts. Árni var
vitur maður og gegn, hafði horn í
síðu efnishyggjunnar en áhuga á
öllum framfaramálum, þá ekki síst
heilsufari sinna sóknarbarna og
annarra. Á heilsuvikunni verður
heilmikil fræðsla um skynsamlega
lífshætti auðvitað ásamt tækifæri til
að hvíla sig frá amstri hversdagsins.
Þátttakendum stendur einnig til boða
að læra vedíska hugleiðslu sem á
sér þúsunda ára sögu og er auðlærð
aðferð til að heilsa upp á Sjálfið í
djúpri kyrrð. Þó ekki sé á vísan að
róa hvað varðar íslenskt veðurfar
þá má alltaf stóla á logn í dúpum
hugans. Ekkert er jafn frískandi og
slík reynsla.
Við mannverur þurfum að starfa og
starfsemi fylgir þreyta. Starfsemi og
hvíld þurfa að fylgjast að í jafnvægi.
Of mikill erill, streita, áhyggjur
og óheilsusamlegir lífshættir taka
sinn toll af heilsunni, hraða ferli
öldrunar og skapa grundvöll fyrir
ójafnvægi í líkamstarfseminni.
Ójafnvægi getur svo þróast yfir í
króniska sjúkdóma ef það fær nógu
langan „útungunartíma“. Djúp og
endurnærandi hvíld er nauðsynleg
með reglulegu millibili því hún er
tækifæri líkama og huga til að ná
jafnvægi og endurnýja orkuna.
Lífsvenjur og viðhorf ráða mestu
um heilsufar og vellíðan. Mikilvægt
er því að temja sér lífsvenjur og
viðhorf fyrir lífstíð sem stuðla að
góðri heilsu. Allir geta séð hvert
stefnir með daglegar venjur sem
endurteknar eru í áratugi ef þær
venjur stuðla ekki að góðri heilsu
fyrir viðkomandi einstakling.
En hvar erum við flest stödd
varðandi heilsuvernd? Jú, flest allir
vilja skyndi- eða töfralausnir og
sópa vandanum undir næsta teppi.
Vanalega kemur hann svo þaðan
aftur vegna þess að orsakavaldurinn,
lífshættirnir og viðhorfin eru enn
hin sömu. Rekja má nær alla
sjúkdóma og nær allan heilsuvanda
til óheilsusamlegra lífshátta.
Elstu fræði mannkyns á sviði
heilsuverndar eru jafnframt þau
fræði sem breiðast nú hraðast út
um heiminn á þessu sviði. Þau
heita Ayurveda. Ayurveda er ein
af 40 greinum vedískra fræða sem
eru önnur af tveimur fræðahefðum
mannkyns. Til að skilja fræðigrein
þarf maður að nálgast hana á
hennar eigin forsendum og spyrja
kurteislega að nafni eins og alsiða
er þegar við hittum fólk sem er
okkur ókunnugt. Við getum ekki
kallað Ayurveda óhefðbundnar
lækningar því það heita fræðin
ekki. Ayur kemur af orðstofninum
Ajus sem þýðir líf og veda kemur af
orðstofninum vid sem þýðir vit eða
þekking. Ayurveda er því þekkingin
um lífið. Ef einhverjum þykir það
ekki nógu yfirgripsmikið má kalla
Ayurveda þekkinguna um lífið og
allífið.
Og hvað er mikilvægt við þessi
fræði? Jú, út frá sjónarhóli forvarna
þá er það greining á ójafnvægi löngu
áður en það fær að birtast sem
krónískur sjúkdómur. Greining og
einföld ráð um breyttan lífstíl til að
afstýra sjúkdómi. Hversu mikilvægt
er það?
Ayurveda er ekki indversk fræði
frekar en þyngdarlögmálið er breskt.
Ayurveda fjallar um algild lögmál
m.a. þau er varða heilsu, og er því
ekki háð tíma eða staðsetningu á
jarðkúlunni, Það breytir þó ekki
því að fræðin voru rituð af þremur
læknum sem uppi voru á Indlandi
fyrir þúsundum ára og hétu þeir
Vagbhatt, Charak og Sushrut.
Iðkun Ayurveda skapar skilning
og næmni fyrir því sem er fyrir
bestu á hverjum tíma. Bent er á í
fræðum Ayurveda að einstaklingar
eru mismunandi og hafa því
mismunandi þarfir. Þar að auki er
loftslag, árstíðir, tími dags, aldur,
og atvinna ásamt fjöldamörgu öðru
breytileg atriði sem taka þarf með
í reikninginn varðandi lífshætti.
Fræðilegur bakgrunnur Ayurveda
verður því fljótt að sjálfvirku vali
í samræmi við það sem hentar á
hverjum tíma.
Það er bæði auðvelt og ánægjulegt
að iðka Ayurveda vegna þess að
árangur kemur fljótt í ljós og iðkunin
verður sjálfsagður hlutur þegar við
finnum vellíðan og ánægju sem
afrakstur skynsamlegra lífshátta.
Fræðin hafa ekki breytt um skoðun
allt frá upphafi hver eru lögmál
heilsuverndar. Óþarfi er að aðhyllast
einhverja sérstaka stefnu varðandi
fæðu eða lífstíl til að njóta góðs af
námi eða námskeiði í Ayur veda.
Fræðin eru fyrir alla jafnt.
Málshátturinn, veldur hver á
heldur gildir í Ayurveda sem og
annars staðar hvað varðar árangur.
Vedíska Fræðasetrið er að kenna
Ayurveda í samstarfi við nokkra
færustu Ayurveda lækna heims
sem við eigum samtal við í gegnum
fjarfundabúnað. Við sem kennum
höfum jafnframt formlega menntun
og langa reynslu af iðkun fræðanna.
Okkar sérsvið er að leiðbeina um
lífstíl og meðferðir sem hver og einn
getur iðkað heima hjá sér eins og
Árni prófastur og Ayurveda fræðin
hafa kennt okkur.
Myndu ekki allir samsinna því
að þekking sé grundvöllur athafna?
Athafnir okkar, atferli eða lífsstíll,
til dæmis sem þjóðar skila af sér
tölfræði sem á sviði heilsufars ratar
í lýðheilsuvísa. Þessir vísar segja
frekar óskemmtilega sögu og gefa
til kynna að við þurfum að bæta við
þekkingu okkar varðandi heilsu og
endurhæfingu. Á meðan eitthvað
ósýnilegt fyrirbæri sem nærist á
ótta við breytingar og þar með
framfarir, stendur heiðursvörð um
stöðnun íslensks samfélags á öllum
sviðum þá vinna lausnirnar sig,sem
oftar en ekki búa í jaðarþekkingu,
hægt og rólega inn í meginstraum
fræðasamfélags eða þjóðfélags.
Ayurveda, sem og aðrar greinar
vedískra fræða, er sannarlega
jaðarþekking í okkar samfélagi
enn sem komið er, en ætti að verða
ráðandi þekking í forvörnum. Viljum
við bæta heilsufar eru merkimiðar
eins og austrænt og vestrænt,
hefðbundið og óhefðbundið, huglægt
eða hlutlægt harla gagnslausir og
eiga lítið skylt við vísindalega eða
skynsama hugsun. Spurningin um
hversu gagnleg tiltekin fræði eru
til að bæta heilsu er hins vegar góð
byrjun og svarið fæst auðvitað ekki
nema með því að prófa.
Björn Kristjánsson
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Hækkun gjaldskrár fyrir
notendur skýrsluhaldskerfa
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur
staðfest hækkun gjaldskrár fyrir notendur skýrslu-
haldskerfa sem notuð eru til að skila lögbundnum
skýrsluhaldsupplýsingum í samræmi við ákvæði
búvörusamninga. Hækkunin nemur 3,2% og tekur
gildi 1. apríl nk.
Gjaldskrá - árgjald:
Fjárvís, Heiðrún og Huppa: 12.740 kr. m. vsk.
Jörð: 10.298 kr. m. vsk.
VW Crafter, 4x4, Achleitner
Bíllinn er vel útbúinn með driflæsingu að aftan, hátt og lágt drif.
Breyttur fyrir 35“ dekk. Búið að breytingarskoða bílinn.
Árgerð 2014, ekinn 109.000 km. Verð 5.500.000 + vsk.
Nánari upplýsingar á www.enta.is og í síma 897-6240
Til sölu
Aðalfundur Búnaðarsambands Kjalarnesþings 2019
Aðalfundur BSK verður haldinn í gróðrastöðinni Lambhaga
„Mýrarkoti“ miðvikudaginn 10. apríl kl. 20:00
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar fyrir liðið ár
Reikningar félagsins
Gestir fundarins frá BÍ og Bú- Vest
Kosningar
Önnur mál
Stjórn BSK
LESENDABÁS
Það sem skiptir máli
Björn Kristjánsson.