Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Page 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Page 7
námsefnið í M.H. og Garðar Gíslason frá M.K. Sem dæmi má nefna að athygli hefur verið vakin á námsefninu í Armúlaskóla og Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Auk þess hafa ferðimar út á land verið notaðar m. a. ti 1 að koma því á framfæri við skólayfirvöld á viðkomandi stöðum, s.s. Mennta- skólanum á Isafirði, Fjölbrautarskól- anum á Selfossi og Menntaskólanum í Vestmannaeyjum. UNNIÐ AÐ FERLIMÁLUM I samráði við Carl Brand hefur verið unnið að ferlimálum bæði úti á landi og í Reykjavík. Ymsir staðir hafa verið heimsóttir í því skyni að benda á það sem betur má fara. Þá hefur verið haft samband við byggingaraðila áður en framkvæmdir hefjast. AÐEINS UM BYRJUN AÐ RÆÐA Hér að ofan hef ég stiklað á stóru í þeim mörgu verkefnum sem Ræðarar og Stýrimaður hafa tekið sér fyrir hendur. Eg vil taka það skýrt fram að hvort sem um er að ræða kynn- ingarstarf, ferlimál, tómstundamál, fræðslumál eða hvað annað sem við höfum lagt vinnu í, er aðeins um byrjun að ræða. Vonandi þróast þetta starf og dafnar í framtíðinni. Verkefnin eru óþrjótandi því enn vantar mikið á að fatlaðir sitji við sama borð og ófatlaðir. Helgi Hróðmarsson. Kveðja til Reykjalundar Eins og rækilega var greint frá í síðasta Fréttabréfi átti S.Í.B.S. 50 ára afmæli á liðnu ári. Reykjalundur er sá staður, sem heldur hróðri S.Í.B.S. hæst á lofti þó margt sé þar mjög vel gert annað. Þar dvelj ast hundruð manna í endurhæfingu á ári hverju og fá mjög margir verulega bót margháttaðra meina og sumir segjast koma þaðan alheilir, þó skældir væru er inn var komið. Dvalargestir ljúka allir lofsorði á þjónustu, en sumir þakka íyrir með eftirminnilegri hætti en aðrir. Hér fer á eftir gamansöm kveðja en kær þökk um leið frá Svövu Jóhannesdóttur, Markholti 1 Mosfellsbæ, sem hefur verið svo vinsamleg að leyfabirtingu þessa ljóðs. Um leið vill Svava koma á framfæri mikilli þökk til Reykjalundarfólks og biður þeim öllum blessunar í starfi og svo vitnað sé í hennar eigin orð: Það er gæfa góðum að mæta. Ef tekur úr þér Jjör aðfjara svofullum ekki nærðu skrið, á Reykjalund er ráð að fara og reyna að bæta ástandið. Á þessum bæ er úrval lækna og ótal kroppafræðingar matreiðslu og meinatæknar sem marka stefnu aðgerðar. Fyrst er hver maður mældur veginn, og metinn til hvers hann nýta má, síðan teygður, þvældur, þveginn og þeytt um staðinn til og frá. Þeir hafa hér ótal tól og tæki til þess gerð að efla þrótt, og þjálfarar með þúsund klæki sem þjarma aðfólki dag og nótt. Sum með heitum bökstrum baka böggla og teygja hvert vöðvagrey. aðra leggja á kaldan klaka, kuldaleg aðferð það, ja svei. Háls og nef og herðar teygja hrista skanka, blaka tám, álku teygja, arma beygja, elta bolta, hanga í rám. Hundasund og hlaup og ganga, hreysti gefur, sagt er mér, boccía og bogajimi bót erflestra meina hér. Ef þú ert mjór þá áttu að fitna og allur vcuca á þverveginn, en feitabollan fær að svitna svo fari hún héðan mjóslegin. Sko, þetta er ein herjans þrælakista - það er sko ekkert lygimál, - á Reykjalundi er gott að gista, þar gleymist ekki nokkur sál. Þeir tóku mig að sér skælda skakka ég skuggalaus var og alltaf kalt. En endumærðfrá hæl að hnakka héðan égfer og til í allt. Svava Jóhannesdóttir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.