Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Blaðsíða 24
Orskotsstans í Alandinu
MS-félagar heimsóttir
John Benedikz læknir og Gyða J. Ólafsdóttir form. MS-félagsins.
Anýju ári líta M.S. félagar
til liðna ársins og „rifja
upp og reyna að muna"
eins og gengur, en ekki er síður
litið fram á við og leitað fangs við
þau verkefni, sem efst eru og
verða á baugi.
S.l. árvar afmælisár, sérstök
athygli vakin á M.S. af ágætum
sjálfboðaliðum, félagsleg átök
voru gerð og fleira ánægjulegt
gerðist, m.a. á fjárhagssviðinu,
sem er heldur ótítt um þessar
mundir mitt í öllu svartagalls-
rausinu.
Eins og jafnan, eru viðtökur
þeirra í Álandinu með miklum
höfðingsskap og eftir að hafa
heilsað upp á þá, sem þar njóta
dagvistar og hressingar á sál og
líkama sest undirritaður niður
inn á skrifstofu M.S.-félagsins
þar sem þau Gyða J. Ólafsdóttir
formaður félagsins og John
Benedikz læknir heimilisins og
hollvættur fara yfir fáeina þætti
sem þau vilja mega koma á
framfæri við okkur öll.
Ég spyr fyrst hvað sé þeim
minnisstæðast frá liðnu ári og
hvað hafi hæst borið?
Auðvitað sjálft afmælið - 20
árin - og allt það sem því tengd-
ist. Við höfðum opið hús á
afmælisdaginn og okkur heim-
sóttu fjölmargir, bæði félagar og
góðir gestir. Yfir öllu sveif hinn
góði andi. Það var verulega
ánægjuleg stund. Þá sáum við í
fyrsta sinn um norrænt M.S.-
þing hér á landi. Það sóttu 9
fulltrúar frá Norðurlöndunum
og félagar héðan. Virkilega vel
heppnað þing, þar sem fjallað
var af hispursleysi og hrein-
skilni um hagsmunamál M.S.-
sjúklinga. Þá gerðumst við
aðilar að stofnun Evrópu-
samtaka M.S. Það gleðilega við
þátttöku okkar þar er m.a. það,
að ísland er þar fullgildur aðili,
þó við séum ekki í EBE og EBE
styrkir okkar fulltrúa fjárhags-
lega til þátttöku í starfinu, svo
við getum verið með. Okkur
finnst það mikilvæg viðurkenn-
ing á tilveru okkar.
Nú afmælisritið var virkilega
vel úr garði gert að okkar dómi
og raunar einnig annarra. Þar
er á einum stað samankomin
mikil sérfræðileg þekking, auk
þess sem viðhorfi og reynslu
M.S.-sjúklinga eru gerð góð
skil.
Þá er skemmtunin á Hótel
íslandi okkur ógleymanleg sak-
ir þeirrar hfyju og velvildar er
þar mætti okkur. Það voru hár-
greiðslumeistarar og íslands-
meistarar í dansi, sem stóðu
fyrir þessari fjölbreyttu sam-
komu. Gáfu allt, svo og þeir
ágætu skemmtikraftar sem þar
komu fram.
Nú Hótel ísland fengum við
endurgjaldslaust og öll vinna
starfsfólks þar var gefin. Þetta
var höfðinglegt af allra hálfu er
nærri komu ogverður seint full-
þakkað. Fréttir af þessari sam-
komu urðu með öðru, til þess að
mikill fróðleikur um M.S.-fé-
lagið og sjúkdóminn komst bet-
ur til skila til landsmanna en
oftast áður.
Hvað er að segja um
fjármálin?
Við erum ævinlega sjálf með
nokkra fjáröflun, kökusölu,
jólakort, seldir munir úr fönd-
urvinnu þeirra, sem hér eru
o.s.frv. Þetta gefur okkur nokk-
uð. Við fáum margháttaðan
stuðning frá fjölmörgum fé-
lagasamtökum t.d. Oddfell-
owreglunni, Vinahjálp, Lions-
hreyfingunni, Rauða krossi ís-
lands og svo koma einstakl-
ingar oft og gefa gjafir - oft þær
dýrmætustu í raun.
Á sl. ári var stofnaður sjóður
út frá höfðinglegri gjöf Áma
Gestssonar, eins konar vís-
inda- og fræðslusjóður. Fyrir er
svo sjóður til að styrkja M.S.-
sjúklinga til meðferðar og
hressingar erlendis.
Nú við fáum nokkum fastan
styrk á fjárlögum. 1987 var
þetta framlag fryst vegna ein-
hverrar vangár en eftir mikið
stapp og margar beiðnir höfum
við nú um áramótin fengið þetta
framlagmeð aukafjárveitingu og
24